23. fundur
23. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Álftanesskóla
02.10.2024
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóhann Steinar Ingimundarson - varaformaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - varamaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Guðný Guðmundsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Sesselja Þóra Gunnarsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
Ritari
- Guðbjörg Linda Udengaard
Dagskrá
Málsnúmer 2409470
01
Þróunarsjóður grunnskóla 2024 síðari úthlutun
Lagt var fram til kynningar upplýsingar um síðari úthlutun Þróunarsjóðs grunnskóla 2024. Að þessu sinni bárust 11 umsóknir. Skólanefnd leggur til við bæjarráð að úthlutað verði kr. 13.428.000.-
Málsnúmer 2409565
02
Starfsáætlanir grunnskóla 2024-2025
Starfsáætlanir grunnskóla voru lagðar fram og kynntar. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með vel unnar áætlanir.
Málsnúmer 2408208
03
Menntadagurinn 2024
Rætt var um fyrirhugaðan Menntadag Garðabæjar sem haldinn verður þann 1. nóvember nk. Þar verða m.a., kynnt þau verkefni sem hlotið hafa styrk úr Þróunarsjóði Garðabæjar á árunum 2021 og 2023.
Málsnúmer 2409566
04
Börn með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn
Farið var yfir fjölda, stöðu og þjónustu við nemendur sem hafa fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn í grunnskólum Garðabæjar. Fræðslu- og menningarsviði er falið að vinna áfram að mótun og þróun þjónustu við þessa nemendur í samráði við skólastjórnendur/kennara og aðra starfsmenn.
Málsnúmer 2409564
05
Kynning og samtal við stjórnendur Álftanesskóla
Skólanefnd þakkar skólastjórnendum Álftanesskóla fyrir áhugaverða kynningu og lýsir ánægju með að kynnast skólanum og skólastarfinu með þessum hætti.