Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Landnáms ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað að Hliði á Álftanesi.
Málsnúmer 2105150
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
21. (1979). fundur
Umsagnarbeiðnin er tekin fyrir að nýju þar sem í umsókn komu ekki fram upplýsingar um fjölda gesta.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Landnám ehf., kt. 640295-2529, fái rekstrarleyfi fyrir starfsemi veitingastaðar að Hliði á Álftanesi og í umsókn kemur fram að miðað er við 79 gesti.
Bæjarráð Garðabæjar
02
18. (1976). fundur
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Landnám ehf., kt. 640295-2529, fái rekstrarleyfi fyrir starfsemi veitingastaðar að Hliði á Álftanesi.