Viðurkenningar í skólastarfi
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
35. fundur
Sigríður Hulda Jónsdóttir formaður skólanefndar fór yfir dagskrá Menntadags Garðabæjar og kynnti þau verkefni sem fengu viðurkenningu. Umræður voru um fyrirkomulag Menntadagsins, áherslur og þróun dagskrár.
Leikskólanefnd Garðabæjar
02
35. fundur
Margrét Bjarnadóttir formaður leikskólanefndar fór yfir dagskrá Menntadags Garðabæjar og kynnti þau verkefni sem fengu viðurkenningu.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
03
34. fundur
Rætt var um viðurkenningar skólanefnda leik-og grunnskóla fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf í Garðabæ sem verða veittar á Menntadeginum í Garðabæ þann 7. nóvember nk.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
37. fundur
Linda Udengård gerir grein fyrir tillögu að viðurkenningum fyrir skóla og frístundastarf í Garðabæ.
Linda Udengård Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs gerði grein fyrir tillögu að viðurkenningum fyrir skóla og frístundastarf í Garðabæ.
ÍTG fagnar tillögunni og bendir á mikilvægi þess að börn og ungmenni komi að vali eða tillögugerð í anda barnvæns samfélags, þar sem þau eru umfjöllunarefni í þessum viðurkenningum.
Leikskólanefnd Garðabæjar
05
27. fundur
Kynning á tillögum um reglur vegna viðurkenninga í skóla- og frístundastarfi í Garðabæ.
Lögð fram tillaga að útfærslu viðurkenninga fyrir framúrskarandi skólastarf. Tillagan samþykkt og vísað til fræðslu- og menningarsviðs til framkvæmdar.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
06
26. fundur
Lögð fram drög að verkferli
Lögð fram tillaga að útfærslu viðurkenninga fyrir framúrskarandi skólastarf. Tillagan samþykkt og vísað til fræðslu- og menningarsviðs til framkvæmdar
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
07
24. fundur
Rætt var um að veita viðurkenningar skólanefnda grunnskóla Garðabæjar fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf í Garðabæ.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
08
20. fundur
Rætt var um að veita viðurkenningar skólanefndar grunnskóla Garðabæjar fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf í Garðabæ. Tillögunni var vísað til fræðslusviðs til frekari vinnslu og útfærslu með skólastjórnendum.