Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar vegna fjölbýlishúsa við Grásteinsmýri.

Málsnúmer 2403195

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

24. (2125). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar, frá fundi 20. júní 2024, að samþykkja tillöguna óbreytta sem breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan varðar breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem nær til fjölbýlishúsa við Grásteinsmýri að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem nær til fjölbýlishúsa við Grásteinsmýri að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir sem bárust lagðar fram.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

5. (938). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar. Tillagan gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða aukist úr 84 í 102.“ (Mál nr. 2403195)

Bæjarráð Garðabæjar

04

11. (2112). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar. Tillagan gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða aukist úr 84 í 102.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

3. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem nær til Grásteinsmýrar sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga sem stuðlar að meiri fjölbreytni á stærðum íbúða í Breiðumýri.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögu sem gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða aukist úr 84 íbúðum í 102 til auglýsingar.
Tillagan verði auglýst sem breyting á deiliskipulagi Breiðumýrar í samræmi við 2.mgr.43.gr. og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.