Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
11. (2112). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi hesthúsabyggðar við Kjóavelli. Tillagan gerir ráð fyrir breikkun byggingarreita úr 12 metrum í 13 metra á öllum hesthúsalóðum innan Garðabæjar á Kjóavöllum. Auk þess felst breytingin í því að viðhalda núverandi þakformi á hesthúsum í Andvarahverfi, bæði á núverandi hesthúsum og 8 nýjum hesthúsum vestast í Andvarahverfinu, um leið og heimildir fyrir kvistum og þakgluggum eru rýmkaðar.
Skilmálar fyrir þakform húsa norðan megin við Andvaravelli 2a-8a, haldast óbreyttir.
Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kjóavalla að lokinni auglýsingu.
Deiliskipulagsbreytingin felst í breikkun byggingarreita úr 12m í 13m á öllum hesthúsalóðum innan Garðabæjar á Kjóavöllum. Auk þess felst breytingin í því að viðhalda núverandi þakformi á hesthúsum í Andvarahverfi, bæði á núverandihesthúsum og 8 nýjum hesthúsum vestast í Andvarahverfinu, um leið og heimildir fyrir kvistum og þakgluggum eru rýmkaðar.
Skilmálar fyrir þakform húsa norðan megin við Andvaravelli 2a-8a, haldast óbreyttir.
Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma og er tillagan því samþykkt sem breyting á deiliskipulagi Kjóavalla. Senda skal tillöguna Kópavogsbæ til afgreiðslu þar sem að deiliskipulag Kjóavalla nær til beggja sveitarfélaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
1. (934). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi hesthúsasvæðis við Kjóavelli. Tillagan felur í sér breikkun á byggingarreitum úr 12m í 13m á öllum hesthúsalóðum innan Garðabæjar á Kjóavöllum. Auk þess felst breytingin í því að viðhalda núverandi þakformi á hesthúsum í Andvarahverfi, bæði á núverandi hesthúsum og 8 nýjum hesthúsum vestast í Andvarahverfinu, um leið og heimildir fyrir kvistum og þakgluggum eru rýmkaðar. Skilmálar fyrir þakform húsa norðan megin við Andvaravelli 2a-8a, haldast óbreyttir. (Mál nr. 2311326)
Bæjarráð Garðabæjar
04
2. (2103). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi hesthúsasvæði við Kjóavelli. Tillagan felur í sér breikkun á byggingarreitum úr 12m í 13m á öllum hesthúsalóðum innan Garðabæjar á Kjóavöllum. Auk þess felst breytingin í því að viðhalda núverandi þakformi á hesthúsum í Andvarahverfi, bæði á núverandi hesthúsum og 8 nýjum hesthúsum vestast í Andvarahverfinu, um leið og heimildir fyrir kvistum og þakgluggum eru rýmkaðar. Skilmálar fyrir þakform húsa norðan megin við Andvaravelli 2a-8a, haldast óbreyttir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipuags Kjóavalla.
Deiliskipulagsbreytingin felst í breikkun byggingarreita úr 12m í 13m á öllum hesthúsalóðum innan Garðabæjar á Kjóavöllum. Auk þess felst breytingin í því að viðhalda núverandi þakformi á hesthúsum í Andvarahverfi, bæði á núverandihesthúsum og 8 nýjum hesthúsum vestast í
Andvarahverfinu, um leið og heimildir fyrir kvistum og þakgluggum eru rýmkaðar.
Skilmálar fyrir þakform húsa norðan megin við Andvaravelli 2a-8a, haldast óbreyttir.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.