Beint í efni

Menntadagurinn 2024

Málsnúmer 2408208

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

25. fundur

Leikskólafulltrúi sagði frá Menntadegi sem haldinn var í Urriðaholtsskóla 1. nóvember sl. Það voru 500 starfsmenn frístundaheimila, grunn- og leikskóla sem sóttu Menntadaginn og nutu glæsilegrar dagskrár. Aðalerindi dagsins var í höndum Fríðu Bjarneyjar Jónsdóttur verkefnastjóra hjá Mennta- og barnamálaráðuneytinu og var það um inngildandi skóla- og frístundastarf. Boðið var upp á 26 áhugaverðar málstofur þar sem m.a. voru kynnt verkefni sem hlotið hafa styrk úr Þróunarsjóði. Leik- og grunnskólanefndir veittu metnaðarfullu starfi leik- og grunnskóla viðurkenningar.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

24. fundur

Grunnskólafulltrúi sagði frá vel heppnuðum Menntadegi sem haldinn var í Urriðaholtsskóla 1. nóvember sl. Um 500 starfsmenn, frístundaheimila, grunn- og leikskóla sóttu Menntadaginn og nutu glæsilegrar dagskrár. Fríða Bjarney Jónsdóttir flutti fyrirlestur um inngildandi skóla- og frístundastarf, í kjölfarið voru verkefni sem hlotið hafa styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla kynnt á málstofum. Boðið var upp á 26 áhugaverðar og fjölbreyttar málstofur. Leik- og grunnskólanefndir veittu metnaðarfullu starfi leik- og grunnskóla viðurkenningar.

Leikskólanefnd Garðabæjar

03

24. fundur

Kynning á tillögu að ferli við viðurkenningar á framúrskarandi skóla- og frístundastarfi í Garðabæ.

Leikskólanefnd Garðabæjar

04

24. fundur

Kynning á dagskrá Menntadagsins 1. nóvember 2024.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

05

23. fundur

Rætt var um fyrirhugaðan Menntadag Garðabæjar sem haldinn verður þann 1. nóvember nk. Þar verða m.a., kynnt þau verkefni sem hlotið hafa styrk úr Þróunarsjóði Garðabæjar á árunum 2021 og 2023.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

06

21. fundur

Rætt var um Menntadaginn 2024 sem haldinn verður 1. nóvember nk. Formaður skólanefndar ræddi viðurkenningar skólanefndar fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf í Garðabæ. Skólanefnd felur fræðslu- og menningarsviði að vinna drög að umgjörð um viðurkenningar á framúrskarandi skólastarfi í Garðabæ sem verða veittar á Menntadaginn.