Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Ferill máls
Velferðarráð Garðabæjar
01
1. fundur
Viðauki þjónustusamnings um samræmda móttöku flóttafólks fyrir árið 2025 lagður fram til kynningar.
Viðauki þjónustusamnings um samræmda móttöku flóttafólks fyrir árið 2025 lagður fram til kynningar og umræðu.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
18. (951). fundur
Bæjarstjórn samþykkir viðauka þjónustusamnings milli félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og Garðabæjar, um samræmda móttöku flóttafólks sem undirritaður var 20. mars 2024. Viðaukinn varðar framlengingu gildistíma núgildandi samnings til og með 31. desember 2025.
Bæjarráð Garðabæjar
04
45. (2146). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka þjónustusamnings milli félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og Garðabæjar, um samræmda móttöku flóttafólks sem undirritaður var 20. mars 2024. Viðaukinn varðar framlengingu gildistíma núgildandi samnings til og með 31. desember 2025.
Bæjarráð Garðabæjar
05
25. (2126). fundur
Bæjarráð samþykkir viðauka þjónustusamnings milli félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og Garðabæjar, um samræmda móttöku flóttafólks sem undirritaður var 20. mars 2024. Viðaukinn varðar framlengingu gildistíma núgildandi samnings til og með 31. desember 2024.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
4. (937). fundur
Til afgreiðslu er þjónustusamningur við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og Vinnumálastofnun vegna samræmdar móttöku flóttafólks. Samningurinn er til sex mánaða eða frá 1. janúar til 30. júní 2024 og er miðað við að fjöldi notenda geti verið allt að 140.
Gunnar Valur Gíslason, gerði nánari grein fyrir ákvæði um fjölda þeirra sem gert er ráð fyrir að fái þjónustu.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.
Bæjarráð Garðabæjar
07
9. (2110). fundur
Sviðsstjóri velferðarsviðs gerði grein fyrir drögum að samningi um samræmda móttöku flóttafólks og lagði til að miða fjölda við 140 og framlengingu til sex mánaða eða til loka júnímánaðar. Einnig var farið yfir reynslu af framkvæmd núverandi samnings.
Drögin voru lögð fram til kynningar í velferðarráði á fundi 28. febrúar 2024.
Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Velferðarráð Garðabæjar
08
2. fundur
Drög að samningi um samræmda móttöku flóttafólks fyrir árið 2024 lagður fram til kynningar.
Drög að samningi um samræmda móttöku flóttafólks fyrir árið 2024 lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
09
6. (921). fundur
Lagður fram til afgreiðslu samningur sem tekur til þjónustu móttökusveitarfélags vegna samræmdrar móttöku flóttafólks samkvæmt kröfulýsingu sem félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur gefið út. Samningsaðilar eru félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Fjölmenningarsetur og Garðabær. Þá er gert ráð fyrir að samningur verði áritaður af fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Almar Guðmundsson, tók til máls og þakkaði öllum þeim sem komið hafa að undirbúningi málsins þakkir fyrir þeirra þátt að málinu.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Bæjarstjórn Garðabæjar vill taka vel á móti flóttafólki og telur mikilvægt að mæta áfram með festu og framsýni ríkum þjónustuþörfum flóttafólks sem búsett er í Garðabæ og flóttafólks sem fyrirséð er að flytja muni til bæjarins á næstu mánuðum. Skilvirk þjónusta og stuðningur við flóttafólk stuðlar að árangursríkri aðlögun í íslensku samfélagi og minnkar stórlega líkur á margþættum félagslegum vanda í framtíðinni með tilheyrandi samfélagslegum kostnaði.
Garðabær hefur gagnrýnt vanfjármögnun ríkisins á stuðningi og þjónustu við flóttabörn innan skólakerfisins og tekur undir með fjölskylduráði um að framlög sem hafa komið vegna skólamála flóttabarna séu mun lægri en raunkostnaður gefur til kynna.“
Þorbjörg Þorvaldóttir, tók til máls. Þorbjörg tók undir framlagða bókun og lýsti ánægju með framgang málsins.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða þjónustusamning um samræmda móttöku flóttafólks og felur bæjarstjóra umboð til undirritunar hans.
Fjölskylduráð Garðabæjar
10
11. fundur
Lagt fram til umræðu.
Minnisblað Guðrúnar Jónsdóttur verkefnastjóra og Svanhildar Þengilsdóttur sviðsstjóra, dags. 16.12.2022 lagt fram til umræðu. Verkefnastjóri og sviðsstjóri gerðu grein fyrir stöðu mála varðandi mótttöku flóttfólks í Garðabæ.
Fjölskylduráð Garðabæjar
11
9. fundur
Drög að samningi um samræmda móttöku flóttafólks ásamt kröfulýsingu og kostnaðarlíkani.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri Garðabæjar vegna móttöku flóttafólks, mætti til fundar fjölskylduráðs og fór yfir samningsgögn og stöðu mála.