Beint í efni

Loftslagsstefna fyrir höfuðborgarsvæðið.

Málsnúmer 2201384

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (921). fundur

Lögð fram tillaga að loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins sem samþykkt var á fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem haldinn var 20. febrúar 2023.

Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið og felur bæjarstjóra umboð til að undirrita stefnuna ásamt yfirlýsingu um áframhaldandi samstarf sveitarfélaganna vegna innleiðingar stefnunnar.

Bæjarráð Garðabæjar

02

12. (2065). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið og felur bæjarstjóra umboð til undirritunar viðeigandi skjala.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

2. (917). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið. Loftlagsstefnan hefur verið kynnt í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd. Fyrir liggur jákvæð afstaða umhverfisnefndar.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls um tillögu að loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um tillögu að loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið.

Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið.

Við samþykkt stefnunnar verða aðgerðir sem þar eru kynntar hafðar að leiðarljósi við mótun á aðgerðaráætlun Garðabæjar í loftslagsmálum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

2. (917). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

05

4. (2057). fundur

Loftlagsstefna fyrir höfuðborgarsvæðið hefur verið til umfjöllunar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.

Fyrir liggur jákvæð umsögn umhverfisnefndar.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

06

7 (22-26). fundur

Jón Kjartan Ágústson svæðisskipulagsstjóri kynnti loftlagsstefnu höfuðborgarsvæðisins. Umhverfisnefnd samþykkir loftlagsstefnu höfuðborgarsvæðisins og vill benda á vinnu við neysluspor sem er að hefjast í þessu samhengi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

12. fundur

Loftlagsstefnan lögð fram.

Bæjarráð Garðabæjar

08

43. (2050). fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

09

43. fundur

Umhverfisnefnd samþykkir stefnuna og vinna við mótun aðgerðaráætlunar fyrir Garðabæ er hafin.

Bæjarráð Garðabæjar

10

10. (2017). fundur

Afgreiðslu frestað þar sem málið er enn til umfjöllunar hjá umhverfisnefnd.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

11

41. fundur

Lögð fram og rædd. Umhverfisnefnd er ánægð með drög af loftlagsstefnu en hún verður rýnd frekar og tekinn fyrir á næsta fundi.

Bæjarráð Garðabæjar

12

3. (2010). fundur