Beint í efni

26. fundur

15.01.2025
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

26. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

15.01.2025

Kl. 16:30 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Sesselja Þóra Gunnarsdóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2304498

01

Innleiðing farsældar í Garðabæ

Sólveig Norðfjörð verkefnisstjóri innleiðingar farsældar kynnti farsældarlögin, stöðu innleiðingar farsældar í Garðabæ og næstu skref.

Málsnúmer 2411020

02

Þróunarsjóður grunnskóla 2025

Helstu áherslur Þróunarsjóðs grunnskóla Garðabæjar ræddar. Til úthlutunar árið 2025 eru 28 milljónir.

Áherslur Þróunarsjóðs grunnskóla 2025 verða:

Fjölbreyttir kennsluhættir og samþætting námsgreina.

Félags, samskipta og vináttuþjálfun með áherslu á samkennd.

Efling verklegra þátta í náttúrufræði á öllum skólastigum.

Námsefnisgerð, nýsköpun og tækni.

Samstarf heimilis og skóla.

Skólasókn; leiðir til að efla áhuga og mætingu nemenda og vinna gegn slakri skólasókn og/eða

skólaforðun.

Einnig er hægt að sækja um styrki til verkefna sem styðja við skólanámskrá og sérstöðu hvers skóla. Við afgreiðslu er m.a. horft til tengingar við fræðasamfélagið og samstarfs milli skóla og skólastiga.

Umsóknir skulu berast fyrir 1. mars og verður þeim svarað fyrir 31. mars.

Málsnúmer 2405510

03

Viðurkenningar í skóla- og frístundastarfi

Lögð fram drög að verkferli

Lögð fram tillaga að útfærslu viðurkenninga fyrir framúrskarandi skólastarf. Tillagan samþykkt og vísað til fræðslu- og menningarsviðs til framkvæmdar

Málsnúmer 2410252

04

Tillaga Garðabæjarlistans um stofnun starfshóps vegna seinkunar á upphafi skóladags á unglingastigi

Lögð fram til kynningar tillaga að spurningum sem lagðar vera fyrir forráðafólk, nemendur og starfsfólk í 8.-10. bekk í grunnskólum Garðabæjar. Erindinu var vísað til fræðslusviðs til frekari útfærslu.

Málsnúmer 2310002

05

Samskiptasáttmáli - eineltisáætlun

Grunnskólafulltrúi fór yfir stöðu á innleiðingar Samskiptasáttmála Garðabæjar. Nú er unnið eftir verkferlum Samskiptasáttmála bæði hvað varðar þjálfun, fræðslu og inngrip ef upp koma samskiptamál.

Málsnúmer 2412287

06

Úthlutun úr Námsgagnasjóði 2024-2025

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 2412004

07

Verkfall KÍ og SÍ í Garðaskóla

Farið var yfir fyrirhugað verkfall KÍ og SÍ í Garðaskóla. Verkfalli sem boðað hafði verið 25. nóvember -20. desember 2024 var frestað til 1. febrúar 2025. Ef ekki tekst að semja fyrir þann tíma munu kennarar í Garðaskóla fara í verkfall fram yfir vetrarleyfi.