Minnisblað til sveitarfélaga um gjaldfrjálsar skólamáltíðir
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
21. fundur
Guðbjörg Linda Udengaard, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti minnisblað um gjaldfrjálsar skólamáltíðir í Garðabæ og verkferla vegna afgreiðslu skólamáltíða skólaárið 2024-2025. Eftir breytinguna greiðir Garðabær 56% af kostnaði við hverja máltíð á móti 44% framlagi ríkisins. Ekki er gert ráð fyrir að hlutdeild Garðabæjar verði meiri en þetta. Forráðafólk þarf að skrá börn sín eftir sem áður í mataráskrift eins og áður, reynt verður að leita allra leiða til að komast hjá matarsóun. Skólanefnd fylgist með framvindu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
29. (2130). fundur
Guðbjörg Linda Udengard, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti drög að minnisblaði um gjaldfrjálsar skólamáltíðir í Garðabæ þ.m.t. verkferla vegna afgreiðslu skólamáltíða skólaárið 2024-2025.
Á fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2024 eru 128.000.000 kr. áætlaðar til niðurgreiðslu á skólamáltíðum. Ljóst er að kostnaður Garðabæjar verður meiri en gert er ráð fyrir í áætluninni. Umfang skýrist þegar fjöldi skráninga barna í skólamáltíðir liggur fyrir.
Afgreiðsla gjaldfrjálsra skólamáltíða getur hafist við upphaf skólaársins 2024-2025. Forráðamenn verða upplýstir fyrir skólabyrjun um fyrirkomulag næsta skólaárs.
Samkvæmt breytingum á lögum um tekjustofna sveitarfélaga er gert ráð fyrir auknu fjárframlagi ríkissjóðs til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða.
Bæjarráð samþykkir innleiðingu gjaldfrjálsra skólamáltíða í Garðabæ miðað við að Jöfnunarsjóður f.h. ríkissjóðs beri 75% af áðurgildandi kostnaði foreldra við mataráskrift grunnskólabarna og Garðabær 25%. Forráðamenn skrái börn sín eftir sem áður í mataráskrift. Verði mataráskrift barns nýtt minna en 50% í mánuði, þá falli áskrift barnsins sjálfkrafa niður næsta mánuð á eftir til að stemma stigu við matarsóun. Forráðamenn barnsins bera þá ábyrgð á að skrá barnið í mataráskrift að nýju.
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga verða framlög til Garðabæjar vegna skólaársins 2024-2025 vanáætluð frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem nemur tæplega 100 börnum miðað við fjölda nemenda haustið 2024 og um 9% að auki vegna lægri gjaldskrár ríkisins fyrir máltíðir en skólamáltíðir í Garðabæ kosta í raun.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna Garðabæjar gagnvart Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þannig að sjóðurinn greiði Garðabæ í samræmi við raunkostnað skólamáltíða og raunfjölda nemenda í þjónustunni.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að halda utan um þann kostnað sem til fellur vegna málsins, nýtingu áskrifta, umfang matarsóunar og greina þannig nákvæmlega hvernig innleiðing gjaldfrjálsra skólamáltíða tekst í grunnskólum Garðabæjar. Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs geri skólanefnd grunnskóla og bæjarráði grein fyrir því hvernig til hefur tekist þegar reynsla er komin á málið og stuðli jafnframt að umræðu innan skólasamfélagsins um óæskileg áhrif matarsóunar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
26. (2127). fundur
Vísað er til viljayfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 7. mars 2024, sem hafði það að markmiði að greiða fyrir langtímakjarasamningum á vinnumarkaði. Ein af þeim aðgerðum sneri að því að útfæra leið til að skólamáltíðir gunnskólabarna verði gjaldfrjálsar á árunum 2024-2027.
Viljayfirlýsingin gerir ráð fyrir að ríkið greiði 75% af kostnaðarþátttöku forráðamanna vegna skólamáltíða og sveitarfélögin 25%. Gert er ráð fyrir að við tekjur Jöfnunarsjóðs bætist árlegt framlag úr ríkissjóði sem Jöfnunarsjóður úthlutar til þeirra sveitarfélaga sem bjóða öllum börnum í grunnskóla upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir.
Bæjarráð samþykkir, á grundvelli viljayfirlýsingarinnar, að vinna drög að verkferlum innan bæjarins sem geri ráð fyrir gjaldfrjálsum skólamáltíðum skólaárið 2024-2025. Sérstaka áherslu skal leggja á að stemma stigu við matarsóun og að raunkostnaður við máltíðir og hlutdeild ríkis og sveitarfélags við kostnaðinn verði aðgengilegur.
Bæjarráð vísar málinu til sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs og bæjarstjóra til frekari útfærslu og til frekari umræðu og samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar.