Hnoðraholt N, dsk.br. Þorraholt 2 og 4.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
5. (938). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður vegna lóðarinnar við Þorraholt 2-4. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum.
- Hámarkshæð húss númer 2 hækkar um 2,5 m en breidd byggingarreitsins minnkar um 3 metra.
- Að austurhluti 1. hæðar í húsi númer 2 verði atvinnurými í stað bílageymslu.
- Að kjallarar verði 4 í stað 2-3.
- Að kjallari 2 verði atvinnurými í stað bílageymslu.
- Að 3.000 m2 bætist við bílageymslu í kjallara.
- Að staðsetning dælustöðvar innan lóðar færist til.
Vekja skal athygli eigenda annarra lóða við Þorraholt og við Útholt 2, 4, 6, 8 og 10 sem og við Útholt 1-3, 5-9 og 11-17 á auglýsingunni.“ (Mál nr. 2302672)
Bæjarráð Garðabæjar
02
11. (2112). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður vegna lóðarinnar við Þorraholt 2-4. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum.
- Hámarkshæð húss númer 2 hækkar um 2,5 m en breidd byggingareitsins minnkar um 3 metra.
- Að austurhluti 1.hæðar í húsi númer 2 verði atvinnurými í stað bílageymslu.
- Að kjallarar verði 4 í stað 2-3.
- Að kjallari 2 verði atvinnurými í stað bílageymslu.
- Að 3.000 m2 bætist við bílageymslu í kjallara.
- Að staðsetning dælustöðvar innan lóðar færist til.
Vekja skal athygli eigenda annarra eigna í Þorraholti og í Útholti 2,4,6,8 og 10 sem og Útholti 1-3, 5-9 og 11-17 á auglýsingunni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts Norður sem gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-hámarkshæð húss númer 2 hækki um 2,5 m en breidd byggingareitsins minnki um 3 metra
-að austurhluti 1.hæðar í húsi númer 2 verði atvinnurými í stað bílageymslu
-að kjallarar verði 4 í stað 2-3
-að kjallari 2 verði atvinnurými í stað bílageymslu
-að 3.000 m2 bætist við bílageymslu í kjallara
-að staðsetning dælustöðvar færist til.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Vekja skal athygli á auglýsingunni með því að senda erindi til eigenda annarra eigna í Þorraholti og í Útholti 2,4,6,8 og 10 sem og Útholti 1-3, 5-9 og 11-17.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
12. (927). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 14. september 2023, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóðanna við Þorraholt 2-4.
Tillagan var auglýst 19. apríl 2023 og var frestur til að gera athugasemdir við tillöguna til og með 2. júní 2023. Athugasemdir og umsagnir við tillögurnar voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 29. júní 2023. Umsögn um athugasemdir liggur fyrir.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni en þær eru í samræmi við erindi úthlutunarhafa lóðanna og varða aðlögun að þeirri starfsemi sem fyrirhugað að starfrækja á lóðinni:
Hluti af bílageymslum neðanjarðar breytist í þjónusturými og þjónusturými á efsta hluta byggingarreits breytist í bílageymslur. Hæðir í efsta húsi verða þrjár í stað tveggja.
Hámarkshæð bygginga og hámarksbyggingarmagn í kynntri tillögu eru óbreytt.
Skipulagsnefnd telur breytingar á tillögunni ekki þess eðlis að auglýsa þurfi tillöguna að nýju enda er um breytingar að ræða sem eru að mestu neðanjarðar og er hluti þeirra umsvifa sem búast má við í kringum þjónustu og verslun með bíla.
Skipulagsnefnd tekur undir þá athugasemd að skoða þurfi gaumgæfilega með hvaða hætti gatnamót Vetrarbrautar og Þorraholts verði útfærð og vísar athugasemdinni til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
Athugasemdir og umsagnir kalla ekki að öðru leyti á breytingar á auglýstri tillögu.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.“ (Mál nr. 2302672)
Bæjarráð Garðabæjar
05
35. (2088). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 14. september 2023, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóðanna við Þorraholt 2-4.
Tillagan var auglýst 19. apríl 2023 og var frestur til að gera athugasemdir við tillöguna til og með 2. júní 2023. Athugasemdir og umsagnir við tillögurnar voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 29. júní 2023. Umsögn um athugasemdir liggur fyrir
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni en þær eru í samræmi við erindi úthlutunarhafa lóðanna og varða aðlögun að þeirri starfsemi sem fyrirhugað að starfrækja á lóðinni:
Hluti af bílageymslum neðanjarðar breytist í þjónusturými og þjónusturými á efsta hluta byggingarreits breytist í bílageymslur. Hæðir í efsta húsi verða þrjár í stað tveggja.
Hámarkshæð bygginga og hámarksbyggingarmagn í kynntri tillögu eru óbreytt.
Skipulagsnefnd telur að breytingar á tillögunni ekki þess eðlis að auglýsa þurfi tillöguna að nýju enda er um breytingar að ræða sem er að mestu neðanjarðar og er hluti þeirra umsvifa sem búast má við í kringum þjónustu og verslun með bíla.
Skipulagsnefnd tekur undir þá athugasemd að skoða þurfi gaumgæfilega með hvaða hætti gatnamót Vetrarbrautar og Þorraholts verði útfærð og vísar athugasemdinni til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
Athugasemdir og umsagnir kalla ekki að öðru leyti á breytingar á auglýstri tillögu.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts-norður sem nær til lóðanna Þorraholt 2 og Þorraholt 4 auk dælustöðvarlóðar 2b og spennistöðvarlóðar 2a. Auglýsing hefur farið fram og 3 erindi með athugasemdum hafa borist innan athugasemdafrests.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni en þær eru í samræmi við erindi Heklu hf og varða aðlögun að þeirri starfsemi sem fyrirtækið hyggst starfrækja á lóðinni:
Hluti af bílageymslum neðanjarðar breytist í þjónusturými og þjónusturými á efsta hluta byggingarreits breytist í bílageymslur. Hæðir í efsta húsi verða þrjár í stað tveggja. Hvorki hámarkshæð yfir sjávarmáli né hámarksbyggingarmagn í kynntri tillögu breytast.
Skipulagsnefnd telur að breytingar á tillögunni kalli ekki á endurauglýsingu hennar enda er um breytingar að ræða sem er að mestu neðanjarðar og er hluti þeirra umsvifa sem búast má við í kringum þjónustu og verslun með bíla.
Skipulagsnefnd tekur undir þá athugasemd að skoða þurfi gaumgæfilega með hvaða hætti gatnamót Vetrarbrautar og Þorraholts verði útfærð og vísar athugasemdinni til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
Lögð fram greinargerð skipulagsstjóra þar sem að innsendum athugasemdum er svarað fyrir hönd Garðabæjar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við greinargerðina.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður með ofangreindum breytingum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
10. fundur
Tillaga að breytingu Hnoðraholts Norður sem nær til lóðanna Þorraholt 2 og 4 lögð fram öðru sinni að lokinni auglýsingu ásamt athugasemdum og umsögnum sem bárust.
Drög að svörum til þeirra sem gerðu athugasemdir kynnt.
Vísað til úrvinnslu á umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Hnoðraholts norðurhluta sem nær til lóðanna Þorraholt 2 og Þorraholt 4 ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Tillögu og innsendum athugasemdum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Bæjarstjórn Garðabæjar
09
6. (921). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður vegna lóðanna við Þorraholt 2 - 4 verði auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. laganna.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-lóðirnar Þorraholt 2 og Þorraholt 4 sameinast í eina lóð Þorraholt 2-4. Byggingarreitir verða áfram tveir; fyrir hús nr. 2 og hús nr. 4.
-byggingarreitur sem gerir ráð fyrir einni hæð sem er að hálfu ofanjarðar og tveimur hæðum neðanjarðar fyrir bílageymslur kemur austan við byggingarreit húss nr. 2. Byggingin verður niðurgrafin að þeirri hlið sem snýr að Vetrarbraut.
-ákvæði sett um að byggingar skuli falla sem best að því landi sem fyrir er.
-áherslu skal leggja á vandaðan arkitektúr, metnaðarfulla byggingarlist og vistvænar lausnir.
-leggja skal ríka áherslu á trjágróður og vandaðan frágang bílastæða.
-gert verður ráð fyrir 150 stæðum ofanjarðar og allt að 500 stæðum í bílageymslu.
-gera skal ráð fyrir 0,5 hjólastæðum fyrir hverja 100 fermetra verslunar-og skrifstofuhúsnæðis.
-ákvæði verður um að lýsing skilta sem snúa að íbúðarbyggð í Þorraholti verði stillt í hóf og að blikkandi skilti verði ekki heimiluð á þeim hliðum húsanna.
-byggingarreitir fyrir spennistöð (2a) og dælustöð (2b) munu færast neðar í götuna.“ (Mál nr. 2302672)
Bæjarráð Garðabæjar
10
14. (2067). fundur
5. 2302672 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóðanna við Þorraholt 2 og 4.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður vegna lóðanna við Þorraholt 2 - 4 verði auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. laganna.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-lóðirnar Þorraholt 2 og Þorraholt 4 sameinast í eina lóð Þorraholt 2-4. Byggingarreitir verða áfram tveir; fyrir hús nr. 2 og hús nr. 4.
-byggingarreitur sem gerir ráð fyrir einni hæð sem er að hálfu ofanjarðar og tveimur hæðum neðanjarðar fyrir bílageymslur kemur austan við byggingarreit húss nr. 2. Byggingin verður niðurgrafin að þeirri hlið sem snýr að Vetrarbraut.
-ákvæði sett um að byggingar skuli falla sem best að því landi sem fyrir er.
-áherslu skal leggja á vandaðan arkitektúr, metnaðarfulla byggingarlist og vistvænar lausnir.
-leggja skal ríka áherslu á trjágróður og vandaðan frágang bílastæða.
-gert verður ráð fyrir 150 stæðum ofanjarðar og allt að 500 stæðum í bílageymslu.
-gera skal ráð fyrir 0,5 hjólastæðum fyrir hverja 100 fermetra verslunar-og skrifstofuhúsnæðis.
-ákvæði verður um að lýsing skilta sem snúa að íbúðarbyggð í Þorraholti verði stillt í hóf og að
blikkandi skilti verði ekki heimiluð á þeim hliðum húsanna.
-byggingarreitir fyrir spennistöð (2a) og dælustöð (2b) munu færast neðar í götuna.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts-norður sem nær til lóðanna Þorraholt 2 og Þorraholt 4 auk dælustöðvarlóðar 2b og spennistöðvarlóðar 2a.
Tillagan er fram komin vegna áforma Heklu hf um að reisa aðalbækistöðvar fyrirtækisins á báðum lóðum.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-lóðirnar Þorraholt 2 og Þorraholt 4 sameinast í eina lóð Þorraholt 2-4. Byggingarreitir verða áfram tveir; fyrir hús 2 og hús 4.
-byggingarreitur sem gerir ráð fyrir einni hæð sem er að hálfu ofanjarðar og tveimur hæðum neðnajarðar fyrir bílageymslur kemur austan við byggingareit húss nr. 2. Byggingin verður niðurgrafin að þeirri hlið sem snýr að Vetrarbraut.
-ákvæði sett um að byggingar skuli falla sem best að því landi sem fyrir er.
-áherslu skal leggja á vandaðan arkitektúr, metnaðarfulla byggingarlist og vistvænar lausnir.
-leggja skal ríka áherslu á trjágróður og vandaðan frágang bílastæða.
-gert verður ráð fyrir 150 stæðum ofanjarðar og allt að 500 stæðum í bílageymslu.
-gera skal ráð fyrir 0,5 hjólastæðum fyrir hverja 100 fermetra verslunar-og skrifstofuhúsnæðis.
-ákvæði verður um að lýsing skilta sem snúa að íbúðarbyggð í Þorraholti verði stillt í hóf og að blikkandi skilti verði ekki heimiluð á þeim hliðum húsanna.
-byggingarreitir fyrir spennistöð (2a) og dælustöð (2b) munu færast neðar í götuna.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. og 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
4. fundur
Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu hf og Birgir Sigurðsson skipulagsfræðingur kynntu hugmyndir sínar um höfuðstöðvar fyrirtækisins á lóðunum Þorraholt 2 og 4.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.