5. fundur
5. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
30.03.2023
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
- Egill Daði Gíslason - deildarstjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2203422
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og almenningssamgöngur
Tillaga að verkefnislýsingu endurskoðunar 4. kafla greinargerðar Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 lögð fram.
Anna Kristín Guðmundsdóttir landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf hefur unnið að gerð verkefnislýsingarinnar og gerði grein fyrir innihaldi hennar.
Endurskoðunin mun verða sett fram sem breyting á aðalskipulagi í samræmi við 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1.mgr. ofangreindrar lagagreinar og felur umhverfissviði að kynna lýsinguna og senda hana til umsagnar hjá umsagnaraðilum.
Málsnúmer 2209503
02
Vetrarmýri, dsk br
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar að lokinni auglýsingu.
Tillagan gerir ráð fyrir:
-að byggingarreitur kjallara að Vetrarbraut 2-4 er stækkaður um 3,5 m til austurs og að hámarks byggingarmagn í kjallara stækki úr 3.363 m2 í 3.490 m2 eða sem nemur breikkuninni.
-að krafa um inndregna byggingarreiti breytist til aðlögunar á landhalla.
-að hluti efstu hæðar fjölbýlishúsa í Vetrarmýri geti náð út að úthlið byggingar á nokkrum stöðum þó svo að hún sé inndregin.
-að svalir í fjölbýlishúsum í Vetrarmýri geti náð 1 m út fyrir byggingarreit í stað 0,6 m.
-að uppgefnir fermetrar í stærðartöflum fjölbýlishúsa í Vetrarmýri eigi eingöngu við A-rými skv skráningartöflu.
-að áréttað verði í greinargerð deiliskipulags Vetrarmýrar að ákvæði í kafla 2.6.4. um bílastæði sé miðað við birta stærð íbúðar ofanjarðar eins og hún er skráð í skráningartöflu.
Tillagan var í auglýsingu frá 15. febrúar til 21. mars sl. í samræmi við 1.mgr. 41.gr. og 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2302672
03
Hnoðraholt N, dsk.br. Þorraholt 2 og 4.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts-norður sem nær til lóðanna Þorraholt 2 og Þorraholt 4 auk dælustöðvarlóðar 2b og spennistöðvarlóðar 2a.
Tillagan er fram komin vegna áforma Heklu hf um að reisa aðalbækistöðvar fyrirtækisins á báðum lóðum.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-lóðirnar Þorraholt 2 og Þorraholt 4 sameinast í eina lóð Þorraholt 2-4. Byggingarreitir verða áfram tveir; fyrir hús 2 og hús 4.
-byggingarreitur sem gerir ráð fyrir einni hæð sem er að hálfu ofanjarðar og tveimur hæðum neðnajarðar fyrir bílageymslur kemur austan við byggingareit húss nr. 2. Byggingin verður niðurgrafin að þeirri hlið sem snýr að Vetrarbraut.
-ákvæði sett um að byggingar skuli falla sem best að því landi sem fyrir er.
-áherslu skal leggja á vandaðan arkitektúr, metnaðarfulla byggingarlist og vistvænar lausnir.
-leggja skal ríka áherslu á trjágróður og vandaðan frágang bílastæða.
-gert verður ráð fyrir 150 stæðum ofanjarðar og allt að 500 stæðum í bílageymslu.
-gera skal ráð fyrir 0,5 hjólastæðum fyrir hverja 100 fermetra verslunar-og skrifstofuhúsnæðis.
-ákvæði verður um að lýsing skilta sem snúa að íbúðarbyggð í Þorraholti verði stillt í hóf og að blikkandi skilti verði ekki heimiluð á þeim hliðum húsanna.
-byggingarreitir fyrir spennistöð (2a) og dælustöð (2b) munu færast neðar í götuna.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. og 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2209581
04
Miðskógar 17 viðbygging - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Miðskóga að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Miðskóga.
Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 2205260
05
Ránargrund 1 - breyting á dsk Ása og Grunda
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir því að einbýlishúsalóðin Ránargrund 1 verði skipt upp í tvær parhúslóðir.
Lóðin er samkvæmt mæliblaði 1762 m2 en skiptist í eina ca 700 m2 lóð og eina ca 1000 m2 lóð. Stærðir lóðanna ákvarðast endanlega með útgáfu mæliblaðs.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ása og Grunda í samræmi við 2.mgr. 43.gr. og 44.gr. skipulagslaga. Í samræmi við 2.ml. 3.mgr. 44.gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Málsnúmer 2302039
06
Stekkjarflöt 23 stækkun - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu. Samkvæmt tillögu fer viðbygging út fyrir byggingarreit að framanverðu og viðbygging við lóðarmörk að göngustíg er lengri en 7,5 m.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 2303021
07
Lautargata 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðar fram aðalteikningar fjölbýlishúss að Lautargötu 3 en samkvæmt ákvæðum deiliskipulagsbreytingar sem nær til lóðanna Lautargata 1,3 og 5 skal leggja fram aðalteikningar í skipulagsnefnd ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem athugasemd er gerð við útfærslu hjólageymslu.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar teikningar með því skilyrði að deiliskipulagshöfundur fallist á útfærslu á hjólageymslu.
Málsnúmer 2202438
08
Lautargata 6 -Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt fyrirspurn um útfærslu sem hefur í för með sér aukningu á B-rýmum um 5,6 m. Umsögn deiliskipulagshöfundar liggur fyrir.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað umrædda fermetra varðar.
Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 2302261
09
Brekkugata 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir parhússins að Brekkugötu 10 sem gerir ráð fyrir að gluggalaust rými fari út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað umrætt gluggalaust rými varðar.
Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 2303054
10
Kinnargata 33 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir parhússins að Kinnargötu 33 sem gerir ráð fyrir að bílageymslu sé breytt í tækjarými og geymslu.
Uppdráttum vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 2303196
11
Setberg - Heildarendurskoðun á dsk
Lögð fram "Markmið heildarendurskoðunar" (verkefnislýsing) Hafnarfjarðarbæjar á fyrirhugaðri endurskoðun deiliskipulags í Setbergi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar bendir á að samkvæmt grein 5.2.1. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 segir að ef tillaga að deiliskipulagi tekur til svæðis sem liggur að landamörkum eða sveitarfélagsmörkum skal haft samráð við eigenda þess lands eða viðkomandi sveitarfélags.
Full ástæða er til þess að það komi fram í verkefnislýsingu.
Í tilfelli Setbergs er aðliggjandi sveitarfélag Garðabær og landeigendur innan Garðabæjar eru tveir, einn að austanverðu og annar að sunnanverðu.
Æskilegt væri að á forsíðu verkefnislýsingar væri vísað til þess að um verkefnislýsingu sé að ræða og samkvæmt hvaða lagagreinum hún sé unnin.
Að öðru leyti gerir Garðabær ekki athugasemd við verkefnislýsinguna.
Málsnúmer 2303009F
12
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 4
Málsnúmer 2303032F
13