Beint í efni

Reglur um innritun í leikskóla

Málsnúmer 2402209

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (938). fundur



Leikskólanefnd Garðabæjar

02

18. fundur



G.Linda Udengard sviðsstjóri fór yfir samþykkt bæjarráðs frá 12. mars og kynningu um innritunarmál sem fram fór fyrir foreldra 18. mars kl. 12. Kynningin er aðgengileg á vef Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

10. (2111). fundur

Lögð fram eftirfarandi samþykkt bæjarstjórnar frá fundi 7. mars sl.

„Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að útfæra frávik frá reglum sem tryggir að börn sem hafa verið sex mánuði eða lengur á biðlista fari ekki aftur fyrir umsóknir eldri barna sem eru nýskráð með lögheimili í Garðabæ.“

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti og fór nánar yfir stöðu innritunar og biðlista hjá leikskólum Garðabæjar.

„Bæjarráð samþykkir að þau börn sem eru á biðlista og hafa verið lengur en 6 mánuði á listanum gangi tímabundið fyrir við úthlutun leikskólaplássa í mars. Miðað er við stöðuna á biðlista þann 8. mars 2024.“ (Um er að ræða 25 börn)

Bæjarráð samþykkir að frá og með 1. apríl verður ekki unnið úr nýjum umsóknum og flutningsumsóknum í allt að 30 daga. Þetta er gert til að þau börn sem komin eru á biðlista þann 1. apríl haldi sínum stað í listanum samkvæmt kennitölu. Vert er að taka fram að reglur um úthlutun gilda.“

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

4. (937). fundur

Til afgreiðslu eru reglur um innritun barna í leikskóla Garðabæjar sem samþykktar voru á fundi leikskólanefndar 28. febrúar 2024 og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar á fundi bæjarráðs 5. mars 2024.

Almar Guðmundsson gerði nánari grein fyrir reglum um innritun barna í leikskóla Garðabæjar. Almar lagði fram tillögu um að bæjarráð fjalli um útfærslu á ákveðnu fráviki vegna innritunar barna.

„Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að útfæra frávik frá reglum sem tryggir að börn sem hafa verið sex mánuði eða lengur á biðlista fari ekki aftur fyrir umsóknir eldri barna sem eru nýskráð með lögheimili í Garðabæ."

Bæjarstjórn samþykkir reglur um innritun barna í leikskóla Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu um útfærslu á fráviki til bæjarráðs.

Bæjarráð Garðabæjar

05

9. (2110). fundur

Bæjarráð vísar reglum um innritun í leikskóla til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Leikskólanefnd Garðabæjar

06

17. fundur

Lagt til fyrir leikskólanefnd til umræðu

Að loknum umræðum samþykkti leikskólanefnd einróma tillögur um breytingar á reglum um innritun í leikskóla. Tillögum vísað til bæjarráðs.

Bæjarráð Garðabæjar

07

7. (2108). fundur

Lögð fram til kynningar drög að reglum um innritun í leikskóla. Drögin hafa verið til umfjöllunar hjá leikskólanefnd og verða tekin fyrir að nýju á næsta fundi nefndarinnar sem fyrirhugaður er miðvikudaginn 28. febrúar nk.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir athugasemdum og ábendingum sem fram hafa komið. Einnig var upplýst um stöðu mála varðandi skráningu á dvalartímum barna í nýtt leikskólakerfi Völuna.

Leikskólanefnd Garðabæjar

08

16. fundur

Lagt til fyrir leikskólanefnd til umræðu

Umræður um breytingar á reglum um innritun í leikskóla. Ákveðið að taka málið aftur upp á fundi 28. febrúar 2024.