24. fundur
24. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
06.11.2024
Kl. 16:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - varamaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Sesselja Þóra Gunnarsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
- Vera Rut Ragnarsdóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Nefndamenn samþykktu tillögu formanns, að byrja á tölulið 6 og 7. Aðrir dagskrárliðir voru samkvæmt dagskrá.
Dagskrá
Málsnúmer 2408208
01
Menntadagurinn 2024
Grunnskólafulltrúi sagði frá vel heppnuðum Menntadegi sem haldinn var í Urriðaholtsskóla 1. nóvember sl. Um 500 starfsmenn, frístundaheimila, grunn- og leikskóla sóttu Menntadaginn og nutu glæsilegrar dagskrár. Fríða Bjarney Jónsdóttir flutti fyrirlestur um inngildandi skóla- og frístundastarf, í kjölfarið voru verkefni sem hlotið hafa styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla kynnt á málstofum. Boðið var upp á 26 áhugaverðar og fjölbreyttar málstofur. Leik- og grunnskólanefndir veittu metnaðarfullu starfi leik- og grunnskóla viðurkenningar.
Málsnúmer 2405510
02
Viðurkenningar í skólastarfi
Rætt var um að veita viðurkenningar skólanefnda grunnskóla Garðabæjar fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf í Garðabæ.
Málsnúmer 2409265
03
Forvarnarvika Garðabæjar 2024
Kynnt var dagskrá forvarnvarviku Garðabæjar sem stendur frá 1.-8. nóvember. Áherslan er á "Góð samskipti" og S-in fimm í Samskiptasáttmála Garðabæjar sem eru: Samkennd, seigla, sjálfsstjórn, sjálfstæði og skapandi hugsun.
Málsnúmer 2410252
04
Tillaga Garðabæjarlistans um stofnun starfshóps vegna seinkunar á upphafi skóladags á unglingastigi
Kynnt var vinna skólanefndar vegna skoðunar á seinkunar á upphafi skóladags árið 2019 og könnun sem þá var lögð fyrir nemendur og foreldra. Skólanefnd leggur til að lögð verði fyrir ný könnun um málið meðal nemenda, foreldra og skólafólks. Erindinu vísað til fræðslu- og menningarsviðs.
Málsnúmer 2411020
05
Þróunarsjóður grunnskóla 2025
Rætt var um áhersluþætti vegna úthlutunar úr Þróunarsjóði grunnskóla 2025.
Málsnúmer 2411021
06
Menningarviðburðir í grunn- og leikskólum 2024-2025
Menningarfulltrúi Garðabæjar sagði frá menningarviðburðum sem nemendum í skólum bæjarins verður boðið upp á, skólaárið 2024-2025. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með metnaðarfulla dagskrá.
Málsnúmer 2411056
07
Tækjabúnaður í skólatarfi
Sviðsstjóri þjónustu og þróunarsviðs og verkefnisstjóri í kennslu- og upplýsingatækni, kynntu m.a., stöðu á úttekt persónuverndar á google umhverfinu, stefnu á tækjamálum og notkun tækja í kennslu.