Erindi Brúar lífeyrissjóðs varðandi uppgjör vegna Hjallastefnunnar, dags. 29.01.19.
Málsnúmer 1902036
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
21. (1979). fundur
Bæjarráð samþykkir að Garðabær gangi frá uppgjöri við Brú lífeyrisjóð vegna hlutdeildar í kröfu sjóðsins vegna framlaga í jafnvægisjóð og varúðarsjóð sem ógreitt er vegna starfsmanna Hjallastefnunnar. Alls er krafan gagnvart 11 sveitarfélögum samtals að fjárhæð kr. 101.684.542 og þar af er hlutur Garðabæjar kr. 23.458.624. Öll sveitarfélögin hafa samþykkt að ganga frá uppgjöri við sjóðinn vegna málsins.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
8. (1869). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og leggur áherslu á að málið verði unnið í samráði við önnur sveitarfélög.