Eikarás 1 - Skipta eign í 2 fastanúmer - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (913). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn húseigenda að Eikarási 1 um skiptingu eignarinnar í tvær óskiptar eignir.“ [Mál nr. 2211042]
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
43. (2050). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögum skipulagsnefndar að hafna umsókn húseigenda að Eikarási 1 um skiptingu eignarinnar í tvær óskiptar eignir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
11. fundur
Lögð fram fyrirspurn húseigenda um að einbýlishúsi sé breytt í tvíbýlishús með því að skipta eigninni upp.
Skipulagsnefnd svarar fyrirspurn neikvætt á þeirri forsendu að skipting eigna í grónu einbýlishúsahverfi hafi neikvæð áhrif á stöðu hverfisins sem einbýlishúsahverfis. Nefndin leggst hinsvegar ekki gegn því að útbúnar séu aukaíbúðir í einbýlishúsum sem stuðlar að framboði á góðu leiguhúsnæð og góðri nýtingu eigna. Þess eru fjölmörg dæmi að umsóknum um skiptingu einbýlishúsa hafi verið hafnað, ekki síst vegna andstöðu eiganda í viðkomandi einbýlishúsahverfum.