Beint í efni

20. (2073). fundur

23.05.2023
Bæjarráð Garðabæjar

20. (2073). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

23.05.2023

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2202438

01

Lautargata 6 -Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hafsteini ehf., kt. 411069-0289, leyfi til að stækka B-rými í fjölbýlishúsi í byggingu að Lautargötu 6.

Málsnúmer 2212314

02

Markarflöt 18 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lárusi Þorvaldssyni, kt. 160583-5179, leyfi til að rífa sólskála og byggja við núverandi einbýlishús að Markaflöt 18.

Málsnúmer 2203547

03

Vinastræti 1 - 3 - 2. áfangi Urriðaholtsskóla - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita umhverfissviði Garðabæjar leyfi til að byggja 2. áfanga húsnæðis Urriðaholtsskóla við Vinastræti 1-3.

Málsnúmer 2210425

04

Minniblað Mannvits varðandi verðfyrirspurn vegna stakstæðra<br/><br/>loftræstisamstæða í kennslustofur austur- og vesturálmu Hofsstaðaskóla, dags. 15.05.23.

Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir niðurstöðum verðkönnunar vegna kaupa á stakstæðri loftræstisamstæðu fyrir Hofsstaðaskóla sem komið verður fyrir í kennslustofum í austur- og vesturálmu skólans.

Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Ventum ehf., kt. 441220-1380 um kaup á allt að 9 stakstæðum loftræstisamstæðum sem uppfylla hönnunarkröfur m.a. hvað varðar hljóðkröfur og kröfur um varmaendurvinnslu.

Málsnúmer 2305293

05

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstur gististaðar að Breiðabólstöðum.

Í umsókninni sækja Breiðabólstaðir ehf., kt. 710822-2390, um leyfi til að starfrækja gististað fyrir 19 gesti að Breiðabólstöðum á Álftanesi.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2305381

06

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi drög að reglugerð um málsmeðferð við setningu skipulagsreglna fyrir flugvelli í samráðsgátt, dags. 17.05.23.

Í tilkynningunni er kynnt til samráðs drög að reglugerð um málsmeðferð við setningu skipulagsreglna fyrir flugvelli.

Málsnúmer 2305380

07

Bréf Jakobs Lars Kristmannssonar varðandi styrk vegna þátttöku á Ólympíuleikum í eðlisfræði, dags. 17.05.23.

Bæjarráð samþykkir að verða við erindi Jakobs Lars Kristmannssonar, kt. 310304-2630 um greiðslu sumarlauna 2023 vegna undirbúnings fyrir þátttöku á ólympíuleikjunum í eðlisfræði.

Málsnúmer 2304460

08

Staða kjarasamningsviðræðna við Starfsmannafélag Garðabæjar.

Lögð fram tilkynning um niðurstöðu atkvæðagreiðslu félagsmanna í Starfsmannafélagi Garðabæjar um verkföll. Í tilkynningunni kemur fram að samþykkt hefur verið verkfallsboðun á leikskólum, á bæjarskrifstofum, íþróttamannvirkjum og sundlaugum.

Hjá félagsfólki sem starfar í leikskólum Garðabæjar og á bæjarskrifstofum Garðabæjar frá og með mánudeginum 5. júní 2023 til miðvikudagsins 5. júlí 2023.

Hjá félagsfólki sem starfar í íþróttamannvirkjum og sundlaugum í Ásgarði og við Breiðumýri á Álftanesi er boðað ótímabundið verkfall frá og með mánudeginum 5. júní 2023.

Farið var yfir störf sem eru undanþegin verkfalli og rætt um mögulegar undanþágubeiðnir vegna starfa sem nauðsynleg eru til að tryggja almannaöryggi og aðbúnað eldri borgara, barna og ungmenna og fatlaðs fólks.

Tímabundin vinnustöðvun félagsmanna í Starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa í leikskólum heldur áfram í þessari viku. Almennt hefur gengið vel að aðlaga starfsemina við þessar aðstæður þó að veruleg þjónustuskerðing hafi verið, tveir leikskólar lokaðir og takmörkuð starfsemi á öðrum leikskólum.

Bæjarstjóri skýrði frá því að Samband íslenskra sveitarfélaga hafi haldið reglulega upplýsingafundi með framkvæmdastjórum sveitarfélaganna um stöðu mála.