26. (2127). fundur
26. (2127). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
09.07.2024
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Margrét Bjarnadóttir - varamaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - varamaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2406965
01
Upplýsingaöryggi Garðabæjar - kynning.
Sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs kynnti vinnu við að tryggja upplýsingaöryggi Garðabæjar og þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í á undanförnum mánuðum.
Málsnúmer 2302261
02
Brekkugata 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Viktori Karli Ævarssyni, kt. 041187-2989 leyfi fyrir færslu á innveggjum 1. og 2. hæð, bæta við niðurgröfnu geymslurými sunnan við hús og uppfærslu á skráningartöflu, að Brekkugötu 10.
Málsnúmer 2402112
03
Engimýri 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Helga Hafsteini Helgasyni, kt. 100169-3989, leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi efri hæðar og kjallara, setja glugga á kjallara og innrétta og nýta kjallara sem hobby- og vinnuaðstöðu, að Engimýri 6.
Málsnúmer 2405515
04
Garðatorg 7 - Umsókn um byggingarleyfi - snyrtistofa.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Object ehf., kt. 610104-3470, leyfi fyrir endurbótum vegna bruna.
Málsnúmer 2406878
05
Vorbraut 9 og 11 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut ehf., kt. 411123-1890, heimild til jarðvegsframkvæmda á lóðunum að Vorbraut 9 og 11.
Málsnúmer 2402030
06
Opnun tilboða á ræstingum í stofnunum Garðabæjar.
Eftirfarandi tilboð bárust vegna útboðs á ræstingum í stofnunum Garðabæjar:
Sólar ehf., kr. 1.122.268.161.-
Dagar hf., kr. 926.130.104.-
iClean ehf., kr. 1.195.754.944.-
AÞ-Þrif ehf., kr. 1.097.932.329.-
Hreint ehf., kr. 1.373.857.991.-
Kostnaðaráætlun kr. 1.100.000.000.-
Tilboð frá Dögum hf. er lægsta tilboðið og uppfyllir það lágmarkskröfur útboðsgagna samkvæmt kafla 0.17.2. „Gild tilboð - lágmarkskröfur", en í því felst að tilboðsskrá er rétt útfyllt og bjóðandi lagði fram gögn sem óskað var eftir í kafla 0.17.1 „Almennt".
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfissviðs að óska eftir frekari gögnum frá lægstbjóðanda til að sannreyna kröfur í kafla 0.18 „Forsendur fyrir vali á tilboði". Að því gefnu að allar kröfur séu uppfylltar er lagt til að tilboði Daga hf. verði tekið sem er í samræmi við valforsendur útboðsgagna.
Margrét Bjarnadóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Málsnúmer 2407085
07
Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga til sveitarfélaga um gjaldfrjálsar skólamáltíðir, dags. 4. júlí 2024.
Vísað er til viljayfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 7. mars 2024, sem hafði það að markmiði að greiða fyrir langtímakjarasamningum á vinnumarkaði. Ein af þeim aðgerðum sneri að því að útfæra leið til að skólamáltíðir gunnskólabarna verði gjaldfrjálsar á árunum 2024-2027.
Viljayfirlýsingin gerir ráð fyrir að ríkið greiði 75% af kostnaðarþátttöku forráðamanna vegna skólamáltíða og sveitarfélögin 25%. Gert er ráð fyrir að við tekjur Jöfnunarsjóðs bætist árlegt framlag úr ríkissjóði sem Jöfnunarsjóður úthlutar til þeirra sveitarfélaga sem bjóða öllum börnum í grunnskóla upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir.
Bæjarráð samþykkir, á grundvelli viljayfirlýsingarinnar, að vinna drög að verkferlum innan bæjarins sem geri ráð fyrir gjaldfrjálsum skólamáltíðum skólaárið 2024-2025. Sérstaka áherslu skal leggja á að stemma stigu við matarsóun og að raunkostnaður við máltíðir og hlutdeild ríkis og sveitarfélags við kostnaðinn verði aðgengilegur.
Bæjarráð vísar málinu til sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs og bæjarstjóra til frekari útfærslu og til frekari umræðu og samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2407053
08
Erindi frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis til sveitarfélaga um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara til allra lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli, dags. 3. júlí 2024.
Tilboð Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara til allra lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli. Um stryki til ljósleiðaravæðingar lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli 2024-2026 vísast til skilmála fjarskiptasjóðs frá 2. júlí 2024.
Bæjarráð vísar tilboðinu til umhverfissviðs til afgreiðslu, en tilboðsfrestur er til 16. ágúst 2024.
Málsnúmer 2407083
09
Beiðni Carbfix um leyfi til vatnshæðarmælingar í Urriðavatni.
Erindi Carbfix vegna leyfis til vatnshæðamælinga í Urriðaholtsvatni. Mælingarnar eru hluti af vöktun fyrir verkefnið Coda Terminal í Straumsvík og er mikilvægur þáttur í því að mæla ákveðin grunngildi áður en verkefnið hefst.
Bæjarráð samþykkir að veita Carbfix leyfi til að setja mælitæki niður í Urriðaholtsvatn í eitt ár, með það að markmiði að skrásetja árstíðabundnar sveiflur. Mælitækinu skal fundinn staður sem er ekki í námunda við göngustíga.
Erindinu vísað til umhverfissviðs.
Málsnúmer 2407067
10
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi Samgöngusáttmálann - sex mánaða skýrsla Betri samgangna ohf. dags. 4. júlí 2024.
Sex mánaða skýrsla Betri samgangna ohf., um stöðu og framgang verkefna, sbr. h-lið 6.gr. Samgöngusáttmálans lögð fram.
Málsnúmer 2407068
11
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi Fjölsmiðjuna - endurnýjun þjónustusamnings dags. 4. júlí 2024.
Erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna endurnýjunar þjónustusamnings við Fjölsmiðjuna.
Bæjarráð samþykkir að samningurinn verði endurnýjaður til allt að fimm ára á grunni núverandi samnings og viðauka við hann. Sá fyrirvari er gerður að aðrir sem koma að rekstri Fjölsmiðjunnar geri slíkt hið sama. Áhersla er lögð á að stjórn Fjölsmiðjunnar eigi samtal við fulltrúa ríkisins um frekari aðkomu.
Erindinu er vísað til bæjarstjóra til afgreiðslu.
Málsnúmer 2407029
12
Tilkynning um árlega ráðstefnu Almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra þann 31. október 2024.
Erindi Ríkislögreglustjóra frá 28. júní 2024 um árlega ráðstefnu Almannavarnarsviðs ríkislögreglustjóra, sem haldin verður fimmtudaginn 31. október, á Hilton Reykjavík Nordica.
Málsnúmer 2401133
13
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 1. júlí 2024.
Lögð fram.
Málsnúmer 2401134
14
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 21. júní 2024.
Lögð fram.
Málsnúmer 2401136
15
Fundargerð stjórnar SSH frá 1. júlí 2024.
Lögð fram.
Málsnúmer 2401138
16
Fundargerð eigendafundar Strætó bs. frá 1. júlí 2024.
Lögð fram.