20. (2121). fundur
28.05.2024
Bæjarráð Garðabæjar
20. (2121). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
28.05.2024
Kl. 08:00 - 08:10
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Sigríður Logadóttir
Dagskrá
01
Engimýri 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Helga Hafsteini Helgasyni, kt. 100169-3989, leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi efri hæðar og kjallara, setja glugga á kjallara og innrétta og nýta kjallara sem frístunda- og vinnuaðstöðu, í Engimýri 6.
02
Bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 12.421.623 til greiðslu fasteignagjalda af golfskála árið 2024.
03
Tillaga að breytingu á reglum um greiðslur til forráðamanna barna.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að breytingum á reglum um greiðslur til forráðamanna barna 12 mánaða og eldri sem eru á biðlista eftir leikskóladvöl í Garðabæ.
04
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldfrjálsar skólamáltíðir), 1114. mál, dags. 17. maí 2024.
Lagt fram.
05
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2030, 1036. mál, dags. 22. maí 2024.
Lagt fram.