Lautargata 6 -Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
20. (2073). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hafsteini ehf., kt. 411069-0289, leyfi til að stækka B-rými í fjölbýlishúsi í byggingu að Lautargötu 6.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
6. (921). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að aukning verði á B-rýmum í fjölbýlishúsinu við Lautargötu 6, umfram skilmála sem nemur 5,6 fm. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“ (Mál nr. 2202438)
Bæjarráð Garðabæjar
03
14. (2067). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að aukning verði á B?rýmum í fjölbýlishúsinu við Lautargötu 6, umfram skilmála sem nemur 5,6 fm. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt fyrirspurn um útfærslu sem hefur í för með sér aukningu á B-rýmum um 5,6 m. Umsögn deiliskipulagshöfundar liggur fyrir.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað umrædda fermetra varðar.
Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð Garðabæjar
05
12. (2019). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hafsteini ehf., kt. 411069-0289, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 19 íbúðum við Lautargötu 6.