Beint í efni

43. (2050). fundur

29.11.2022
Bæjarráð Garðabæjar

43. (2050). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

29.11.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2106536

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - Viðauki nr. 5.

Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2022.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun 2022 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 5

Fjölskyldusvið

Vegna aukningar á þjónustu til fatlaðra einstaklinga sem m.a. þarfnast sólarhringsþjónustu þarf að bæta við fjárhagsáætlun ársins 95 m.kr.

Auknar tekjur frá Jöfnunarsjóði að fjárhæð 71 m.kr. koma til móts við þessa kostnaðaraukningu.

Stuðnings og stoðþjónusta fatlaðra 95.000.000 ýmsir bókhaldslyklar

Umferðar og samgöngumál

Erindi Strætó bs. sem lagt var fram í bæjarráði 4. október sl. um aukið rekstrarframlag vegna slæmrar fjárhagsstöðu Strætó bs. var samþykkt í bæjarstjórn 6. október sl.

Rekstrarframlag til Strætó bs. 39.000.000 10720-9195

Fræðslusvið

Vegna kjarasamninga við kennarafélögin þarf að bæta eftirfarandi við rekstrarframlög til einkaskóla. Bæjarreknum grunn- og leikskólum var bætt kjarasamningshækkun kennarafélaganna með viðauka 3. Nemendum hefur fjölgað umfram áætlun í Urriðaholtsskóla voru 149 í október 2021 en eru 219 í október 2022.

Rekstrarframlög til einkaskóla 65.000.000 ýmsir bókhaldslyklar

Urriðaholtsskóli 50.000.000 ýmsir bókhaldslyklar

Fjármagnsliðir

Verðbólga á árinu 2022 hefur verið umtalsvert meiri en opinberar áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Gert var ráð fyrir 3% hækkun í áætlun ársins eins og opinberar hagspár gerðu ráð fyrir en verðbólgan er um 9%. Í framlögðu 6 mánaða uppgjöri Garðabæjar voru fjármagnsgjöld 597 m.kr. umfram áætlun. Sambærileg þróun hefur verið á síðari hluta ársins.

Fjármagnsliðir 1.106.000.000 ýmsir bókhaldslyklar

Samtals aukin útgjöld 1.355.000.000

Fjármögnun:

Jöfnunarsjóður málefni fatlaðs fólks -71.000.000 00100-0148

Samþættingarframlag Jöfnunarsjóðs -40.000.000 00100-0152

Staðgreiðsla útsvars -200.000.000 00010-0021

Samtals auknar tekjur -311.000.000

Mismunur lækkun rekstrarafgangs 1.044.000.000

Rekstrarafgangur a.t.t. til viðauka 1-5 1.482.872.000

Málsnúmer 2206112

02

Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026).

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum um álagningu fasteignaskatta og þjónustugjalda sem verða til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar 1. desember nk. ásamt tillögum um breytingar milli umræðna. Lagt fram yfirlit yfir mál sem vísað hefur verið til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2211254

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Austurhraun 9.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna stækkunar byggingarreits á lóðinni við Austurhraun 9. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.

Málsnúmer 2206114

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Jafnakur 7.

Á fundinum komu fram nánari upplýsingar og áform lóðarhafa varðandi hellulagt svæði meðfram húshlið en það mun ekki verða nýtt sem bifreiðastæði.

Bæjarráð vísar málinu að nýju til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2211035

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla vegna lóðanna við Tinnuvelli 8-10.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi hesthúsahverfis við Kjóavelli í tilefni umsóknar um að sameina byggingarreiti lóðanna við Tinnuvelli 8 og 10. Grenndarkynna skal tillöguna lóðarhöfum í hesthúsahverfinu, stjórn Hestamannafélagsins Spretts og skipulagsyfirvöldum í Kópavogi en um er að ræða sameiginlegt deiliskipulag Garðabæjar og Kópavogs.

Málsnúmer 2211042

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um skiptingu einbýlishússins við Eikarás 1 í tvíbýlishús.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögum skipulagsnefndar að hafna umsókn húseigenda að Eikarási 1 um skiptingu eignarinnar í tvær óskiptar eignir.

Málsnúmer 2211372

07

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um öruggt farsímasamband á þjóðvegum, 46. mál., dags. 18.11.22.

Lagt fram.

Málsnúmer 2201384

08

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi tillögu að loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið, dags. 18.11.22.

Málsnúmer 2211436

09

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi umdæmisráð barnaverndar, dags. 23.11.22.

Bæjarráð samþykkir að vísa samningi Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kjósarhrepps, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar um rekstur sameignlegs umdæmisráðs barnaverndar til afgreiðslu bæjarstjórnar og til umfjöllunar í fjölskylduráði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2208429

10

Minnisblað um úttekt á stöðu frístunda- og tómstundastarfs fyrir börn á gunnskólaaldri í Garðabæ.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði nánari grein fyrir efnisinntaki minnisblaðsins og mögulegum sviðsmyndum til að mæta helstu áskorunum í tómstunda- og frístundastarfi nemenda í Garðabæ.

Bæjarráð vísaði minnisblaðinu til fræðslu- og menningarsviðs, skólanefndar og íþrótta- og tómstundaráði til frekari greiningar og umfjöllunar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2211475

11

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi birtingu grænbókar í sveitarstjórnarmálum í samráðsgátt, dags. 25.11.22.

Lögð fram.

Málsnúmer 2106306

12

Drög að samstarfssamningi við Sjómannadagsráð um starfsemi Ísafoldar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2108168

13

Bréf Land lögmanna varðandi landskika í landi Selskarðs, dags. 09.11.22.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.

Málsnúmer 2211473

14

Ráðning í starf sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs.

Á fundinn mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og gerði grein fyrir úrvinnslu umsókna um starf sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs. Fram kom að alls bárust 41 umsókn um starfið en tveir umsækjendur hafa dregið umsókn sína til baka. Farið var yfir allar umsóknir og lagt mat á umsækjendur út frá þeim menntunar- og hæfniskröfum sem tilgreindar voru í auglýsingu. Sjö umsækjendur voru boðaðir í viðtöl og fjórir af þeim voru boðaðir í annað viðtal þar sem þeir kynntu verkefni sem fyrir þá var lagt og sátu fyrir svörum í framhaldi.

Embættismenn aðrir en bæjarritari og bæjarstjóri véku af fundi undir þessum dagskrárlið.

Margrét Bjarnadóttir, vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.