Beint í efni

Kjarasamningar KÍ.

Málsnúmer 2412004

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

10. (2158). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, fór yfir minnisblað um ráðgerð áhrif nýgerðs kjarasamnings Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Eru þar einkum um að ræða áhrif vegna 8% innborgunar vegna virðismats. Samkvæmt útreikningum er gert ráð fyrir að útgjaldaaukning vegna bæjarrekinna leik-, grunn- og tónlistarskóla verði samtals 372mkr. Þá er útgjaldaaukning vegna framlaga til sjálfstætt starfandi leik- og grunnskóla áætluð 161 m.kr. Áætlaður útgjaldaauki nemur þannig um 533mkr. á árinu 2025.
Nauðsynlegt er að bregðast við þeim umframkostnaði með markvissum aðgerðum, s.s. hagræðingu í rekstri. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að tillögum um útfærslu aðgerða.
Birgitta Rós Nikulásdóttir, deildarstjóri kjaradeildar, sat fundinn undir þessum fundarlið.

Bæjarráð Garðabæjar

02

8. (2156). fundur

Bæjarstjóri fór yfir stöðu kjaraviðræðna KÍ við Samband íslenskra sveitarfélaga og þá stöðu sem komin er upp í kjaradeilunni.
Áréttað er að samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga fer með umboð sveitarfélaga í yfirstandandi kjaradeilu. Bæjarráð bindur vonir við að yfirstandandi samningaviðræður verði til lykta leiddar með samningum aðila hið allra fyrsta.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

03

27. fundur

Gerð var grein fyrir stöðunni vegna verkfalls KÍ í Garðaskóla sem stóð frá 1. - 9. febrúar. Verkfalli í Garðaskóla hafði áður verið boðað frá 25.11 - 20.12. en var frestað þann 30.11.24 til 1.febrúar 2025. Verkfallsaðgerðum var beint að tilteknum skólum/sveitarfélögum sem dæmt var ólöglegt 9. febrúar 2025. Skólastarf hófst að nýju 10. febrúar. Skólanefnd harmar ástandið og vonar að deiluaðilar komist að samkomulagi sem fyrst.

Bæjarráð Garðabæjar

04

6. (2154). fundur

Bæjarstjóri fór yfir stöðu kjaraviðræðna KÍ við Samband íslenskra sveitarfélaga og þá stöðu sem komin er upp í kjaradeilunni í kjölfar dóms Félagsdóms í máli nr. 1/2025 - Samband íslenskra sveitarfélaga gegn Kennarasambandi Íslands, sem kveðinn var upp 9. febrúar 2025.
Brynja Dan Gunnarsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Framsókn í Garðabæ lýsir yfir áhyggjum sínum af stöðu kjaradeilna ríkis og sveitarfélaga við kennara sem nú virðast í algjörum hnút.

Framsókn styður kennara í sinni kjarabaráttu og telur mikilvægt að gengið sé að samningaborðinu til að tryggja faglega mönnun menntakerfisins nú og um ókomna tíð. Börnin okkar eru framtíðin og er framtíðin á völtum fótum stödd sé ekki hlúð betur að þeirri framlínusveit sem helgar sig störfum með börnunum okkar og teljum við í Framsókn mikilvægt að vera róttæk í lausnaleit þessarar deilu."

Bæjarráð Garðabæjar

05

4. (2152). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðunni vegna yfirvofandi verkfalla KÍ, m.a. undirbúning sveitarfélagsins varðandi undanþágubeiðnir, komi til verkfalla.
Fyrir liggur að Félag grunnskólakennara (FG), Skólastjórafélag Íslands (SÍ) og Félag leikskólakennara (FL) hafa boðað tímabundin og ótímabundin verkföll meðal félagsmanna sinna í nokkrum sveitarfélögum frá og með 1. febrúar nk. Eins og sakir standa er verfallsaðgerðum beint að tilteknum skólum/sveitarfélögum.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

06

26. fundur

Farið var yfir fyrirhugað verkfall KÍ og SÍ í Garðaskóla. Verkfalli sem boðað hafði verið 25. nóvember -20. desember 2024 var frestað til 1. febrúar 2025. Ef ekki tekst að semja fyrir þann tíma munu kennarar í Garðaskóla fara í verkfall fram yfir vetrarleyfi.

Leikskólanefnd Garðabæjar

07

27. fundur

Umræður um fyrirhugað verkfall sem hefst 1. febrúar 2025 ef enn er ósamið.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

08

25. fundur

Farið var yfir verkfall KI og SÍ í Garðaskóla vikuna 25. nóvember - 1. desember 2024. Verkfalli hefur verið frestað til 1. febrúar 2025.