6. (1964). fundur
6. (1964). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
16.02.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðabirgðaákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020.
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
COVID-19 - neyðarstig almannavarna.
Upplýst var að ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur ákveðið að færa almannavarnastig úr neyðarstigi niður á hættustig vegna COVID-19. Neyðarstigi var lýst yfir 4. október 2020 þegar þriðja bylgja faraldursins hófst og smitum tók að fjölga verulega.
Leiðbeiningar um fjöldatakmarkanir í söfunum hafa verið uppfærðar. Almenn fjöldatakmörkun er að 20 einstaklingar mega koma saman. Í söfnum, svo sem bóka- og skjalasöfnum, listasöfnum, minjasöfnum, náttúrugripasöfnum og tæknisöfnum er heimilt að taka við fimm gestum á hverja 10 m2, þó að hámarki 150 viðskiptavinum í rými að því gefnu að uppfyllt skilyrði um a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
Núverandi reglur um samkomutakmarkanir gilda til 3. mars nk.
Málsnúmer 2102023
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóða við Eskiás.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga sem gerir ráð fyrir að hæðir húsa við Eskiás 2, 4 og 6 lækki um eina hæð og heimilað verði að fjölga íbúðum í öðrum húsum sem nemur fækkun íbúða vegna lækkunar um hæð. Hámarkshæðir annarra húsa verða óbreyttar. Byggingarreitir lóðanna nr. 8 og 10 breytast þannig að þar verða lokaðir innigarðar. Heildarfjöldi íbúða verður óbreyttur eða 276 íbúðir.
Málsnúmer 2010080
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis í Garðahverfi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis Grænagarðs (1.09) í Garðahverfi.
Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd á þeim svæðum þar sem starfandi er slík nefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis
Málsnúmer 2010078
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á lóðarmörkum og byggingarreitum í Katrínarkoti, Háteigi, Hausastöðum og Pálshúsum, breyttri afmörkun Grænagarðs og að skilgreind verði lóð umhverfis núverandi íbúðarhús í Grænagarði.
Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir að boða deiliskipulagshöfunda á fund bæjarráðs til að fara nánar yfir forsendur og þróun skipulagsins.
Málsnúmer 2004418
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna leiksvæðis.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna breyttrar tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Sjálands á svæði sparkvallar sem verður þá skilgreint sem leiksvæði og sparkvöllur, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum íbúða við Löngulínu 13, 15, 17, 19, 21, 23, 27 og 29 og Vesturbrú 1.
Málsnúmer 2010441
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Keldugötu 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar að Keldugötu 2 samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og tillöguna með breytingu frá auglýstri tillögu er varðar innkeyrslu lóðarinnar.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Málsnúmer 2102157
07
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundarráðs varðandi lýðheilsu-, og forvarnastefnu Garðabæjar.
Bæjarráð vísar tillögu íþrótta- og tómstundaráðs að nýrri lýðheilsu- og forvarnastefnu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2102215
08
Bréf Náttúruhamfaratrygginga Íslands varðandi skyldutryggingar mannvirkja, ódags.
Í bréfinu kemur fram að eigendum mannvirkja sem falla undir lög um Náttúruhamfaratryggingu Íslands skuli fyrir 1. mars ár hvert senda Náttúruhamfaratryggingu Íslands skrá yfir öll þau mannvirki sem tryggja á ásamt áætlun um endurstofnverð.
Bæjarráð felur bæjarstjórar að senda Náttúruhamfaratryggingu Íslands umbeðna skrá.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2102182
09
Bréf Bessastaðasóknar um endurnýjun samnings um æskulýðsstarf, dags. 09.02.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundaráði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2102214
10
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga varðandi auglýsingu eftir framboðum í stjórn, dags. 08.02.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2101200
11
Útboð á þjónustu iðnaðarmanna.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir undirbúningi að gerð útboðsgagna vegna útboðs á þjónustu iðnaðarmanna.
Lagt fram til kynningar minnisblað Juris um innkaup á þjónustu iðnaðarmanna.
Málsnúmer 2102118
12
Samningur um Bláfjallarútuna.
Bæjarráð samþykkir samning við Teit Jónasson ehf. um áætlunarakstur að skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins. Samningurinn er ótímabundinn með sex mánaða uppsagnafresti.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902222
13
Sala lóða í Vetrarmýri.
Bæjarstjóri upplýsti um stöðu mála varðandi viðræður við Skipulagsstofnun og Kópavog um athugasemdir Skipulagsstofnunar varðandi tengingar á gatnakerfi sveitarfélaganna í Hnoðraholti. Fyrirhugaður er fundur með Skipulagstofnun um málið í dag.
Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um aðferðir við útfærslu á úthlutun lóða og sölu byggingarréttar lóða í Vetrarmýri. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.