Beint í efni

Brekkugata 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2302261

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

26. (2127). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Viktori Karli Ævarssyni, kt. 041187-2989 leyfi fyrir færslu á innveggjum 1. og 2. hæð, bæta við niðurgröfnu geymslurými sunnan við hús og uppfærslu á skráningartöflu, að Brekkugötu 10.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

6. (921). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að gluggalaust rými fari út fyrir byggingarreit við byggingu parhússins að Brekkugötu 10. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“ (Mál nr. 2302261)

Bæjarráð Garðabæjar

03

14. (2067). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að gluggalaust rými fari út fyrir byggingarreit við byggingu parhússins að Brekkugötu 10. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

5. fundur

Lagðir fram aðaluppdrættir parhússins að Brekkugötu 10 sem gerir ráð fyrir að gluggalaust rými fari út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað umrætt gluggalaust rými varðar.
Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.