Samskiptasáttmáli - eineltisáætlun
Málsnúmer 2310002
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
26. fundur
Grunnskólafulltrúi fór yfir stöðu á innleiðingar Samskiptasáttmála Garðabæjar. Nú er unnið eftir verkferlum Samskiptasáttmála bæði hvað varðar þjálfun, fræðslu og inngrip ef upp koma samskiptamál.
Bæjarráð Garðabæjar
02
10. (2111). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Edda Björg Sigurðardóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi og gerði grein fyrir aðdraganda og helstu þáttum varðandi setningu samskiptasáttmála Garðabæjar.
Leiðarljós samskiptasáttmála Garðabæjar er að auka vellíðan, velferð, lífsgæði og heilsu barna. Samskiptasáttmálin verður innleiddur í skólastarfi í Garðabæ og á grunni hans gerð samskiptaáætlun sem er kynnt á hverju ári í öllum grunnskólum, frístundaheimilum og í félagsmiðstöðvum bæjarins.