Endurnýjun samnings um rekstur hjúkrunarheimilis.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (913). fundur
Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi 12. tl., samstarfssamning við Sjómannadagsráð um starfsemi Ísafoldar.
„Bæjarstjórn samþykkir samstarfssamning við Sjómannadagsráð um starfsemi hjúkrunarheimilis og dagdvalar á Ísafold.“ [Mál nr. 2106306]
Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék sæti við umræðu og afgreiðslu á þessum lið fundargerðarinnar.
Ingvar Arnarson, annar varaforseti tók við stjórn fundarins við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
43. (2050). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
03
23. (1981). fundur
Lögð fram uppsögn Sjómannadagsráðs og Hrafnistu, dags. 14. júní 2021 á samningi við Garðabæ um rekstur hjúkrunarheimilisins Ísafoldar, dags. 6. janúar 2017. Uppsögnin mun taka gildi 1. janúar 2022.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að með bréfi til heilbrigðisráðuneytisins, dags. 18. maí sl. hafi Garðabær farið fram á viðræður við ráðuneytið um yfirtöku ríkisins á hjúkrunarheimilinu Ísafold. Jafnframt upplýsti bæjarstjóri að ráðuneytinu hafi verið með tölvupósti, dags. 15. júní sl. tilkynnt um uppsögn Hrafnistu ásamt því að minna á beiðni um viðræður við ráðuneytið um yfirtöku ríkisins á hjúkrunarheimilinu.