Beint í efni

21. fundur

21.08.2024
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

21. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

21.08.2024

Kl. 16:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Guðný Guðmundsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Sesselja Þóra Gunnarsdóttir - fulltrúi skólastjóra

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2212136

01

Verkferlar er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði stofnana bæjarins.

Fræðslustjóri og grunnskólafulltrúi fóru yfir stöðu framkvæmda í þeim grunnskólum þar sem greinst hafa rakaskemmdir. Framkvæmdir hafa gengið vel í sumar og er þeim nú að mestu lokið nema í Garðaskóla. Framkvæmdum verður haldið áfram í skólanum í vetur og þess gætt að þær raski sem minnst skólastarfi.

Málsnúmer 2408206

02

Ársskýrslur grunnskóla 2023-2024

Lagðar voru fram ársskýrslur grunnskóla skólaársins 2023-2024. Skólanefnd færir þakkir til skólafólks fyrir faglegar og vel unnar ársskýrslur. Þær bera vott um metnaðarfullt og gott skólastarf auk þess sem þær eru mikilvæg heimild og tæki til stefnumótunar í skólastarfinu. Skólanefnd leggur til frekari samræminga efnistaka í ársskýrslum og felur fræðslusviði að fylgja því eftir.

Málsnúmer 2408205

03

Skólabyrjun 2024-2024. Fjöldi nemenda og fleiri upplýsingar

Rædd var skólabyrjun skólaársins 2024-2025. Í ár hófu 2653 nemendur nám í grunnskólum bæjarins, þar af 274 nemendur í 1. bekk.

Málsnúmer 2407085

04

Minnisblað til sveitarfélaga um gjaldfrjálsar skólamáltíðir

Guðbjörg Linda Udengaard, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti minnisblað um gjaldfrjálsar skólamáltíðir í Garðabæ og verkferla vegna afgreiðslu skólamáltíða skólaárið 2024-2025. Eftir breytinguna greiðir Garðabær 56% af kostnaði við hverja máltíð á móti 44% framlagi ríkisins. Ekki er gert ráð fyrir að hlutdeild Garðabæjar verði meiri en þetta. Forráðafólk þarf að skrá börn sín eftir sem áður í mataráskrift eins og áður, reynt verður að leita allra leiða til að komast hjá matarsóun. Skólanefnd fylgist með framvindu málsins.

Málsnúmer 2408208

05

Menntadagurinn 2024

Rætt var um Menntadaginn 2024 sem haldinn verður 1. nóvember nk. Formaður skólanefndar ræddi viðurkenningar skólanefndar fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf í Garðabæ. Skólanefnd felur fræðslu- og menningarsviði að vinna drög að umgjörð um viðurkenningar á framúrskarandi skólastarfi í Garðabæ sem verða veittar á Menntadaginn.

Málsnúmer 2408207

06

Grunnskólar, árangur og líðan

Rætt var um skólastarf í grunnskólum Garðabæjar. Umræður voru um mælitæki sem grunnskólarnir nota og leiðir til umbóta, framfara og hvernig við tryggjum gæðaskólastarf. Skólanefnd telur nauðsynlegt að hafa samanburðarhæfar mælingar á námsárangri meðal annars til að hægt sé að þróa kennsluaðferðir út frá árangri. Skólanefnd felur fræðslu- og menningarsviði að draga fram stöðu nemenda í Garðabæ varðandi námsárangur og námsframvindu í samstarfi við skólastjórnendur og hagaðila og gera tillögur til úrbóta eftir því sem við á. Kynningar á þeirri vinnu fari fram á fundum skólanefndar fyrir næstu áramót. Ákveðið var að fá kynningu á niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar á fund skólanefndar með áherslu á hagnýta og ráðgefandi úrvinnslu gagna.