Beint í efni

23. (1981). fundur

22.06.2021
Bæjarráð Garðabæjar

23. (1981). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

22.06.2021

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2101289

01

Kynning á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Á fund bæjarráðs mættu Hildigunnur Árnadóttir, umsjónarfélagsráðgjafi og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði. Gerðu þær grein fyrir aðdraganda að setningu laga um samþættingu þjónustu í þagu farsældar barna og þeim megin markmiðum sem stefnt er að með gildistöku laganna. Lögin taka gildi 1. janúar 2022 en hefja þarf undirbúning að innleiðingu þeirra strax í haust.

Edda Björg Sigurðardóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi, Pála Marie Einarsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi, Guðrún Hrefna Sverrisdóttir, félagsráðgjafi í barnavernd og Berglind B. Sveinbjörnsdóttir, ráðgjafi í barnavernd, sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Björg Fenger, bæjarfulltrúi, tengdist fundinum undir þessum dagskrárlið með fjarfundarbúnaði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2105117

02

Espilundur 1 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Kristni Sigurþórssyni, kt. 190972-5429, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Espilundi 1.

Málsnúmer 2106055

03

Lindarflöt 43 Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Kjartani Haukssyni, kt. 250270-4969, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Lindarflöt 43.

Málsnúmer 2104529

04

Sunnuflöt 17 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita GB Global, kt. 411014-0960, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Sunnuflöt 17.

Málsnúmer 2010078

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga. Í tillögunni felst m.a. að gert er ráð fyrir að göngustígur beint frá Garðaholti að Garðakirkju verði óbreyttur en að einnig verði gert ráð fyrir tengingu göngustígs meðfram Garðavegi að aðkomuvegi að Görðum. Stígur þvert yfir túnið verði hinsvegar ekki lagður nema með samþykki lóðarhafa að Görðum. Gert er ráð fyrir nýrri lóð fyrir íbúðarhús við Nýjabæ 2 og Eystri Dysjar í samræmi við óskir ábúenda.

Tillagan skal auglýst samhliða auglýsingu tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis á Garðaholti og í Garðahverfi.

Tillagan skal kynnt bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði.

Málsnúmer 2103105

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir lagningu göngustígs um Ungmennafélagslund á Vífilsstöðum.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu göngustígs um Ungmennafélagslund á Vífilsstöðum. Framkvæmdin er á svæði þar sem ekki er fyrir hendi deiliskipulag.

Málsnúmer 2105626

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi byggingarleyfi fyrir girðingu við lóðarmörk lóðarinnar við Seinakur 8.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um girðingu allt að 1,96 m við lóðarmörk að götu lóðarinnar við Seinakur 8 með vísan til nýsamþykktra reglna um girðingar og skjólveggi.

Gunnar Valur Gíslason, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2103104

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir göngustíg við Garðakirkjugarð.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir göngustíg neðan kirkjugarðs Garðakirkju og að Garðavör. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.

Málsnúmer 2102539

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 9.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um gerð viðbótar bifreiðastæðis í norðausturhorni lóðarinnar við Blikanes 9, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna öllum eigendum lóða við Blikanes.

Málsnúmer 2006646

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Glaðheima í Kópavogi.

Lögð fram.

Málsnúmer 2104528

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu fyrir skipulag Vatnsendahvarfs í Kópavogi.

Lögð fram.

Málsnúmer 2106334

12

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir gististað að Hliðsnesi 6b.

Staðsetning gististaðar er á svæði sem í aðalskipulagi er skilgreint sem íbúðarsvæði en deiliskipulag liggur ekki fyrir. Bæjarráð samþykkir að grenndarkynna eigendum aðliggjandi lóða viðkomandi starfsemi ásamt að láta byggingarfulltrúa meta hvort mannvirkið uppfylli kröfur laga um mannvirki.

Málsnúmer 2106343

13

Bréf Félags eldri borgara í Garðabæ varðandi húsnæðismál, heilsueflingu og samstarf og samvinnu, dags. 15.06.21.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til umfjöllunar í fjölskylduráði, öldungaráði og íþrótta- og tómstundaráði.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.

Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun:

„Garðabæjarlistinn fagnar því að Garðabær styðji við félag eldri borgara með auknu fjármagni og geri félaginu þannig kleift að gera samning við Janus heilsueflingu að veruleika og um leið marg framlagða tillögu okkar Garðabæjarlistans um að innleiða Janus heilsueflingu verkefni sem tekur sérstaklega utan um lýðheilsu eldri borgara með faglegum og markvissum hætti.“

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2106361

14

Tillaga Garðabæjarlistans um könnun meðal leik- og grunnskólakennara þar sem lagt er mat á starfsumhverfi, líðan og starfskjör.

Lögð fram eftirfarandi tillaga Garðabæjarlistans.

„Bæjarráð felur fræðslu- og menningarsviði að láta gera könnun meðal leik- og grunnskólakennara í leik- og grunnskólum Garðabæjar þar sem kallað verður eftir mati á starfsaðstæðum, líðan í starfi og afstöðu til starfskjara.“

Greinargerð

Nú þegar menntastefna Garðabæjar er til endurskoðunar er ekki úr vegi að fá fram mat leik- og grunnskólakennara á starfsaðstæðum, líðan í starfi og afstöðu til starfskjara. Framúrskarandi skólastarf byggir á öflugu fagfólki sem aftur byggir á vellíðan í starfi. Garðabær vill bjóða upp á framúrskarandi skólastarf og við endurskoðun menntastefnu sveitarfélagsins er við hæfi að rýna í starfsumhverfi, líðan og starfskjör þessa mikilvæga hóps. En ekki er síður mikilvægt að ná fram eins og hægt er hvaða áhrif óvenjuleg starfsskilyrði sem sköpuðust við glímuna við heimsfaraldurinn Covid 19 hefur haft.

Bæjarstjóri upplýsti um að á vegum Garðabæjar hafa reglulega verið gerðar kannanir meðal leik- og grunnskólakennara þar sem lagt er mat á starfsumhverfi og líðan.

Könnunin Skólapúlsinn var síðast lögð fyrir í mars 2020 og verður aftur lögð fyrir í mars 2022 þar sem kannað er m.a. annars starfsaðstæður og líðan í starfi en að undanskildum starfskjörum enda eru þau afgreidd á öðrum vettvangi. Leikskólafulltrúi er að undirbúa að leggja fyrir könnun í haust meðal skólastjórnenda leikskóla um áhrif styttingar vinnuvikunnar á starfsumhverfi skólanna í samstarfi við mannauðsstjóra

Þá hefur Dr. Hjördís Sigursteinsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri, sent starfsfólki Garðabæjar beiðni um þátttöku í rannsókninni „Heilsa, líðan og starfstengd viðhorf starfsfólks íslenskra sveitarfélaga“ og snérust fimm spurninganna um áhrif Covid-19 á störf þess.

Bæjarstjóri lagði til að vísa framkominni tillögu til fræðslu- og menningarsviðs til að leggja mat á hvort ástæða sé til að hafa viðbótarspurningar til að kanna nánar hvaða áhrif óvenjuleg starfsskilyrði sem sköpuðust við glímuna við heimsfaraldurinn Covid 19 hefur haft.

Tillaga bæjarstjóra samþykkt.

Málsnúmer 2106306

15

Bréf Hrafnistu varðandi uppsögn samnings um rekstur hjúkrunarheimilisins Ísafoldar, dags. 14.06.21.

Lögð fram uppsögn Sjómannadagsráðs og Hrafnistu, dags. 14. júní 2021 á samningi við Garðabæ um rekstur hjúkrunarheimilisins Ísafoldar, dags. 6. janúar 2017. Uppsögnin mun taka gildi 1. janúar 2022.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir að með bréfi til heilbrigðisráðuneytisins, dags. 18. maí sl. hafi Garðabær farið fram á viðræður við ráðuneytið um yfirtöku ríkisins á hjúkrunarheimilinu Ísafold. Jafnframt upplýsti bæjarstjóri að ráðuneytinu hafi verið með tölvupósti, dags. 15. júní sl. tilkynnt um uppsögn Hrafnistu ásamt því að minna á beiðni um viðræður við ráðuneytið um yfirtöku ríkisins á hjúkrunarheimilinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2106371

16

Aðalfundarboð Betri Samgangna ohf. 2021.

Lagt fram.

Málsnúmer 2105127

17

Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Lögð frameftirfarandi tilboð í framkvæmdir við gatnagerð í 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

PK verk ehf. kr. 587.455.190

Loftorka Reykjavík ehf. kr. 598.704.765

Grafa og grjót ehf. kr. 541.499.700

Óskatak ehf. kr. 570.370.150

Háfell ehf. kr. 527.200.800

Kostnaðaráætlun kr. 575.539.500

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Háfells ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun