Beint í efni

Útholt 5-9 - minnkun á byggingarreit - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2402136

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (938). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður er varðar lóðirnar við Útholt 5-9, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að byggingarreitur miðlóðar minnkar og byggingarreitir endalóða stækka sem því nemur.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda/lóðarhafa“. (Mál nr. 2402136)

Bæjarráð Garðabæjar

02

11. (2112). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður er varðar lóðirnar við Útholt 5-9, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að byggingarreitur miðlóðar minnkar og byggingarreitir endalóða stækka sem því nemur.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda/lóðarhafa.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

3. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að raðhúslengjunni Útholt 5-9 um óverulega minnkun á byggingarreit, á miðlóð og stækkun á endalóðum sem því nemur.
Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga fellir skipulagsnefnd niður grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en lóðarhafa og Garðabæjar.