Beint í efni

Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.

Málsnúmer 2010078

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (978). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

8. (978). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, GS, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA) afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsuppdrætti: Almennar breytingar: - Afmarkaðar eru lóðir utan um núverandi byggingar á svæðinu. - Nýjum lóðum fjölgar alls um 6 á eftirfarandi býlum: Katrínarkoti, Hlíð, Miðengi, Görðum, Nýjabæ og Eystri-Dysjum. - Nýjar lóðir verða um 900 m² að stærð, staðsetningu og lögun lóða og byggingarreita er breytt í kjölfar samráðs við ábúendur eða vegna fornminja. - Heimreiðum að nýjum lóðum er breytt. Stígar og aðgengi: - Bætt öryggi og aðgengi gangandi á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar. Hraðalækkandi aðgerðir og gönguþveranir eru tilgreindar á uppdrætti á þessu svæði. - Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir þar sem göngustígur þverar Garðaveg hjá Garðakirkju. - Bætt er við stofnstíg samhliða Garðavegi og Garðaholtsvegi í samræmi við aðalskipulag. - Gönguleið meðfram Garðavegi breytt í tengistíg í samræmi við flokkun í aðalskipulagi. - Flokkun stígsins meðfram ströndinni í Garðahverfi er breytt til samræmis við flokkun hans í aðalskipulagi sem útivistarstíg. Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir við upphaf sama stígs við Aukatjörn. Grænigarður, Garðar, Garðaholt og Krókur: - Afmörkun deiliskipulagssvæðisins er breytt þannig að hún nær einnig yfir gömlu bæjartorfuna Höll. - Afmörkuð er lóð við húsið Grænagarð. - Aðkoma að Grænagarði frá kjarna Garðaholts er skilgreind á uppdrætti og bætt við leiðbeinandi legu stíga innan garðsins. Þá er skilgreindur byggingarreitur innan Grænagarðs með skilmálum fyrir lítil mannvirki sem tengjast starfsemi og rekstri almenningsgarðs s.s. fyrir áhaldageymslu, garðhýsi eða annað. - Gert er ráð fyrir minjasvæði milli Garðakirkju og íbúðarhúss í Görðum. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsgreinargerð: - Sett eru ákvæði um smáhýsi á lóðum. - Hámarksgrunnflötur nýrra íbúðarhúsa verður 100 m² í stað 80 m². - Bætt er við ákvæðum um þakgerð, gerð kvista, matjurtargarð, girðingar ofl. - Bætt er við ákvæði um að skipulagsnefnd sé heimilt að víkja frá einstökum ákvæðum skilmála ef færð eru góð rök fyrir því að útfærslan virði einkenni byggðarinnar og markmið deiliskipulagsins. - Kvöðum um fornleifar er breytt. - Kvöðum um einstök býli breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti. - Kvöðum og umfjöllun um Grænagarð er breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti og á aðalskipulagsuppdrætti. Skipulagsnefnd lagði til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni: - Ein íbúðarhúslóð verði bætt við norðan Pálshúsa, Pálshús 4. - Landi Nýjabæjar 2 verði skipt upp í tvær íbúðarhúsalóðir, Nýjabæ 2a (núverandi hús) og Nýjabæ 2b (nýtt hús) - Lögun lóðar umhverfis Grjóta (Hausastaðakot) verði breytt. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er í samræmi við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðaholts og Garðahverfis og var samþykkt á síðasta fundi nefndarinnar. Voru tillögurnar auglýstar samhliða en hvorki athugasemdir né umsagnir gáfu tilefni til breytingar á aðalskipulagstillögunni. Lögð fram greinargerð umhverfissviðs þar sem fram kemur innihald þeirra athugasemda og tillaga að svörum Garðabæjar við þeim.

Bæjarráð Garðabæjar

03

16. (2211). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsuppdrætti:
Almennar breytingar:
- Afmarkaðar eru lóðir utan um núverandi byggingar á svæðinu.
- Nýjum lóðum fjölgar alls um 6 á eftirfarandi býlum: Katrínarkoti, Hlíð, Miðengi, Görðum, Nýjabæ og Eystri-Dysjum.
- Nýjar lóðir verða um 900 m² að stærð, staðsetningu og lögun lóða og byggingarreita er breytt í kjölfar samráðs við ábúendur eða vegna fornminja.
- Heimreiðum að nýjum lóðum er breytt.
Stígar og aðgengi:
- Bætt öryggi og aðgengi gangandi á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar. Hraðalækkandi aðgerðir og gönguþveranir eru tilgreindar á uppdrætti á þessu svæði.
- Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir þar sem göngustígur þverar Garðaveg hjá Garðakirkju.
- Bætt er við stofnstíg samhliða Garðavegi og Garðaholtsvegi í samræmi við aðalskipulag.
- Gönguleið meðfram Garðavegi breytt í tengistíg í samræmi við flokkun í aðalskipulagi.
- Flokkun stígsins meðfram ströndinni í Garðahverfi er breytt til samræmis við flokkun hans í aðalskipulagi sem útivistarstíg. Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir við upphaf sama stígs við Aukatjörn.
Grænigarður, Garðar, Garðaholt og Krókur:
- Afmörkun deiliskipulagssvæðisins er breytt þannig að hún nær einnig yfir gömlu bæjartorfuna Höll.
- Afmörkuð er lóð við húsið Grænagarð.
- Aðkoma að Grænagarði frá kjarna Garðaholts er skilgreind á uppdrætti og bætt við leiðbeinandi legu stíga innan garðsins. Þá er skilgreindur byggingarreitur innan Grænagarðs með skilmálum fyrir lítil mannvirki sem tengjast starfsemi og rekstri almenningsgarðs s.s. fyrir áhaldageymslu, garðhýsi eða annað.
- Gert er ráð fyrir minjasvæði milli Garðakirkju og íbúðarhúss í Görðum. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsgreinargerð:
- Sett eru ákvæði um smáhýsi á lóðum.
- Hámarksgrunnflötur nýrra íbúðarhúsa verður 100 m² í stað 80 m².
- Bætt er við ákvæðum um þakgerð, gerð kvista, matjurtargarð, girðingar ofl.
- Bætt er við ákvæði um að skipulagsnefnd sé heimilt að víkja frá einstökum ákvæðum skilmála ef færð eru góð rök fyrir því að útfærslan virði einkenni byggðarinnar og markmið deiliskipulagsins.
- Kvöðum um fornleifar er breytt.
- Kvöðum um einstök býli breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti.
- Kvöðum og umfjöllun um Grænagarð er breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti og á aðalskipulagsuppdrætti.

Skipulagsnefnd lagði til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:
- Ein íbúðarhúslóð verði bætt við norðan Pálshúsa, Pálshús 4.
- Landi Nýjabæjar 2 verði skipt upp í tvær íbúðarhúsalóðir, Nýjabæ 2a (núverandi hús) og Nýjabæ 2b (nýtt hús)
- Lögun lóðar umhverfis Grjóta (Hausastaðakot) verði breytt.

Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan er í samræmi við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðaholts og Garðahverfis og var samþykkt á síðasta fundi nefndarinnar. Voru tillögurnar auglýstar samhliða en hvorki athugasemdir né umsagnir gáfu tilefni til breytingar á aðalskipulagstillögunni.
Lögð fram greinargerð umhverfissviðs þar sem fram kemur innihald þeirra athugasemda og tillaga að svörum Garðabæjar við þeim.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsuppdrætti:

Almennar breytingar:
- Afmarkaðar eru lóðir utan um núverandi byggingar á svæðinu.
- Nýjum lóðum fjölgar alls um 6 á eftirfarandi býlum: Katrínarkoti, Hlíð, Miðengi, Görðum, Nýjabæ og Eystri-Dysjum.
- Nýjar lóðir verða um 900 m² að stærð, staðsetningu og lögun lóða og byggingarreita er breytt í kjölfar samráðs við ábúendur eða vegna fornminja.
- Heimreiðum að nýjum lóðum er breytt.
Stígar og aðgengi:
- Bætt öryggi og aðgengi gangandi á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar. Hraðalækkandi aðgerðir og gönguþveranir eru tilgreindar á uppdrætti á þessu svæði.
- Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir þar sem göngustígur þverar Garðaveg hjá Garðakirkju.
- Bætt er við stofnstíg samhliða Garðavegi og Garðaholtsvegi í samræmi við aðalskipulag.
- Gönguleið meðfram Garðavegi breytt í tengistíg í samræmi við flokkun í aðalskipulagi.
- Flokkun stígsins meðfram ströndinni í Garðahverfi er breytt til samræmis við flokkun hans í aðalskipulagi sem útivistarstíg. Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir við upphaf sama stígs við Aukatjörn.
Grænigarður, Garðar, Garðaholt og Krókur:
- Afmörkun deiliskipulagssvæðisins er breytt þannig að hún nær einnig yfir gömlu bæjartorfuna Höll.
- Afmörkuð er lóð við húsið Grænagarð.
- Aðkoma að Grænagarði frá kjarna Garðaholts er skilgreind á uppdrætti og bætt við leiðbeinandi legu stíga innan garðsins. Þá er skilgreindur byggingarreitur innan Grænagarðs með skilmálum fyrir lítil mannvirki sem tengjast starfsemi og rekstri almenningsgarðs s.s. fyrir áhaldageymslu, garðhýsi eða annað.
- Gert er ráð fyrir minjasvæði milli Garðakirkju og íbúðarhúss í Görðum. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsgreinargerð:
- Sett eru ákvæði um smáhýsi á lóðum.
- Hámarksgrunnflötur nýrra íbúðarhúsa verður 100 m² í stað 80 m².
- Bætt er við ákvæðum um þakgerð, gerð kvista, matjurtargarð, girðingar ofl.
- Bætt er við ákvæði um að skipulagsnefnd sé heimilt að víkja frá einstökum ákvæðum skilmála ef færð eru góð rök fyrir því að útfærslan virði einkenni byggðarinnar og markmið deiliskipulagsins.
- Kvöðum um fornleifar er breytt.
- Kvöðum um einstök býli breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti.
- Kvöðum og umfjöllun um Grænagarð er breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti og á aðalskipulagsuppdrætti.

Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:
- Ein íbúðarhúslóð verði bætt við norðan Pálshúsa, Pálshús 4.
- Landi Nýjabæjar 2 verði skipt upp í tvær íbúðarhúsalóðir, Nýjabæ 2a (núverandi hús) og Nýjabæ 2b (nýtt hús)
- Lögun lóðar umhverfis Grjóta (Hausastaðakot) verði breytt.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan er í samræmi við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðaholts og Garðahverfis og var samþykkt á síðasta fundi nefndarinnar. Voru tillögurnar auglýstar samhliða en hvorki athugasemdir né umsagnir gáfu tilefni til breytingar á aðalskipulagstillögunni.
Lögð fram greinargerð umhverfissviðs þar sem fram kemur innihald þeirra athugasemda og tillaga að svörum Garðabæjar við þeim.

Baldur Ó. Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd G-listans í Garðabæ:

Fulltrúi Garðabæjarlistans ítrekar enn fyrri bókanir og mótmælir enn þeim áherslum og vinnubrögðum sem lögð eru til grundvallar við gerð svokallaðs skipulags fyrir Garðahverfi á Gaðaholti.
Nú er það að raungerast sem undirritaður óttaðist og varaði við þegar í upphafi með bókun þegar þessi skipulagsgjörningur var kynntur og samþykktur. Þá varaði ég ítrekað m.a. við nákvæmlega því sem hér er að gerst, að húsum á bæjartorfunum sem hér fjallað um, myndi fjölga smám saman og grunnflöturinn þeirra stækka þar til framkallaðist undarlega samsett og óskipulögð þyrping húsað um öll tún á svæðinu og í framhaldi meðfylgjandi fasteigna brask í anda þekktra hverfa hér í bæ. Þá verður of seint að snú við. Framlögð tillaga er auk þess ekki gott skipulag, heldur í besta falli tilviljanakennd og sístækkandi óreiða.

Minni jafnframt á fyrri bókanir um þetta sama mál; sú fyrsta á fundi skipulagsnefndar 11. janúar 2012.


Björg Fenger leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd D-listans í Garðabæ:

Deiliskipulag Garðahverfis tók gildi árið 2013. Skipulagssvæðið tekur til 85 ha af um 250 ha svæði Garðaholts og Garðahrauns. Í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016?2030 er Garðahverfið skilgreint sem landbúnaðarsvæði þar sem lögð er áhersla á vernd menningar- og náttúruminja enda hefur þar varðveist einstakt búsetulandslag, sem á rætur allt aftur til miðalda.
Markmið breytinganna nú er að laga lóðafyrirkomulag, byggingarreiti og byggingarskilmála að þörfum uppbyggingar á svæðinu, í kjölfar samráðs við ábúendur, þannig að þeir styðji við og styrki þau verndarsjónarmið sem liggja til grundvallar í deiliskipulaginu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt umsögnum og athugasemdum sem borist hafa. Lögð fram greining skipulagsráðgjafa á athugasemdum og umsögnum ásamt tillögu að viðbrögðum.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

07

32 (22-26). fundur

Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri kynnti breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

17. (969). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 21. nóvember 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis. Tillagan hefur verið í mótun undanfarna mánuði í samráði við ábúendur í Garðahverfi. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsuppdrætti: Almennar breytingar: -Afmarkaðar eru lóðir utan um núverandi byggingar á svæðinu. -Nýjum lóðum fjölgar alls um 6 á eftirfarandi býlum: Katrínarkoti, Hlíð, Miðengi, Görðum, Nýjabæ og Eystri-Dysjum. -Nýjar lóðir verða um 900 m², staðsetningu og lögun lóða og byggingarreita er breytt í kjölfar samráðs eða vegna fornminja. -Heimreiðum að nýjum lóðum er breytt. Stígar og aðgengi: -Bætt öryggi og aðgengi gangandi á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar. Hraðalækkandi aðgerðir og gönguþveranir eru tilgreindar á uppdrætti á þessu svæði. -Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir þar sem göngustígur þverar Garðaveg hjá Garðakirkju. -Bætt er við stofnstíg samhliða Garðavegi og Garðaholtsvegi í samræmi við aðalskipulag. -Gönguleið meðfram Garðavegi breytt í tengistíg í samræmi við flokkun í aðalskipulagi. -Flokkun stígsins meðfram ströndinni í Garðahverfi er breytt til samræmis við flokkun hans í aðalskipulagi sem útivistarstíg. Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir við upphaf sama stígs við Aukatjörn. Grænigarður, Garðar, Garðaholt og Krókur: -Afmörkun deiliskipulagssvæðisins er breytt þannig að hún nær einnig yfir gömlu bæjartorfuna Höll. -Afmörkuð er lóð við húsið Grænagarð. -Aðkoma að Grænagarði frá kjarna Garðaholts er skilgreind á uppdrætti og bætt við leiðbeinandi legu stíga innan garðsins. Þá er skilgreindur byggingarreitur innan Grænagarðs með skilmálum fyrir lítil mannvirki sem tengjast starfsemi og rekstri almenningsgarðs s.s. fyrir áhaldageymslu, garðhýsi eða annað. -Gert er ráð fyrir minjasvæði milli Garðakirkju og íbúðarhúss í Görðum. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsgreinargerð: -Sett eru ákvæði um smáhýsi á lóðum. -Hámarksgrunnflötur nýrra íbúðarhúsa verður 100 m2 í stað 80 m2. -Bætt er við ákvæðum um þakgerð, gerð kvista, matjurtargarð, girðingar ofl. -Bætt er við ákvæði um að skipulagsnefnd sé heimilt að víkja frá einstökum ákvæðum skilmála ef færð eru góð rök fyrir því að útfærslan virði einkenni byggðarinnar og markmið deiliskipulagsins. -Kvöðum um fornleifar er breytt. -Kvöðum um einstök býli breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti. -Kvöðum og umfjöllun um Grænagarð er breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti og á aðalskipulagsuppdrætti. Skipulagsnefnd samþykkti með þremur atkvæðum að vísa breytingartillögu til auglýsingar í samræmi við 41.gr. skipulagslagslaga nr. 123/2010 og sbr. 1. mgr. 43.gr. sömu laga. Samþykkt með 8 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, HRG, BDG) gegn 3 (ÞÞ, IA, GK).

Bæjarráð Garðabæjar

09

43. (2191). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 21. nóvember 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis. Tillagan hefur verið í mótun undanfarna mánuði í samráði við ábúendur í Garðahverfi.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsuppdrætti:
Almennar breytingar:
-Afmarkaðar eru lóðir utan um núverandi byggingar á svæðinu.
-Nýjum lóðum fjölgar alls um 6 á eftirfarandi býlum: Katrínarkoti, Hlíð, Miðengi, Görðum, Nýjabæ og Eystri-Dysjum.
-Nýjar lóðir verða um 900 m², staðsetningu og lögun lóða og byggingarreita er breytt í kjölfar samráðs eða vegna fornminja.
-Heimreiðum að nýjum lóðum er breytt.
Stígar og aðgengi:
-Bætt öryggi og aðgengi gangandi á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar. Hraðalækkandi aðgerðir og gönguþveranir eru tilgreindar á uppdrætti á þessu svæði.
-Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir þar sem göngustígur þverar Garðaveg hjá Garðakirkju.
-Bætt er við stofnstíg samhliða Garðavegi og Garðaholtsvegi í samræmi við aðalskipulag.
-Gönguleið meðfram Garðavegi breytt í tengistíg í samræmi við flokkun í aðalskipulagi.
-Flokkun stígsins meðfram ströndinni í Garðahverfi er breytt til samræmis við flokkun hans í aðalskipulagi sem útivistarstíg. Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir við upphaf sama stígs við Aukatjörn.
Grænigarður, Garðar, Garðaholt og Krókur:
-Afmörkun deiliskipulagssvæðisins er breytt þannig að hún nær einnig yfir gömlu bæjartorfuna Höll.
-Afmörkuð er lóð við húsið Grænagarð.
-Aðkoma að Grænagarði frá kjarna Garðaholts er skilgreind á uppdrætti og bætt við leiðbeinandi legu stíga innan garðsins. Þá er skilgreindur byggingarreitur innan Grænagarðs með skilmálum fyrir lítil mannvirki sem tengjast starfsemi og rekstri almenningsgarðs s.s. fyrir áhaldageymslu, garðhýsi eða annað.
-Gert er ráð fyrir minjasvæði milli Garðakirkju og íbúðarhúss í Görðum.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsgreinargerð:
-Sett eru ákvæði um smáhýsi á lóðum.
-Hámarksgrunnflötur nýrra íbúðarhúsa verður 100 m2 í stað 80 m2.
-Bætt er við ákvæðum um þakgerð, gerð kvista, matjurtargarð, girðingar ofl.
-Bætt er við ákvæði um að skipulagsnefnd sé heimilt að víkja frá einstökum ákvæðum skilmála ef færð eru góð rök fyrir því að útfærslan virði einkenni byggðarinnar og markmið deiliskipulagsins.
-Kvöðum um fornleifar er breytt.
-Kvöðum um einstök býli breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti.
-Kvöðum og umfjöllun um Grænagarð er breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti og á aðalskipulagsuppdrætti.

Skipulagsnefnd samþykkti með þremur atkvæðum að vísa breytingartillögu til auglýsingar í samræmi við 41.gr. skipulagslagslaga nr. 123/2010 og sbr. 1. mgr. 43.gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

17. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis. Tillagan hefur verið í mótun undanfarna mánuði í samráði við ábúendur í Garðahverfi.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsuppdrætti:
Almennar breytingar:
-Afmarkaðar eru lóðir utan um núverandi byggingar á svæðinu.
-Nýjum lóðum fjölgar alls um 6 á eftirfarandi býlum: Katrínarkoti, Hlíð, Miðengi, Görðum, Nýjabæ og Eystri-Dysjum.
-Nýjar lóðir verða um 900 m², staðsetningu og lögun lóða og byggingarreita er breytt í kjölfar samráðs eða vegna fornminja.
-Heimreiðum að nýjum lóðum er breytt.
Stígar og aðgengi:
-Bætt öryggi og aðgengi gangandi á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar. Hraðalækkandi aðgerðir og gönguþveranir eru tilgreindar á uppdrætti á þessu svæði.
-Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir þar sem göngustígur þverar Garðaveg hjá Garðakirkju.
-Bætt er við stofnstíg samhliða Garðavegi og Garðaholtsvegi í samræmi við aðalskipulag.
-Gönguleið meðfram Garðavegi breytt í tengistíg í samræmi við flokkun í aðalskipulagi.
-Flokkun stígsins meðfram ströndinni í Garðahverfi er breytt til samræmis við flokkun hans í aðalskipulagi sem útivistarstíg. Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir við upphaf sama stígs við Aukatjörn.
Grænigarður, Garðar, Garðaholt og Krókur:
-Afmörkun deiliskipulagssvæðisins er breytt þannig að hún nær einnig yfir gömlu bæjartorfuna Höll.
-Afmörkuð er lóð við húsið Grænagarð.
-Aðkoma að Grænagarði frá kjarna Garðaholts er skilgreind á uppdrætti og bætt við leiðbeinandi legu stíga innan garðsins. Þá er skilgreindur byggingarreitur innan Grænagarðs með skilmálum fyrir lítil mannvirki sem tengjast starfsemi og rekstri almenningsgarðs s.s. fyrir áhaldageymslu, garðhýsi eða annað.
-Gert er ráð fyrir minjasvæði milli Garðakirkju og íbúðarhúss í Görðum.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsgreinargerð:
-Sett eru ákvæði um smáhýsi á lóðum.
-Hámarksgrunnflötur nýrra íbúðarhúsa verður 100 m2 í stað 80 m2.
-Bætt er við ákvæðum um þakgerð, gerð kvista, matjurtargarð, girðingar ofl.
-Bætt er við ákvæði um að skipulagsnefnd sé heimilt að víkja frá einstökum ákvæðum skilmála ef færð eru góð rök fyrir því að útfærslan virði einkenni byggðarinnar og markmið deiliskipulagsins.
-Kvöðum um fornleifar er breytt.
-Kvöðum um einstök býli breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti.
-Kvöðum og umfjöllun um Grænagarð er breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti og á aðalskipulagsuppdrætti.

Skipulagsnefnd samþykkir með þremur atkvæðum að vísa breytingartillögu til auglýsingar í samræmi við 41.gr. skipulagslagslaga nr. 123/2010 og sbr. 1. mgr. 43.gr. sömu laga.
Baldur Ó. Svavarsson greiðir atkvæði gegn tillögunni og Guðlaugur Kristmundsson situr hjá.

Baldur Ó. Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun:
"Fulltrúi Garðabæjarlistans ítrekar enn fyrri bókanir og mótmælir enn þeim áherslum og vinnubrögðum sem lögð eru til grundvallar við gerð svokallaðs skipulags fyrir Garðahverfi á Garðaholti.
Nú er það að raungerast sem undirritaður óttaðist og varaði við þegar í upphafi með bókun þegar þessi skipulagsgjörningur var kynntur og samþykktur. Þá varaði ég ítrekað m.a. við nákvæmlega því sem hér er að gerst, að húsum á bæjartorfunum sem hér fjallað um, myndi fjölga smám saman og grunnflöturinn þeirra stækka þar til framkallaðist undarlega samsett og óskipulögð þyrping húsað um öll tún á svæðinu og í framhaldi meðfylgjandi fasteigna brasks í anda þekktra hverfa hér í bæ . Þá verður of seint að snú við.
Umrædd bókun var gerð á fundi skipulagsnefndar 11. janúar 2012 - hér hluti hennar:
Byggðin á svæðinu er síður en svo aðlaðandi í dag og ekkert í þessu skipulagi sem tryggir að svo verði ekki áfram um ókomin ár. Eftir einhver árabil munu þetta þó verða verðmættar eignir þegar búskapur leggst endanlega af á svæðinu. Þá munu kröfur um aukið byggingarmagn gerast háværari. Kröfur um stærri byggingareiti og flerri hús. Þegar ber á þessum kröfum sbr. athugasemd um skipulagið sem fylgir fundarboði. Ekkert í skipulaginu tryggir gæði þeirra nýbygginga. Þeir byggingaskilmálar sem fyrirliggja í skilmálum eru óraunhæfir og frekar í ætt við draumkennda sýn á svæðið sem einhverskonar íslenskt Amish-hverfi í anda Árbæjarsafns. Þó það sé vilji áhugamann um svæðið að frysta þarna tímann og gamalt gisið byggðamynstur, þá er ekki víst að framtíðareigendur hafi áhuga á því markmiði.
Þessi bókun er í fullu gildi enn og á hér óþægilega vel við.
Minna má á að í upphafi var ætlunin að „vernda“ byggðina með því að heimila nokkur smáhús á hverri bæjartorfu. Hvert um sig ekki vera stærra en 60 m² að grunnnfleti, kjallari hæð og ris í anda gömlu húsana í Þingholtunum. Það var falleg rómantísk draumsýn. Það kom þegar í ljós hversu ígrundað þessi sýn var, því ákveðið að breyta um kúrs og grunnflöturinn stækkaður í 70 m², á þeim sama fundi og kynnt var. Síðan hefur hann verið hífður upp í 80 m² og hefur svo verið undanfarin misseri, en ekkert gerst í uppbyggingarmálum - Í bókuninni sagði jafnframt :
Hvað skýrir þann gjörning og hvað liggur að baki því að vernda byggingarétt á örfáum smájörðum í miðju höfuðborgarsvæðisins. Þessar ?jarðir? og byggingaréttur á þeim mun verða bitbein fasteiganslala og braskara eftir ekki svo mörg ár ásamt barátta fyrir frekari byggingarétti. Fleirri hús og stærri eftir því sem eigendum/erfingjum að hverri jörð fjölgar. Þarna mun myndast hiða nýja Arnarnes í Garðabæ ef fram fer sem horfir.
Nú á einmitt að fjölga lóðum og heimila mun stærri hús eða allt að 300 m² einbýli á hveri lóð.
Verðmæti þessa lands sem hér um ræðir og möguleikar eru óumdeildir og er eign okkar bæjarbúa. Undiritaður hefur ítrekað hvatt bæjaryfirvöld til að reikna þetta verðmæti sem hér er fórnað sem minningarreitur á grunni verndunar svokallaðs byggðaminnsturs 20 aldar. Jafnframt hvatt til þessa að horft verði til skipulagðari og metnaðarfyllri uppbyggingar og en hér er boðið upp á, nú á tímum kröfu um þéttari og arðbærari byggð. Þá verði horft til Garðholts sem heild."


Björg Fenger leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihlutans í skipulagsnefnd:
"Garðahverfið var deiliskipulagt í heild árið 2013 og tekur það til 85 hektara af um 250 hektara svæði Garðaholts. Í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er Garðahverfið skilgreint sem landbúnaðarsvæði þar sem lögð er áhersla á vernd menningar- og náttúruminja enda hefur þar varðveist einstakt búsetulandslag, sem á rætur allt aftur til miðalda.
Markmið breytinganna nú er að laga lóðafyrirkomulag, byggingarreiti og byggingarskilmála að þörfum uppbyggingar á svæðinu, í kjölfar samráðs við landeigendur, þannig að þeir styðji við og styrki þau verndarsjónarmið sem liggja til grundvallar deiliskipulaginu."


Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

16. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir innihaldi tillögunnar. Afgreiðslu málsins frestað.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

15. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðarhverfis.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

3. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni auglýsingu.
4 erindi með athugasemdum hafa borist og þau lögð fram.
Vísað til skoðunar og úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.

Baldur Ó.Svavarsson lagði fram eftirfarandi bókun:
Minni enn á fyrri bókanir, viðvaranir og ábendingar varðandi svokallaða uppbyggingu og verndun byggðamynsturs 20. aldar í Garðahverfi (?) ? Þær ná mörg ár aftur í tímann. Framkomnar athugasemdir íbúa á svæðinu við byggingaskilmálum í skipulaginu sbr. meðfylgjandi kynningu og fundargögn og viðbrögð við þeim eru það sem á leikhúsmáli er kallað tragíkómík ! Nýlunda er að þar er varað við afleiðingum af lífrænum áburði við túnrækt á svæðinu. Með öðrum orðum, varað við skítalykt vegna mykjudreifingar sem eru einkenni vorverka til sveita og mörg okkar þekkja frá því að hafa verið í sveit. Þá er þar einnig varað við hættu af landbúnaðartækjum gangvart börnum á svæðinu. Umvandinar vegna furðulegra skilmála um húsagerð- og stærðir koma ekki á óvart enda þeir skilmálar greinlega unnir af vankunnáttu um húshönnun og hýbýli - nú til dags. Þær athugsemdir eru reyndar nákvæmlega þær sem undirritaður hefur staðhæft að kæmu fram eins og áður hefur verið minnt á. Bygginaskilmálar nýbygginga eru með ólíkindum og í engum takti við þessa öld - né þá síðustu ef út í það er farið. Undirritaður hefur jafnframt staðhæft að meirihlutinn myndi gefa eftir og víkja frá þessum skilmálum.- Fari svo, stendur ekki steinn yfir steini í þessu svokallaða skipulagi. Nú á tímum bæði íbúða- og lóðaskorts skemmtir meirihlutinn í bænum sér við sér við að hanna og byggja einhverjar fortíðarbyggð á besta og verðmætasta byggingasvæði sem fyrirfinnst á öllu höfuðborgarsvæðinu. Svæði sem hýst gæti allt að 7000 manna byggð í vel skipulagðri, fallegri blandaðri byggð sérbýlis og fjölbýlis við sjávarsíðuna ? fyrir alla. Í Garðahverfi er nú gríðarlegum verðmætum og tækifærum okkar bæjarbúa, fórnað á altari fortíðarhyggju og stundargamans meirihluta Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.
Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd.

Bæjarráð Garðabæjar

14

23. (1981). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga. Í tillögunni felst m.a. að gert er ráð fyrir að göngustígur beint frá Garðaholti að Garðakirkju verði óbreyttur en að einnig verði gert ráð fyrir tengingu göngustígs meðfram Garðavegi að aðkomuvegi að Görðum. Stígur þvert yfir túnið verði hinsvegar ekki lagður nema með samþykki lóðarhafa að Görðum. Gert er ráð fyrir nýrri lóð fyrir íbúðarhús við Nýjabæ 2 og Eystri Dysjar í samræmi við óskir ábúenda.
Tillagan skal auglýst samhliða auglýsingu tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis á Garðaholti og í Garðahverfi.
Tillagan skal kynnt bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi Garðahverfis að lokinni forkynningu. Lagðar fram þær ábendingar sem borist hafa.
Skipulagsnefnd telur ekki ástæðu til þess að víkja frá ákvæðum gildandi deiliskipulags hvað varðar flatarmál nýrra íbúðarhúsa. Í kynningu Alta ehf á síðasta fundi nefndarinnar voru sýnd dæmi um íbúðarhús frá þeim tíma sem flest íbúðarhús í Garðahverfi voru byggð en grunnflötur þeirra var jafnan minni en deiliskipulag heimilar. Auk Garðahverfis voru tekin dæmi úr Hafnarfirði.
Vandað var til deiliskipulags Garðahverfis þegar það var í mótun og nefndin leggur áherslu á að ákvæðum deiliskipulagsins sé fylgt fast eftir til þess að markmiðum þess um yfirbragð byggðarinnar náist. Skipulagsnefnd bendir hinsvegar á að full ástæða er til þess að skoða tillögur að íbúðarhúsum með opnum hug þegar þar að kemur og útilokar ekki að vikið verði að einhverju leyti frá ákvæðum skipulags ef það er mat nefndarinnar að útfærsla byggingar falli vel að markimiðum deiliskipulagsins.
Eins og fram kom í kynningu Alta ehf þá var við deiliskipulagningu Garðahverfis lögð áhersla á að nýbyggingar yrðu hnappsettar ásamt þeim býlum sem eru þar fyrir með það að tilgangi að túnin milli bæjanna haldi sér og að hver þyrping myndi endurspegla það búsetulandslag sem deiliskipulaginu er ætlað að viðhalda. Þessvegna leggur nefndin til að nýjar byggingar verði staðsettar eins og deiliskipulag gerir ráð fyrir.
Skipulagsnefnd leggur til að ákvæði um göngustíg beint frá Garðaholti að Garðakirku verði óbreytt en að einnig verði gert ráð fyrir tengingu meðfram Garðavegi og aðkomuvegi að Görðum. Stígur þvert yfir túnið verði hinsvegar ekki lagður nema með samþykki eigenda að Görðum.
Skipulagsnefnd leggur til að gert verði ráð fyrir nýrri lóð fyrir íbúðarhús við Nýjabæ 2 og Eystri Dysjar í samræmi við óskir ábúenda. Sömu ákvæði skulu gilda um þær byggingar og um önnur íbúðarhús innan þess svæðis í Garðahverfi sem skilgreint er sem landbúnaðarland í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.
Meirihluti skipulagsnefndar samþykkir að vísa tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis með ofangreindum breytingum til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga. Skal hún auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðaholts og Garðahverfis.
Ingvar Arnarson situr hjá við afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

7. fundur

Drífa Árnadóttir hjá Alta kynnti úrvinnslu á innsendum ábendingum sem borist hafa í forkynningu á tillögu að breytingum á deiliskipulagi Garðahverfis. Farið var yfir þær forsendur og markmið sem lágu til grundvallar við mótun deiliskipulagsins.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá deiliskipulagsráðgjafa og skipulagssstjóra.

Baldur Ó.Svavarsson fulltrúi G-listans lagði fram eftirfarandi bókun:
"Það er ekki að undra að íbúar hvái yfir skilmálum þessa furðu skipulagsáforma og sendi inn athugasemdir hver á fætur öðrum - enda með miklum fortíðar ólíkindum.
Framkomnar ábendingar við byggingaskilmálum skipulagsins eru nákvæmlega þær sem undirritaður hefur varað við og staðhæft að kæmu fram.
Jafnframt staðhæfði undirritaður að meirihlutinn myndi gefa eftir og víkja frá þessum skilmálum.
Ef svo fer, þá stendur ekki steinn yfir steini yfir þessum draumkenndu áformum.
Hér er ekki bara fórnað milljörðum af möglegum tekjustofni okkar bæjarbúa, heldur og frábæru 70 hektara framtíðarbyggingarlandi fyrir hundruðir bæjarbúa, á einum besta stað á öllu höfuðborgarsvæðinu. Fórnað fyrir óræða draumsýn sem er að breytast í andhverfu sína.
Hefst nú væntanlega seinna tímabil þessa furðu; nefnilega lóðabraskið.
Allt í boði meirihlutans! "

Sigurður Guðmundsson lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihluta skipulagsnefndar:
"Garðahverfið var deiliskipulagt árið 2013 í heild sinni og er þar um að ræða 79 hektara af u.þ.b. 420 hekturum Garðaholts. Samkvæmt Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 hefur Garðahverfið minjaverndarsjónarmið að leiðarljósi og er skilgreint sem landbúnaðarsvæði.
Áhersla er á menningar, náttúruminjar og einstakt búsetulandslag sem varðveist hefur og að gera svæðið aðgengilegt til útivistar og náttúruskoðunar. Garðahverfið nýtur auk þess verndar frá árinu 2017 samkvæmt lögum um verndarsvæði í byggð."

Skipulagsnefnd Garðabæjar

17

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ábendingar sem borist hafa á grenndarkynningartíma lagðar fram. Ábendingum vísað til úrvinnslu deiliskipulagsráðgjafa
og tækni- og umhverfissviðs.
Baldur Ó. Svavarsson greiðir atkvæði á móti afgreiðslu meirihlutans og tekur undir innsendar athugasemdir.
Baldur Ó Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun:
"Minni enn á fyrri bókanir, viðvaranir og ábendingar varðandi svokallað uppbyggingu og „verndun byggðamynsturs 20. aldar í Garðahverfi“ - Þær sem telja orðið á annantuginn og ná mörg ár aftur í tímann.Framkomnar athugasemdir íbúa á svæðinu við byggingaskilmálum í skipulaginu sbr. fundargögn, eru nákvæmlega þær sem undirritaður hefur varað við og staðhæft að kæmu fram. Jafnframt staðhæfðir undirritaður að meirihlutinn myndi gefa eftir og víkja frá þessum skilmálum. Byggingaskilmálar nýbygginga eru með ólíkindum og í engum takti við þessa öld né þá síðustu.Ekki þarf að fjölyrða frekar um meðferðina á þessu hverfi og glötuðum möguleikum þess. Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd."
Sigurður Guðmundsson formaður skipulagsnefndar leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihluta :
"Garðahverfið var deiliskipulagt árið 2013 í heild sinni og er þar um að ræða 79 hektara af u.þ.b. 420 hekturum Garðaholts. Samkvæmt Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 hefur Garðahverfið minjaverndarsjónarmið að leiðarljósi og er skilgreint sem landbúnaðarsvæði.
Áhersla er á menningar og náttúruminjar og að gera svæðið aðgengilegt til útivistar og náttúruskoðunar. Garðahverfið nýtur auk þess verndar frá árinu 2017 samkvæmt lögum um verndarsvæði í byggð."

Bæjarstjórn Garðabæjar

18

4. (882). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

19

8. (1966). fundur

Á fund bæjarráð komu Halldóra Hreggviðsdóttir og Herborg Árnadóttir starfsmenn ráðgjafafyrirtækisins Alta og kynntu hugmyndafræði og þróun skipulags í Garðahverfi. Farið var yfir markmið skipulagsins, stefnur og skilmála, gerð grein fyrir svæðinu sem verndarsvæði í byggð og hugmyndum um uppbyggingu.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

20

3. (881). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á lóðarmörkum og byggingarreitum í Katrínarkoti, Háteigi, Hausastöðum og Pálshúsum, breyttri afmörkun Grænagarðs og að skilgreind verði lóð umhverfis núverandi íbúðarhús í Grænagarði.
Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar. (Mál nr. 2010078)

Bæjarráð Garðabæjar

21

6. (1964). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á lóðarmörkum og byggingarreitum í Katrínarkoti, Háteigi, Hausastöðum og Pálshúsum, breyttri afmörkun Grænagarðs og að skilgreind verði lóð umhverfis núverandi íbúðarhús í Grænagarði.
Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.

Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir að boða deiliskipulagshöfunda á fund bæjarráðs til að fara nánar yfir forsendur og þróun skipulagsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

22

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á lóðarmörkum og byggingarreitum í Katrínarkoti, Háteigi, Hausastöðum og Pálshúsum. Tillagan gerir einnig ráð fyrir breyttri afmörkun almenningsgarðsins Grænagarðs og að skilgreind verði íbúðarhúslóð umhverfis núverandi íbúðarhús í Grænagarði.
Meirhluti skipulagsnefndar (4 af 5) vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillaga að breytingu aðalskipulags verði kynnt samhliða.

Fulltrúi minnihlutans Baldur Ó. Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaður fulltrúi minnihlutans hefur marg varað við vanreifuðu einkavæddu deiliskipulagi Garðahverfis. Enn eru kynntar breytingar á þessum áformum sem nú nálgast fullnustu og úthlutun.
Hættan á skipulagslausri uppbygginu þessa svæðis er sannlega staðreynd skv. þessum gögnum. Þarna er að verða til enn eitt bútasaumað skipulagið svo vitnað sé í þekkt orðfæri.
Enn skal minnt á að hér er fórnað einhverju glæsilegasta byggingasvæði á öllu höfuðborgarsvæðinu, í gæluverkefni, greitt af einkaaðila í bænum. Hér er aðeins horft til fortíðar , en framtíðin er látin lönd og leið.
Hugsum til framtíðar, nýtum landkosti og verðmæti á ábyrgan, sjálbæran og framsýnan hátt. Framköllum á Garðaholti heildstætt skipulag með framsýnni, þéttri lágreistri og sjálfbærri byggð í anda þess sem þáverandi meirihluti sjálfstæðismanna í bænum lagði til fyrir 20 árum síðan. Sögulegar minjar og vel skipulagða markvissa byggð má flétta saman í fallegan og forvitnilegan vef."

Bæjarstjórn Garðabæjar

23

16. (875). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar sbr. skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á deiliskipulagi Garðahverfis. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna hana almenningi, sbr. 2. mgr. 40. gr. sömu laga. (Mál nr. 2010078) Ingvar Arnarson, Sara Dögg Svanhildardóttir og Harpa Þorsteinsdóttir greiddu atkvæði gegn tillögunni.

Bæjarráð Garðabæjar

24

43. (1951). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar sbr. skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á deiliskipulagi Garðahverfis. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna hana almenningi, sbr. 2. mgr. 40. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

25

11. fundur

Lögð fram sameiginleg lýsing á breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis og Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-3030 og sem gerir ráð fyrir breytingum á Garðaholti. Opið svæði 1.89 Op og Íbúðarsvæði 1.76 Íb breyta um lögun til samræmis við tillögur að breytingum deiliskipulags Garðahverfis. Tákn fyrir landnýtingu 1.81 M, 1.77 S og 1.80 S verða lagfærð en þau voru ranglega framsett á aðaluppdrætti aðalskipulagsins
Meirhluti skipulagsnefndar samþykkir lýsinguna í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Baldur Ó.Svavarsson hafnar framlagðri lýsingu og vísar til bókunar við fundarlið hér á undan.