11. (2112). fundur
11. (2112). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
19.03.2024
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2403276
01
Almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu og staða slökkviliðsins.
Á fund bæjarráðs komu Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðstjóri og framkvæmdastjóri almannavarnanefndar á höfuðborgarsvæðinu og Þóra Ásgeirsdóttir, deildarstjóri almannavarna á höfuðborgarsvæðinu.
Deildarstjóri almannavarna fór yfir hlutverk og ábyrgð almannavarna á höfuðborgarsvæðinu. Sérstaklega var gerð grein fyrir hlutverkum neyðarstjórna sveitarfélaganna.
Slökkviliðsstjóri fór yfir stöðu og þróun mála hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins undanfarin ár.
Málsnúmer 2307150
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 - lántaka.
Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 1.000.000.000. Um er að ræða skammtímalán með gjalddaga 18. september 2024, óverðtryggt með 11,32% vöxtum.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2210617
03
Gilsbúð 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Krakatindi ehf., kt. 561213-0460, leyfi til að byggja viðbótarhæð að hluta og gera breytingar á núverandi atvinnuhúsnæði við Gilsbúð 9.
Málsnúmer 2402136
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður vegna lóðanna við Útholt 5-9.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður er varðar lóðirnar við Útholt 5-9, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að byggingarreitur miðlóðar minnkar og byggingarreitir endalóða stækka sem því nemur.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda/lóðarhafa.
Málsnúmer 2403195
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar vegna lóðarinnar við Grásteinsmýri 1, 2 og 3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar. Tillagan gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða aukist úr 84 í 102.
Málsnúmer 2104418
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi vegna efnislosunar í Glerhallardýi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir efnislosun í Glerhallardýi. Um er að ræða losun til bráðabirgða fyrir allt að 30.600 m3 af jarðvegi þar til deiliskipulag Norðurness liggur fyrir. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði og aðliggjandi svæði ætluð undir golfvöll og mun efnið þá nýtast til landslagsmótunar. Að öðrum kosti þarf að flytja efni sem losnar vegna framkvæmda í Breiðumýri um langan veg með tilheyrandi neikvæðum umhverfisáhrifum.
Málsnúmer 2402112
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu byggingarleyfis vegna lóðarinnar við Engimýri 6.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að vísa umsókn um byggingarleyfi vegna innri skipulagsbreytinga á einbýlishúsinu við Engimýri 6 til grenndarkynningar samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal umsóknina eigendum að Engimýri 3,4,5,7 8 og 10.
Málsnúmer 2302672
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður vegna lóðarinnar við Þorraholt 2 og 4.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður vegna lóðarinnar við Þorraholt 2-4. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum.
- Hámarkshæð húss númer 2 hækkar um 2,5 m en breidd byggingareitsins minnkar um 3 metra.
- Að austurhluti 1.hæðar í húsi númer 2 verði atvinnurými í stað bílageymslu.
- Að kjallarar verði 4 í stað 2-3.
- Að kjallari 2 verði atvinnurými í stað bílageymslu.
- Að 3.000 m2 bætist við bílageymslu í kjallara.
- Að staðsetning dælustöðvar innan lóðar færist til.
Vekja skal athygli eigenda annarra eigna í Þorraholti og í Útholti 2,4,6,8 og 10 sem og Útholti 1-3, 5-9 og 11-17 á auglýsingunni.
Málsnúmer 2311326
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi hesthúsabyggðar við Kjóavelli. Tillagan gerir ráð fyrir breikkun byggingarreita úr 12 metrum í 13 metra á öllum hesthúsalóðum innan Garðabæjar á Kjóavöllum. Auk þess felst breytingin í því að viðhalda núverandi þakformi á hesthúsum í Andvarahverfi, bæði á núverandi hesthúsum og 8 nýjum hesthúsum vestast í Andvarahverfinu, um leið og heimildir fyrir kvistum og þakgluggum eru rýmkaðar.
Skilmálar fyrir þakform húsa norðan megin við Andvaravelli 2a-8a, haldast óbreyttir.
Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 2110128
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna landsvæðis á norðanverðum Arnarneshálsi (Arnarland).
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til landsvæðis á norðanverðum Arnarneshálsi (Arnarland). Áður en tillagan er auglýst skal hún send Skipulagsstofnun til athugunar samkvæmt 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 2403266
11
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Garðabæ, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesbæ.<br/><br/>
Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir skipun starfshóps á vegum SSH sem var falið að vinna að endurskoðun samþykkta sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um meðhöndlun úrgangs vegna áhrifa af breytingum á lagaumhverfi varðandi meðhöndlun sorps frá heimilum.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins og vísar því til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Málsnúmer 2403244
12
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Lionsklúbbs Álftaness um tímabundið áfengisleyfi á dansleik í tilefni landsþings.
Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi á dansleik í tilefni landsþings Lionsklúbba sem haldið er í íþróttamiðstöð Álftaness dagana 10. - 12. maí 2024.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.