6. (921). fundur
6. (921). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
13.04.2023
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
- Hlynur Elías Bæringsson - varabæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð fundar bæjarstjórnar frá 16. mars 2023 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2303030F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 21/3 ´23.
Björg Fenger, ræddi 9. tl., tilkynningu frá innviðaráðuneyti varðandi Hvítbók um samgöngur ásamt mati á umhverfismatsskýrslu. Björg kvað það fagnaðarefni fyrir Garðabæ að í umhverfisskýrslu með drögum af samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 kemur fram að framkvæmd við Flóttamannaveg (Elliðavatnsvegur, Vífilsstaðavegur-Kaldárselsvegur) er á dagskrá og uppfylli markmið um bætt öryggi, jákvæða byggðaþróun og greiðfærni.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða
Málsnúmer 2303041F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 28/3 ´23.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., tillögur um breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og áréttaði bókanir í fundargerðum bæjarráðs 21. mars og 28 mars 2023.
„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins árétta bókanir sínar frá fundum bæjarráðs 21. mars sl. og 28. mars sl. þar sem gerðar eru athugasemdir við ákvæði í drögum að frumvarpi til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga um að ef sveitarfélag fullnýtir ekki heimild sína til álagningar útsvars skuli lækka framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til viðkomandi sveitarfélags að fjárhæð sem nemur mismun á hámarksálagningu útsvars og álagningu sem sveitarfélagið hefur samþykkt eins og lögmælt er. Í tilviki Garðabæjar getur slík skerðing verið um 600 m.kr. á ári.
Ákvæðið vegur að sjálfstjórnarrétti sveitarfélaga til að ráða málum sínum sjálf og felur í sér þvingun gagnvart sveitarfélögum til að leggja á hámarksútsvar sem fær ekki staðist með vísan til þess að það er á valdi hverrar sveitarstjórnar að ákvarða álagningarhlutfall útsvars innan ákveðinna marka samkvæmt ákvæðum laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 m.s.br.
Þá verður að telja að slík þvingunaraðgerð geti ekki samrýmst markmiðum og hlutverki Jöfnunarsjóðs um að koma að útgjaldaþörf sveitarfélaga m.a. vegna verkefna sem sveitarfélög hafa tekið við af ríkinu eins og rekstur grunnskólans.
Bent er á að við þessar aðstæður væri eðlilegt að endurskoða hlutdeild Jöfnunarsjóðs af útsvarsstofni sveitarfélaga vegna reksturs grunnskólans en hlutdeildin hefur verið óbreytt 0,77% frá árinu 1996. Á sama tíma hefur starfsumhverfi grunnskólans tekið miklum breytingum og er orðið mun einsleitara.“
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., tillögur um breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 2. tl., tillögur um breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., tillögur um breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., tillögur um breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Almar Guðmundsson, 2. tl., tillögur um breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Fundargerðin sem er 6 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2303051F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 4/4 ´23.
Björg Fenger, ræddi 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er varðar stígakerfi í þéttbýli og almenningssamgöngur.
Fundargerðin sem er 20 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 2303020F
04
Fundargerð fjölskylduráðs frá 15/3 ´23.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., móttöku flóttafólks. Gunnar Valur þakkaði starfsmönnum fjölskyldusviðs og fulltrúum í fjölskylduráði fyrir aðkomu að málinu og hvernig staðið hefur verið að þjónustu og aðstoð við flóttafólk sem komið hefur í Garðabæ.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1.tl., móttöku flóttafólks og 5. tl., tillögu um að tryggja frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins hvað varðar þjónustu við fatlað fólk.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2303011F
05
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 8/3 ´23.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 3. tl., jazzhátíð Garðabæjar og kynningu Ómars Guðjónssonar, gítarleikara sem er nýr listrænn stjórnandi jazzhátíðar.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2303042F
06
Fundargerð skipulagsnefndar frá 30/3 ´23.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2302034F
07
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 15/3 ´23.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 2. tl., úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla og óskaði öllum þeim sem fengu styrk til hamingju.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2302035F
08
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 22/3 ´23.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., íbúakönnun og færði starfsmönnum og stjórnendum skólanna í Garðabæ þakkir fyrir þeirra góðu störf en í könnuninni kemur fram að mikil ánægja er meðal íbúa með starfsemi skólanna í Garðabæ. Þá ræddi Sigríður Hulda 2. tl., verkferla er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði skólanna.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2301664
09
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 27/3 ´23.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2303053
10
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 14/3 ´23.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., ársreikning Sorpu bs. árið 2022.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., stöðu könnunar á fýsileika uppbyggingar á sorpbrennslu.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 2. tl., stöðu könnunar á fýsileika uppbyggingar á sorpbrennslu og svaraði fyrirspurn.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2301453
11
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 8/3 og 17/3 ´23.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1. tl. 367. f. og 1. tl., 368 f., útboð á akstri strætó, 3. tl., f. 368. f ársreikning Strætó bs. fyrir árið 2022.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl. f. 367 og 1. tl., fg 368 f., útboð á akstri strætó.
Almar Guðmundsson, ræddi málefni Strætó og vék að viljayfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaganna varðandi samgöngusáttmálann sem nýlega var undirrituð þar sem fram kemur að rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu verði tryggður með aðkomu sveitarfélaga og ríkisins.
Björg Fenger, ræddi málefni Strætó bs. og nauðsyn þess að niðurstöður í greiningu fjármálastjóra sveitarfélaganna á rekstri Strætó liggi fyrir sem fyrst.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
Málsnúmer 2302122
12
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 17/3 ´23.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2301318
13
Fundargerð stjórnar SSH frá 27/3 ´23.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2301673
14
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 17/3 ´23.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., bættar almenningssamgöngur til Keflavíkurflugvallar og 2. tl., áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns og bókun fulltrúa Garðabæjar í nefndinni.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2303672
15
Fundargerð eigendafundar Strætó bs. frá 27/3 ´23.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2303126
16
Endurskoðun afrekstefnu íþrótta- og tómstundaráðs.
Lögð fram tillaga að endurskoðun afreksstefnu íþrótta- og tómstundaráðs sem samþykkt var á fundi íþrótta- og tómstundaráðs sem haldinn var 8. mars 2023.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, kvaddi sér hljóðs og gerði nánari grein fyrir endurskoðun afreksstefnu íþrótta- og tómstundaráðs og fór yfir helstu breytingar sem varða úthlutun á afreksstyrkjum.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða endurskoðun afreksstefnu íþrótta- og tómstundaráðs.
Málsnúmer 2201384
17
Loftslagsstefna fyrir höfuðborgarsvæðið.
Lögð fram tillaga að loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins sem samþykkt var á fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem haldinn var 20. febrúar 2023.
Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið og felur bæjarstjóra umboð til að undirrita stefnuna ásamt yfirlýsingu um áframhaldandi samstarf sveitarfélaganna vegna innleiðingar stefnunnar.
Málsnúmer 2208745
18
Þjónustusamningur um samræmda móttöku flóttafólks.
Lagður fram til afgreiðslu samningur sem tekur til þjónustu móttökusveitarfélags vegna samræmdrar móttöku flóttafólks samkvæmt kröfulýsingu sem félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur gefið út. Samningsaðilar eru félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Fjölmenningarsetur og Garðabær. Þá er gert ráð fyrir að samningur verði áritaður af fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Almar Guðmundsson, tók til máls og þakkaði öllum þeim sem komið hafa að undirbúningi málsins þakkir fyrir þeirra þátt að málinu.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Bæjarstjórn Garðabæjar vill taka vel á móti flóttafólki og telur mikilvægt að mæta áfram með festu og framsýni ríkum þjónustuþörfum flóttafólks sem búsett er í Garðabæ og flóttafólks sem fyrirséð er að flytja muni til bæjarins á næstu mánuðum. Skilvirk þjónusta og stuðningur við flóttafólk stuðlar að árangursríkri aðlögun í íslensku samfélagi og minnkar stórlega líkur á margþættum félagslegum vanda í framtíðinni með tilheyrandi samfélagslegum kostnaði.
Garðabær hefur gagnrýnt vanfjármögnun ríkisins á stuðningi og þjónustu við flóttabörn innan skólakerfisins og tekur undir með fjölskylduráði um að framlög sem hafa komið vegna skólamála flóttabarna séu mun lægri en raunkostnaður gefur til kynna.“
Þorbjörg Þorvaldóttir, tók til máls. Þorbjörg tók undir framlagða bókun og lýsti ánægju með framgang málsins.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða þjónustusamning um samræmda móttöku flóttafólks og felur bæjarstjóra umboð til undirritunar hans.
Málsnúmer 2208619
19
Ársreikningur Garðabæjar 2022. (Fyrri umræða)
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2022. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Almar þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut að góðum rekstri bæjarins. Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Björg Fenger , tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2022 endurspeglar sterka fjárhagslega stöðu og staðfestir lágt skuldahlutfall í samanburði við flest önnur sveitarfélög. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð og sjóðstreymið sterkt.
Það er mikilvægt að tekjur af sölu byggingarréttar eru nýttar til framkvæmda og uppbyggingar innviða. Uppbygging íbúðarsvæða er í fullum gangi og mikil þörf verður á áframhaldandi fjárfestingum í innviðum bæjarins á næstu árum.
Um þessar mundir eru ýmsar áskoranir í rekstri sveitarfélaga. Viðvarandi verðbólga og mikil hækkun vaxta hafa neikvæð áhrif á rekstrarkostnað og fjármagnsgjöld sveitarfélaganna og vanfjármögnun ríkisins á þeim mikilvæga og vaxandi málaflokki sem málefni fatlaðs fólks eru, þyngir rekstur sveitarfélaganna verulega.
Við núverandi aðstæður hefur því sjaldan verið mikilvægara að ábyrg fjármálastjórn ríki í sveitarfélaginu og að íbúar búi að ráðdeild í rekstri bæjarsjóðs. Á sama tíma þarf þjónusta við íbúa að vera góð eins og staðfest hefur verið í könnunum og álögum á íbúa stillt í hóf.
Um þessa mikilvægu hagsmuni bæjarbúa vilja bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins standa vörð um hér eftir sem hingað til.“
Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2022 til síðari umræðu í bæjarstjórn sem er fyrirhuguð 4. maí 2023.