Engimýri 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. (2127). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Helga Hafsteini Helgasyni, kt. 100169-3989, leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi efri hæðar og kjallara, setja glugga á kjallara og innrétta og nýta kjallara sem hobby- og vinnuaðstöðu, að Engimýri 6.
Bæjarráð Garðabæjar
02
20. (2121). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Helga Hafsteini Helgasyni, kt. 100169-3989, leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi efri hæðar og kjallara, setja glugga á kjallara og innrétta og nýta kjallara sem frístunda- og vinnuaðstöðu, í Engimýri 6.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
4. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar á einbýlishúsinu að Engimýri 6. M.a. er sótt um að fá leyfi fyrir þegar byggðum kjallara undir húsinu sem ætlað er að nýtist sem vinnuaðstaða og geymslur. Þar sem að deiliskipulag Hofsstaðamýrar telst ekki í gildi var fyrirhuguð framkvæmd grenndarkynnt íbúum Engimýri 3,4,5,7 8 og 10. til og með 23. apríl í samræmi 44.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
5. (938). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að vísa umsókn um byggingarleyfi vegna innri skipulagsbreytinga á einbýlishúsinu við Engimýri 6 til grenndarkynningar samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal umsóknina eigendum að Engimýri 3, 4, 5, 7, 8 og 10.“ (Mál nr. 2402112)
Bæjarráð Garðabæjar
06
11. (2112). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að vísa umsókn um byggingarleyfi vegna innri skipulagsbreytinga á einbýlishúsinu við Engimýri 6 til grenndarkynningar samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal umsóknina eigendum að Engimýri 3,4,5,7 8 og 10.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
3. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar á einbýlishúsinu að Engimýri. M.a. er sóttu um að fá leyfi fyrir þegar byggðum kjallara undir húsinu sem ætlað er að nýtist sem vinnuaðstaða og geymslur.
Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Hofstaðamýri.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagslaga.
Grenndarkynna skal eigendum að Engimýri 3,4,5,7 8 og 10.