14. (2067). fundur
14. (2067). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
04.04.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - varamaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2302553
01
Lambamýri 1 -3 - Umsókn um byggingarleyfi. (djúpgámar)
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Húsbygg ehf., kt. 630110-1430, leyfi til að setja niður djúpgáma á lóðinni að Lambamýri 1-3.
Málsnúmer 2212378
02
Smáraflöt 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ara Guðmundssyni, kt. 071263-5929, leyfi fyrir breytingum á þegar samþykktri viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Smáraflöt 3.
Málsnúmer 2203422
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er varðar stígakerfi í þéttbýli og almenningssamgöngur.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða breytingu á stígakerfi samkvæmt 4. kafla greinargerðar aðalskipulags. Leita skal umsagnar hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna lýsinguna almenningi.
Málsnúmer 2209503
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Tillagan gerir ráð fyrir:
-að byggingarreitur kjallara að Vetrarbraut 2-4 sé stækkaður um 3,5 m til austurs og að hámarks byggingarmagn í kjallara stækki úr 3.363 m2 í 3.490 m2 eða sem nemur breikkuninni.
-að krafa um inndregna byggingarreiti breytist til aðlögunar á landhalla.
-að hluti efstu hæðar fjölbýlishúsa í Vetrarmýri geti náð út að úthlið byggingar á nokkrum stöðum þó svo að hún sé inndregin.
-að svalir í fjölbýlishúsum í Vetrarmýri geti náð 1 m út fyrir byggingarreit í stað 0,6 m.
-að uppgefnir fermetrar í stærðartöflum fjölbýlishúsa í Vetrarmýri eigi eingöngu við A-rými skv skráningartöflu.
-að áréttað verði í greinargerð deiliskipulags Vetrarmýrar að ákvæði í kafla 2.6.4. um bílastæði sé miðað við birta stærð íbúðar ofanjarðar eins og hún er skráð í skráningartöflu.
Málsnúmer 2302672
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóðanna við Þorraholt 2 og 4.
5. 2302672 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóðanna við Þorraholt 2 og 4.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður vegna lóðanna við Þorraholt 2 - 4 verði auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. laganna.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-lóðirnar Þorraholt 2 og Þorraholt 4 sameinast í eina lóð Þorraholt 2-4. Byggingarreitir verða áfram tveir; fyrir hús nr. 2 og hús nr. 4.
-byggingarreitur sem gerir ráð fyrir einni hæð sem er að hálfu ofanjarðar og tveimur hæðum neðanjarðar fyrir bílageymslur kemur austan við byggingarreit húss nr. 2. Byggingin verður niðurgrafin að þeirri hlið sem snýr að Vetrarbraut.
-ákvæði sett um að byggingar skuli falla sem best að því landi sem fyrir er.
-áherslu skal leggja á vandaðan arkitektúr, metnaðarfulla byggingarlist og vistvænar lausnir.
-leggja skal ríka áherslu á trjágróður og vandaðan frágang bílastæða.
-gert verður ráð fyrir 150 stæðum ofanjarðar og allt að 500 stæðum í bílageymslu.
-gera skal ráð fyrir 0,5 hjólastæðum fyrir hverja 100 fermetra verslunar-og skrifstofuhúsnæðis.
-ákvæði verður um að lýsing skilta sem snúa að íbúðarbyggð í Þorraholti verði stillt í hóf og að
blikkandi skilti verði ekki heimiluð á þeim hliðum húsanna.
-byggingarreitir fyrir spennistöð (2a) og dælustöð (2b) munu færast neðar í götuna.
Málsnúmer 2209581
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðskóga vegna lóðarinnar við Miðskóga 17.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðskóga vegna lóðarinnar við Miðskóga 17. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 2205260
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Ránargrund 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breyting á deiliskipulagi Ása og Grunda er varðar lóðina við Ránargrund 1, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að parhúsalóðinni við Ránargrund 1verði skipt í tvær lóðir, Ránargrund 1a og Ránargrund 1b.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda/lóðarhafa.
Málsnúmer 2202438
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi heimild til frávika frá deiliskipulagi við afgreiðslu byggingarleyfis fjölbýlishússins við Lautargötu 6.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að aukning verði á B?rýmum í fjölbýlishúsinu við Lautargötu 6, umfram skilmála sem nemur 5,6 fm. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2302261
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi heimild til frávika frá deiliskipulagi við afgreiðslu byggingarleyfis parhússins við Brekkugötu 10.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að gluggalaust rými fari út fyrir byggingarreit við byggingu parhússins að Brekkugötu 10. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2303196
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna endurskoðunar á deiliskipulagi Setbergshverfis í Hafnarfirði.
Bæjarráð tekur undir athugasemdir og ábendingar skipulagsnefndar um að fram eigi að koma í lýsingunni að hafa skuli samráð við eigendur aðliggjandi landssvæðis og viðkomandi sveitarfélags.
Málsnúmer 2301018
11
Bréf Landsnets varðandi umsókn um breytingu á aðalskipulagi vegna legu Hamraneslína 1 og 2, dags. 23.03.23
Í bréfinu er brugðist við bókun skipulagsnefndar frá fundi 23. febrúar sl. og bókun bæjarráðs frá 28. febrúar sem voru kynntar Landsneti með bréfi, dags. 9. mars 2023 ásamt því að gera nánari grein fyrir ástæðu umsóknar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breytingar á legu Hamraneslínu innan bæjarmarka Hafnarfjarðar og Garðabæjar.
Bæjarráð vísar bréfinu ásamt fylgigögnum til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2303606
12
Bréf húsfélagsins Krókamýri 80 varðandi umsókn um styrk vegna girðingar á lóðarmörkum við Hofsstaðaskóla, dags. 23.03.23.
Bæjarráð samþykkir að bærinn komi að efniskostnaði vegna byggingar girðinga á lóðarmörkum við Hofsstaðaskóla sem er áætlaður um 1,0 m.kr. Ákvörðunin er í samræmi við fordæmi um þátttöku bæjarins í efniskostnaði girðinga á lóðarmörkum íbúðalóða og skólalóða.
Málsnúmer 1811125
13
Tilkynning Mannvits varðandi staðfestingu á BREEAM vottun 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts, dags. 29.03.23.
Í tilkynningunni kemur fram að gefið hefur verið út vottunarskírteíni til staðfestingar á BREEAM vottun 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Með staðfestingunni liggur fyrir að heildarskipulag Urriðaholts er vottað af BREEAM Commmunities.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2303605
14
Tilkynning frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands um kjör í fulltrúaráð félagsins, dags. 28.03.23
Í samþykkt um stjórn Garðabæjar kemur fram að kosning fulltrúa í fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands eigi að fara fram á fundi ári eftir reglulegar bæjarstjórnarkosningar í samræmi við 9. gr. laga nr. 68/1994 um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands. Á reglulegum fundi bæjarstjórnar sem fyrirhugaður er 1. júní 2023 mun fara fram tilnefning á fulltrúa Garðabæjar í fulltrúaráð félagsins.
Málsnúmer 2303698
15
Erindi Hestamannafélagsins Sóta varðandi umsókn um rekstrarstyrk vegna reiðhallar, dags. 27.03.23.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Málsnúmer 2303697
16
Erindi Hestamannafélagsins Sóta varðandi niðurfellingu fasteignagjalda árið 2023, dags. 27.03.23.
Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Sóta styrk að fjárhæð kr. 928.130 til greiðslu fasteignagjalda af reiðskemmu árið 2023.
Málsnúmer 2303707
17
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um aðgerðaráætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024-2028, 860. mál., dags. 31.03.23.
Lagt fram.
Málsnúmer 2303601
18
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26 1994 (gæludýrahald) 80. mál., dags. 28.03.23.
Lagt fram.
Málsnúmer 2303685
19
Fyrirspurn Viðreisnar um rýni á starfsumhverfi leikskólans.
Eftirfarandi fyrirspurn lögð fram.
„Bæjarfulltrúi Sara Dögg óskar eftir upplýsingum um þà vinnu sem unnin hefur verið og eða er í gangi varðandi rýni á starfsumhverfi leikskólans af hálfu fræðslusviðs.“
Sara Dögg Svanhildardóttir oddviti Viðreisnar
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Málsnúmer 2303584
20
Opnun tilboða í lausar kennslustofur við Garðaskóla og Urriðaholtsskóla.
Verðkönnun vegna leigu eða kaupa á færanlegum húseiningum fyrir lausar kennslustofur við Garðaskóla og Urriðaholtsskóla var send til sex aðila.
Aðeins eitt tilboð barst frá Terra einingum ehf.
Garðaskóli
Kaupverð 138.221.337 kr. án vsk.
Leiguverð pr. mánuð 2.275.765 kr. án vsk vísitölutryggt leiguverð í 12 mánuði 27.309.180 kaupverð 134.712.406 kr. = 162.021.586 Kr.
Urriðaholtsskóli
Kaupverð 207.855.493 kr. án vsk.
Leiguverð pr. mánuð 3.422.267 kr. án vsk vísitölutryggt leiguverð í 12 mánuði 41.067.204 kaupverð 202.578.807 kr. = 243.646.011 Kr.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við Terra einingar ehf. um pöntun á lausum kennslustofum fyrir Garðaskóla og Urriðaholtsskóla á grundvelli ofangreinds tilboðs. Samningurinn skal lagður fram til staðfestingar í bæjarráði.