Fundargerð bæjarráðs frá 28/3 ´23.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (921). fundur
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., tillögur um breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og áréttaði bókanir í fundargerðum bæjarráðs 21. mars og 28 mars 2023.
„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins árétta bókanir sínar frá fundum bæjarráðs 21. mars sl. og 28. mars sl. þar sem gerðar eru athugasemdir við ákvæði í drögum að frumvarpi til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga um að ef sveitarfélag fullnýtir ekki heimild sína til álagningar útsvars skuli lækka framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til viðkomandi sveitarfélags að fjárhæð sem nemur mismun á hámarksálagningu útsvars og álagningu sem sveitarfélagið hefur samþykkt eins og lögmælt er. Í tilviki Garðabæjar getur slík skerðing verið um 600 m.kr. á ári.
Ákvæðið vegur að sjálfstjórnarrétti sveitarfélaga til að ráða málum sínum sjálf og felur í sér þvingun gagnvart sveitarfélögum til að leggja á hámarksútsvar sem fær ekki staðist með vísan til þess að það er á valdi hverrar sveitarstjórnar að ákvarða álagningarhlutfall útsvars innan ákveðinna marka samkvæmt ákvæðum laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 m.s.br.
Þá verður að telja að slík þvingunaraðgerð geti ekki samrýmst markmiðum og hlutverki Jöfnunarsjóðs um að koma að útgjaldaþörf sveitarfélaga m.a. vegna verkefna sem sveitarfélög hafa tekið við af ríkinu eins og rekstur grunnskólans.
Bent er á að við þessar aðstæður væri eðlilegt að endurskoða hlutdeild Jöfnunarsjóðs af útsvarsstofni sveitarfélaga vegna reksturs grunnskólans en hlutdeildin hefur verið óbreytt 0,77% frá árinu 1996. Á sama tíma hefur starfsumhverfi grunnskólans tekið miklum breytingum og er orðið mun einsleitara.“
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., tillögur um breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 2. tl., tillögur um breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., tillögur um breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., tillögur um breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Almar Guðmundsson, 2. tl., tillögur um breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Fundargerðin sem er 6 tl. er samþykkt samhljóða.