Beint í efni

27. fundur

15.01.2025
Leikskólanefnd Garðabæjar

27. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

15.01.2025

Kl. 16:15 - 18:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Margrét Bjarnadóttir - formaður
  • Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
  • Finnur Jónsson - aðalmaður
  • Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Jónína Guðrún Brynjólfsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
  • Agnes Ólöf Pétursdóttir - fulltrúi starfsmanna
  • Árdís Ethel Hrafnsdóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Hanna Halldóra Leifsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2501199

01

Þróunarsjóður leikskóla 2025

Kynning á tillögum um áherslur Þróunarsjóðs 2025-2026

Lögð fram tillaga að útfærslu viðurkenninga fyrir framúrskarandi skólastarf. Tillagan samþykkt og vísað til fræðslu- og menningarsviðs til framkvæmdar.

Málsnúmer 2501198

02

Leikskólar Niðurfelling leikskólagjalda fjöldatölur

Kynninga á samantekt á tölulegum upplýsingum um fjölda þeirra sem nýttu sér niðurfellingu leikskólagjalda milli jóla og nýárs 2024.

Ánægjulegt að sjá hversu margir foreldrar gátu nýtt sér niðurfellingu leikskólagjalda milli jóla og nýárs, að meðaltali 88% barna var í fríi.

Málsnúmer 2405510

03

Viðurkenningar í skólastarfi

Kynning á tillögum um reglur vegna viðurkenninga í skóla- og frístundastarfi í Garðabæ.

Lögð fram tillaga að útfærslu viðurkenninga fyrir framúrskarandi skólastarf. Tillagan samþykkt og vísað til fræðslu- og menningarsviðs til framkvæmdar.

Málsnúmer 2501192

04

Leikskólar - staða innritunar

Kynning á stöðu innritunar í leikskóla.

Innritun í leikskóla Garðabæjar gekk vel haustið 2024, og nú eru 1415 börn í leikskólum bæjarins. Sérlega vel tókst að manna leikskólana í haust, þrátt fyrir að enn séu nokkrar stöður ómannaðar. Innritun barna fædd í október 2023 er nú lokið, og í janúar 2025 verða opnaðar nýjar ungbarnadeildir í leikskólunum Urriðabóli og Krakkakoti. Samkvæmt tölum frá 10. janúar 2025 eru alls 82 börn, sem orðin eru eins árs, á biðlista, og umsóknum hefur fjölgað lítillega frá desember 2024. Stærsta innritun ársins fer fram dagana 2.- 3. apríl, og allt bendir til þess að hún gangi jafn vel og á síðasta ári.

Málsnúmer 2501200

05

Leikskólar- Upplýsingar um hlutfall fagmenntaðra í leikskólum Garðabæjar 1.1.2025

Kynning á samantekt um hlutfall fagmenntaðra í leikskólum Garðabæjar.

Farið var yfir hlutfall starfsmanna í bæjarreknum leikskólum eftir menntun. Leikskólanefnd óskar eftir því að fá einnig hliðstæðar upplýsingar um sjálfstætt starfandi leikskóla.

Málsnúmer 2412004

06

Verkfall KÍ

Umræður um fyrirhugað verkfall sem hefst 1. febrúar 2025 ef enn er ósamið.