Beint í efni

10. (2111). fundur

12.03.2024
Bæjarráð Garðabæjar

10. (2111). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

12.03.2024

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2310002

01

Samskiptasáttmáli - eineltisáætlun. (Kynning)

Á fund bæjarráðs mætti Edda Björg Sigurðardóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi og gerði grein fyrir aðdraganda og helstu þáttum varðandi setningu samskiptasáttmála Garðabæjar.

Leiðarljós samskiptasáttmála Garðabæjar er að auka vellíðan, velferð, lífsgæði og heilsu barna. Samskiptasáttmálin verður innleiddur í skólastarfi í Garðabæ og á grunni hans gerð samskiptaáætlun sem er kynnt á hverju ári í öllum grunnskólum, frístundaheimilum og í félagsmiðstöðvum bæjarins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2305147

02

Erindi Ágústs Ólafssonar, lögmannns fyrir hönd lóðarhafa að Hraungörðum um skiptingu lóðar.

Lagt fram minnisblað skipulagsstjóra, dags. 26. febrúar 2024 varðandi möguleika á skiptingu lóðarinnar að Hraungörðum með tilliti til fjölgunar húsa á lóðinni.

Í niðurstöðu minnisblaðsins kemur fram að hugmyndir um skiptingu lóðarinnar fyrir raðhús eða fleiri en eitt einbýlishús gengur gegn megin markmiðum deiliskipulags Garðahrauns. Tillögu að staðsetningu eins einbýlishúss sunnan megin á lóð ásamt uppskiptingu lóðar og aðkomu innan lóðar mætti vísa til umfjöllunar í skipulagsnefnd.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2403026

03

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir reksturs gististaðar að Hliði.

Í umsókninni er farið fram á rekstrarleyfi fyrir starfsemi gististaðar að Hliði á Álftanesi.

Bæjaráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2402535

04

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um veitingaleyfi fyrir rekstur samkomusalar að Ránargrund 4 (Sjáland).

Í umsókninni er farið fram á veitingaleyfi fyrir starfsemi samkomusalar að Ránargrund 4. (Sjáland)

Bæjaráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2403138

05

Tilkynning frá Sambandi ísl. sveitarfélaga varðandi stuðning ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga í mars 2024, dags. 07.03.24.

Í tilkynningunni kemur fram að formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, hafi skrifað undir yfirlýsingu um stuðning ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga. Yfirlýsingin var gerð til að greiða fyrir gerð langtímakjarasamninga á vinnumarkaði með það að markmiði að kveða niður vexti og verðbólgu.

Í yfirlýsingunni kemur m.a. fram að sveitarfélög komi að því á samningstímanum ásamt ríkinu að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og að útfærð verði leið til að skólamáltíðir grunnskólabarna verði gjaldfrjálsar frá og með ágúst 2024 til loka samningstímans. Komi til þess mun ríkið greiða kostnaðarþátttöku sem gæti á landsvísu numið 4,0 milljörðum.

Fram kemur að ríkið og Samband íslenskra sveitarfélaga muni útfæra þetta og mun vinna við það fara af stað á næstu dögum og verða nánari upplýsingar þegar nær dregur.

Þá er því beint til sveitarstjórna að endurskoða gjaldskrárhækkanir sem tóku gildi um síðustu áramót er varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu. Miða skuli við að hækkun þessa árs verði ekki umfram 3,5 %. Þá verði gjaldskrárhækkunum stillt í hóf eins og nokkur kostur er á samningstímanum.

„Bæjarráð Garðabæjar fagnar því að nú er tækifæri til að allir aðilar á vinnumarkaði sameinist um skynsamlega langtíma kjarasamninga með áherslu á minni verðbólgu, lægri vexti, aukinn fyrirsjáanleika og þar með að skapa skilyrði fyrir stöðugleika í íslensku hagkerfi. Mikilvægt er að atvinnurekendur, þ.m.t. sveitarfélögin, og öll stéttarfélög á almennum og opinberum markaði lýsi yfir stuðningi við það fordæmi sem skapast hefur. Bæjarráð lýsir yfir vilja til að taka þátt í þeirri vegferð, meðal annars með endurskoðun gjaldskráa ársins 2024 með áherslu á barnafjölskyldur og fólki í viðkvæmri stöðu.“

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2402209

06

Samþykkt bæjarstjórnar um útfærslu á fráviki á reglum um innritun í leikskóla.

Lögð fram eftirfarandi samþykkt bæjarstjórnar frá fundi 7. mars sl.

„Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að útfæra frávik frá reglum sem tryggir að börn sem hafa verið sex mánuði eða lengur á biðlista fari ekki aftur fyrir umsóknir eldri barna sem eru nýskráð með lögheimili í Garðabæ.“

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti og fór nánar yfir stöðu innritunar og biðlista hjá leikskólum Garðabæjar.

„Bæjarráð samþykkir að þau börn sem eru á biðlista og hafa verið lengur en 6 mánuði á listanum gangi tímabundið fyrir við úthlutun leikskólaplássa í mars. Miðað er við stöðuna á biðlista þann 8. mars 2024.“ (Um er að ræða 25 börn)

Bæjarráð samþykkir að frá og með 1. apríl verður ekki unnið úr nýjum umsóknum og flutningsumsóknum í allt að 30 daga. Þetta er gert til að þau börn sem komin eru á biðlista þann 1. apríl haldi sínum stað í listanum samkvæmt kennitölu. Vert er að taka fram að reglur um úthlutun gilda.“

Málsnúmer 2403157

07

Bréf Garðakórsins varðandi styrk til starfsemi kórsins, dags. 07.03.24.

Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2024.