5. (938). fundur
5. (938). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
21.03.2024
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Bjarni Theódór Bjarnason - varabæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Harpa Þorsteinsdóttir - bæjarfulltrúi
- Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 7. mars 2024 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 12/3 ´24.
Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., tilkynningu frá Sambandi ísl. sveitarfélaga varðandi stuðning ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga í mars 2024.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., samskiptasáttmála Garðabæjar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., samskiptasáttmála Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 7 tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 19/3 ´24.
Enginn kvaddi sér hljóðs.
Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
2.10 - 2110128 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna landsvæðis á norðanverðum Arnarneshálsi (Arnarland).
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til landsvæðis á norðanverðum Arnarneshálsi (Arnarland). Áður en tillagan er auglýst skal hún send Skipulagsstofnun til athugunar samkvæmt 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.“ (Mál nr. 2110128)
Fylgiskjöl
2.4 - 2402136 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður vegna lóðanna við Útholt 5-9.
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður er varðar lóðirnar við Útholt 5-9, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að byggingarreitur miðlóðar minnkar og byggingarreitir endalóða stækka sem því nemur.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda/lóðarhafa“. (Mál nr. 2402136)
Fylgiskjöl
2.5 - 2403195 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar vegna lóðarinnar við Grásteinsmýri 1, 2 og 3.
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar. Tillagan gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða aukist úr 84 í 102.“ (Mál nr. 2403195)
Fylgiskjöl
2.6 - 2104418 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi vegna efnislosunar í Glerhallardýi.
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir efnislosun í Glerhallardýi. Um er að ræða losun til bráðabirgða fyrir allt að 30.600 m3 af jarðvegi þar til deiliskipulag Norðurness liggur fyrir. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði og aðliggjandi svæði ætluð undir golfvöll og mun efnið þá nýtast til landslagsmótunar. Að öðrum kosti þarf að flytja efni sem losnar vegna framkvæmda í Breiðumýri um langan veg með tilheyrandi neikvæðum umhverfisáhrifum.“ (Mál nr. 2104418)
Fylgiskjöl
2.7 - 2402112 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu byggingarleyfis vegna lóðarinnar við Engimýri 6.
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að vísa umsókn um byggingarleyfi vegna innri skipulagsbreytinga á einbýlishúsinu við Engimýri 6 til grenndarkynningar samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal umsóknina eigendum að Engimýri 3, 4, 5, 7, 8 og 10.“ (Mál nr. 2402112)
Fylgiskjöl
2.8 - 2302672 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður vegna lóðarinnar við Þorraholt 2 og 4.
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður vegna lóðarinnar við Þorraholt 2-4. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum.
- Hámarkshæð húss númer 2 hækkar um 2,5 m en breidd byggingarreitsins minnkar um 3 metra.
- Að austurhluti 1. hæðar í húsi númer 2 verði atvinnurými í stað bílageymslu.
- Að kjallarar verði 4 í stað 2-3.
- Að kjallari 2 verði atvinnurými í stað bílageymslu.
- Að 3.000 m2 bætist við bílageymslu í kjallara.
- Að staðsetning dælustöðvar innan lóðar færist til.
Vekja skal athygli eigenda annarra lóða við Þorraholt og við Útholt 2, 4, 6, 8 og 10 sem og við Útholt 1-3, 5-9 og 11-17 á auglýsingunni.“ (Mál nr. 2302672)
Fylgiskjöl
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 13/3 ´24.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1. tl., hönnun og undirbúning útboðs 3. áfanga Urriðaholtsskóla, 2. tl., samstarfsverkefni félaga í Garðabæ varðandi íþróttir fyrir alla og 3. tl., aðgerðaráætlun um Barnvænt samfélag í Garðabæ. Þá ræddi Hrannar Bragi undir önnur mál undirbúning að dagskrá íþróttaþings í Garðabæ sem er fyrirhugað í vor.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., samstarfsverkefni félaga í Garðabæ varðandi íþróttir fyrir alla.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi að nýju 2. tl., samstarfsverkefni félaga í Garðabæ varðandi íþróttir fyrir alla.
Fundargerðin lögð fram.
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 18/3 ´24.
Margrét Bjarnadóttir, ræddi 1. tl., reglur um innritun barna í leikskóla, 2. tl., erindi Hjallastefnunnar varðandi breytingu á starfsdegi, 3. tl., íbúa - og þjónustukönnun Gallup og 4. tl., aðgerðaráætlun um Barnvænt samfélag í Garðabæ.
Fundargerðin lögð fram.
4.1 - 2402209 - Reglur um innritun í leikskóla
Fylgiskjöl
4.2 - 2402322 - Erindi til skólanefnda leik- og grunnskóla frá Hjallastefnunni
Fylgiskjöl
4.3 - 2310233 - Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2023
Fylgiskjöl
4.4 - 2402243 - Unicef - stöðumat og aðgerðaráætlun Garðabæjar
Fylgiskjöl
05
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 11/3 ´24.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., samstarfssamning við Grósku, 4. tl., barnamenningarhátíð í Garðabæ og 7. tl., jazzþorpið í Garðabæ.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, ræddi 4. tl., barnamenningarhátíð í Garðabæ,
Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., barnamenningarhátíð í Garðabæ.
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 13/3 ´24.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi úthlutanir styrkja úr þróunarsjóði grunnskóla.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi úthlutanir styrkja úr þróunarsjóði grunnskóla.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, ræddi úthlutanir styrkja úr þróunarsjóði grunnskóla.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju úthlutanir styrkja úr þróunarsjóði grunnskóla.
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð umhverfisnefndar frá 13/3 ´24.
Björg Fenger, ræddi 3. tl., uppsetningu á skynjurum í grenndargámum og 6. tl., rekstrarskoðun leiksvæða á lóðum leikskóla og opnum svæðum í bænum.
Fundargerðin lögð fram.
11
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 8/3 ´24.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., kynningu á uppfærslu leiðbeininga fyrir hönnun hjólastíga og 5. tl., kynningu á stöðu uppfærslu verkefna samkvæmt samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Fundargerðin lögð fram.
12
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 16/2 ´24.
Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., fyrirhugaðar æfingar neyðarstjórna sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Fundargerðin lögð fram.
13
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 6/3 og 8/3 ´24.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi útboð á akstri Strætó bs.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi útboð á akstri Strætó bs. og vék að áskorun ungmennaráðs um bættar almenningssamgöngur sem fram kom á sameiginlegum fundi ráðsins með bæjarstjórn.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi útboð á akstri Strætó bs.
Fundargerðin lögð fram.
14
Kosning aðalfulltrúa í skipulagsnefnd.
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Kjartan Vilhjálmsson, Fífumýri 9, sem aðalfulltrúa í skipulagsnefnd í stað Lúðvíks Arnar Steinarssonar sem beðist hefur lausnar frá setu í skipulagsnefnd.
15
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 - lántaka.
Almar Guðmundsson gerði grein fyrir tillögu að lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Um er að ræða skammtímalán að fjárhæð kr. 1.000.000.000 með gjalddaga 18. september 2024, óverðtryggt með 11,32% vöxtum.
„Bæjarstjórn samþykkir lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.000.000.000. Um er að ræða skammtímalán með gjalddaga 18. september 2024, óverðtryggt með 11,32% vöxtum. Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, kt. 030572-2979, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita skilmála lánsins við Lánasjóð sveitarfélaga.“
16
Tillaga um að fella niður reglulegan fund bæjarstjórnar 4. apríl 2024.
Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt heimild í 3. mgr. 8. gr. samþykkta um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 að fella niður reglulegan fund bæjarstjórnar sem halda á fimmtudaginn 4. apríl 2024. Næsti reglulegi fundur bæjarstjórnar Garðabæjar verður 18. apríl 2024.“
Sigríður Hulda og Þorbjörg Þorvaldsdóttir, fluttu bæjarritara kveðjuorð og afhentu honum blómvönd að gjöf.