8. (1869). fundur
8. (1869). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
26.02.2019
Kl. 08:00 - 08:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1810277
01
Dýjagata 5-Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Árna Heimi Ingimundarsyni, kt. 211281-3329 leyfi til að byggja einbýlishús að Dýjagötu 5.
Málsnúmer 1811324
02
Urriðaholtsstræti 26 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita U26 ehf., kt. 650117-1150 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 16 íbúðum að Urriðaholtsstræti 26.
Málsnúmer 1902197
03
Tölvupóstur Umhverfisstofnunar varðandi kynningu á umhverfisvottuðum byggingum, dags. 14.02.19.
Bæjarráð þakkar boð um kynningu á viðmiðum Svansins vegna bygginga fyrir grunn- og leikskóla.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902036
04
Bréf Brúar - lífeyrissjóðs varðandi uppgjör á framlagi Hjallastefnunnar vegna breytinga á A deild, dags. 29.01.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og leggur áherslu á að málið verði unnið í samráði við önnur sveitarfélög.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902216
05
Bréf Hjallastefnunnar varðandi umsókn um leyfi fyrir skólastarfi á miðstigi við Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum, dags. 18.02.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skólanefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902276
06
Bréf félags- og barnamálaráðherra vegna vinnu við stefnumótun í málefnum barna, dags. 22.02.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skólanefndar, leikskólanefndar og fjölskylduráðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1810093
07
Bréf Skipulagsstofnunar varðandi skíðasvæði í Bláfjöllum, dags. 15.02.19.
Bæjarráð telur ekki tilefni til athugasemda um hvort framkvæmd við uppbyggingu á skíðasvæðum í Bláfjöllum skuli háð umhverfismati en leggur áherslu á að gætt sé að hagsmunum vatnsverndar á svæðinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902238
08
Bréf Golfklúbbsins Setbergs um niðurfellingu fasteignagjalda 2019, dags. 20.02.19.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Setbergs styrk að fjárhæð kr. 414.430 til greiðslu fasteignagjalda árið 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902250
09
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um rétt barna sem aðstandendur, 255. mál., dags. 21.02.19.
Lagt fram.
Málsnúmer 1902251
10
Bréf Alþings varðandi tillögu til þingsályktunar um velferðartækni, 296. mál., dags. 21.02.19.
Lagt fram.
Málsnúmer 1902212
11
Tillaga Garðabæjarlistans um aukna upplýsingatækni í grunnskólum bæjarins.
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar skólanefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902203
12