Beint í efni

24. fundur

16.10.2024
Leikskólanefnd Garðabæjar

24. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

16.10.2024

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Margrét Bjarnadóttir - formaður
  • Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
  • Finnur Jónsson - aðalmaður
  • Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Eydís Sigurðardóttir - varamaður

Starfsmenn

  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Jónína Guðrún Brynjólfsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
  • Agnes Ólöf Pétursdóttir - fulltrúi starfsmanna
  • Árdís Ethel Hrafnsdóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Hanna Halldóra Leifsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2408208

01

Menntadagurinn 2024

Kynning á dagskrá Menntadagsins 1. nóvember 2024.

Hanna H Leifsdóttir leikskólafulltrúi fór yfir dagskrá Menntadags Garðabæjar sem haldinn verður e.h. föstudaginn 1. nóvember 2024 í Urriðaholtsskóla.

Málsnúmer 2408208

02

Menntadagurinn 2024

Kynning á tillögu að ferli við viðurkenningar á framúrskarandi skóla- og frístundastarfi í Garðabæ.

Linda Udengard sviðsstjóri kynnti hugmyndir að viðurkenningum fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf í Garðabæ. Verið er að móta verklag sem tekið verður í notkun fyrir Menntadaginn 2025.

Málsnúmer 2406799

03

Ársskýrslur 2023-2024 Starfsáætlanir 2024-2025 (Leikskólar)

Samantekt á helstu þáttum sem fram koma í ársskýrslum leikskóla starfsveturinn 2023 til 2024 ásamt starfsáætlun 2024-2025.

Kynntar voru ársskýrslur og starfsáætlanir allra leikskóla í Garðabæ fyrir skólaárið 2023-2024. Umræður voru um breytta framsetningu á skýrslunum og hvaða tilgangi hún þjónar. Leikskólanefnd þakkar leikskólastjórum fyrir vel unnar skýrslur.