4. (937). fundur
4. (937). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
07.03.2024
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Guðfinnur Sigurvinsson - 1. varaforseti
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
- Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Harpa Þorsteinsdóttir - bæjarfulltrúi
- Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Guðfinnur Sigurvinsson, fyrsti varaforseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 15. febrúar 2024 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2402025F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 20/2 ´24.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 3. tl., niðurstöður rannsóknar meðal nemenda í grunnskólum Garðabæjar.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 6. tl., tilkynningu óbyggðanefndar varðandi kröfur fjármála- og efnahagsráðherra um þjóðlendur.
Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, tók fram að vegna tengsla greiðir hann ekki atkvæði um fundarlið nr. 5 (sátt í máli húsfélags Holtsvegar 31-32 gegn Garðabæ o.fl. er varðar byggingarframkvæmdir) en samþykkir fundargerðina að öðru leyti.
Málsnúmer 2402030F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 27/2 ´24.
Fundargerðin sem er 6 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2402041F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 5/3 ´24.
Almar Guðmundsson, ræddi 14. tl., málefni heilsugæslunnar í Garðabæ og fór fram á að samþykkt bæjarráðs verði bókuð í fundargerð bæjarstjórnar.
„Bæjarráð skorar á heilbrigðisráðherra að hefjast þegar handa við að leita tilboða í hentugt húsnæði fyrir heilsugæslu í Garðabæ þannig að mæta megi uppsafnaðri þörf fyrir þjónustu hratt og örugglega.“
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 14. tl., málefni heilsugæslunnar í Garðabæ.
Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2402016F
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 14/2 ´24.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, kvaddi sér hljóðs og óskaði Stjörnunni til hamingju með bikarmeistaratitla í hópfimleikum. Þá ræddi Hrannar Bragi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun, 3. tl. skýrslu um hvatapeninga árið 2023, og 6-15. tl., úthlutun afreksstyrkja.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 3. tl., skýrslu um hvatapeninga árið 2023.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl. skýrslu um hvatapeninga árið 2023.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, ræddi 3. tl., skýrslu um hvatapeninga árið 2023.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi að nýju 3. tl., skýrslu um hvatapeninga árið 2023.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 3. tl., skýrslu um hvatapeninga árið 2023.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju 3. tl., skýrslu um hvatapeninga árið 2023.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi að nýju 3. tl., skýrslu um hvatapeninga árið 2023.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2402015F
05
Fundargerð leikskólanefndar frá 14/2 ´24.
Margrét Bjarnadóttir, ræddi 1. og 2. tl., skóladagatöl fyrir árin 2024-2025 og 2025-2026, 3. tl., reglur um innritun leiksóla og 4. tl., heimsókn í Urriðaból við Holtsveg sem hefur tekið til starfa. Margrét færði þakkir til allra þeirra sem komið hafa að undirbúningi að opnun leikskólans.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., reglur um innritun barna í leikskóla og málefni leikskólans.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, ræddi 3. tl., reglur um innritun barna í leikskóla og málefni leikskólans.
Almar Guðmundson, ræddi 3. tl., reglur um innritun barna í leikskóla og málefni leikskólans.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2402023F
06
Fundargerð leikskólanefndar frá 28/2 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2402014F
07
Fundargerð umhverfisnefndar frá 14/2 ´24.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 6. tl., hreinsunarátak og vorhreinsun lóða.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2402031F
08
Fundargerð velferðarráðs frá 28/2 ´24.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., sem var bókaður sem trúnaðarmál, 3. tl., samning um samræmda móttöku flóttafólks, 5. tl., drög að jafnréttisáætlun Garðabæjar 2023-2026.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., samning um samræmda móttöku flóttafólks.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, ræddi 5. tl., drög að jafnréttisáætlun Garðabæjar 2023-2026.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 5. tl., drög að jafnréttisáætlun Garðabæjar 2023-2026 og 3. tl., samning um samræmda móttöku flóttafólks.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju 3. tl., samning um samræmda móttöku flóttafólks og 5. tl., drög að jafnréttisáætlun Garðabæjar 2023-2026.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 3. tl., samning um samræmda móttöku flóttafólks.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401141
09
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 26/2 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401133
10
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 20/2 ´24.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 2. tl., ársreikning Sorpu bs. fyrir árið 2023.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401134
11
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 16/2 ´24.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 4. tl., farþegatalningar 2023, 5. tl., næturstrætó, 7. tl., tilraunaverkefni um leigu á 18 metra vagni til notkunar í leiðarkerfi og 9. tl., tilboð bjóðenda í samkeppnisviðræðna útboði á aðkeyptum akstri.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401137
12
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 9/2 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401325
13
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 21/2 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401135
14
Fundargerðir stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 19/1 og 7/2 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401139
15
Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 19/2 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2307150
16
Breyting á gjaldskrá akstursþjónustu eldri borgara.
Lögð fram til afgreiðslu tillaga að breytingu á gjaldskrá um akstursþjónustu eldri borgara sem gerir ráð fyrir að gjald fyrir akstur í sérhæfða dagdvöl aldraðra verði sem nemur einu fargjaldi með almenningsvögnum en ekki eitt og hálft fargjald eins og almennt er gert ráð fyrir.
Almar Guðmundsson, gerði nánari grein fyrir breytingartillögunni.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breytingu á gjaldskrá fyrir akstursþjónustu eldri borgara í Garðabæ.
Málsnúmer 2208745
17
Samningur um samræmda móttöku flóttafólks.
Til afgreiðslu er þjónustusamningur við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og Vinnumálastofnun vegna samræmdar móttöku flóttafólks. Samningurinn er til sex mánaða eða frá 1. janúar til 30. júní 2024 og er miðað við að fjöldi notenda geti verið allt að 140.
Gunnar Valur Gíslason, gerði nánari grein fyrir ákvæði um fjölda þeirra sem gert er ráð fyrir að fái þjónustu.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.
Málsnúmer 2402209
18
Reglur um innritun í leikskóla.
Til afgreiðslu eru reglur um innritun barna í leikskóla Garðabæjar sem samþykktar voru á fundi leikskólanefndar 28. febrúar 2024 og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar á fundi bæjarráðs 5. mars 2024.
Almar Guðmundsson gerði nánari grein fyrir reglum um innritun barna í leikskóla Garðabæjar. Almar lagði fram tillögu um að bæjarráð fjalli um útfærslu á ákveðnu fráviki vegna innritunar barna.
„Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að útfæra frávik frá reglum sem tryggir að börn sem hafa verið sex mánuði eða lengur á biðlista fari ekki aftur fyrir umsóknir eldri barna sem eru nýskráð með lögheimili í Garðabæ."
Bæjarstjórn samþykkir reglur um innritun barna í leikskóla Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu um útfærslu á fráviki til bæjarráðs.