24. (2125). fundur
24. (2125). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
25.06.2024
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2307119
01
Garðabæjarleiðin - Lykiltölur í leikskólamálum - kynning
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti Garðabæjarleiðina - lykiltölur í leikskólamálum.
Helstu niðurstöðu eru:
- 12 mánaða börn frá leikskólapláss í ágúst 2024.
- Betri þjónusta. Deildir loka sjaldnar vegna fáliðunar.
- Börn dvelja skemur á leikskólum. 60% barna dvelja innan við 40 tíma á viku.
- Fjölskyldur hafa meira svigrúm til að sníða vistunartíma að sínum þörfum .
- Dregið hefur úr álagi og veikindum starfsfólks
Frekari reynsla mun komast á aðgerðirnar á næstu mánuðum. Framundan er m.a. að gera viðhorfskönnun meðal foreldra, starfsfólks og stjórnenda.
Hanna Halldóra Leifsdóttir, leikskólafulltrúi, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málsnúmer 2405208
02
Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi.
Afgreiðslu frestað.
Málsnúmer 2405476
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um útfærslu bílakjallara í fjölbýlishúsinu við Vörðugötu 2.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar, frá fundi 20. júní 2024, að gera ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað hæð bílakjallara að Vörðugötu 2 varðar.
Fyrirspurnin varðaði útfærslu bílakjallara að fjölbýlishúsinu Vörðugötu 2 þar sem óskað er eftir því að gólf bílakjallara verði 30 cm neðar en skilgreindur gólfkóti á hæðarblaði.
Málsnúmer 2403195
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar vegna fjölbýlishúsa við Grásteinsmýri.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar, frá fundi 20. júní 2024, að samþykkja tillöguna óbreytta sem breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan varðar breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem nær til fjölbýlishúsa við Grásteinsmýri að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust.
Málsnúmer 2305147
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns vegna lóðarinnar að Hraungörðum.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar, frá 20. júní að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús þar sem athygli skal vakin á auglýsingunni.
Tillagan varðar breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem gerir ráð fyrir því að lóðin Garðprýði 1 (Hraungarðar) skiptist í tvær lóðir. Gert verði ráð fyrir byggingarreit fyrir nýja byggingu verði í suðausturhorni núverandi lóðar. Byggingarreitur sem nú er á stórum hluta lóðarinnar minnkar og takmarkast við núverandi hús og staðsetningu nýrrar byggingar samkvæmt tillögunni. Aðkoma að nýrri byggingu er innan lóðar Garðprýði 1.
Málsnúmer 2406780
06
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi innleiðingu og kynningu á loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins, dags 19.06.24.
Skýrsla samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins og VSÓ ráðgjafar um innleiðingu loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins - ráðgjöf og tillögur að aðgerðum sveitarfélaga til að draga úr losun til ársins 2035.
Í skýrslunni eru settar fram nánari tillögur að aðgerðum á grunni fyrirliggjandi loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins og verkfærakistu. Áhersla er lögð á að sveitarfélögin einbeiti sér að þeim losunarflokkum sem þau geta haft mest áhrif á og velji aðgerðir þar sem mestur loftslagsávinningur fæst fyrir hverja krónu.
Í lok skýrslunnar er sett fram greining á mögulegri stöðu höfuðborgarsvæðisins árið 2035 m.t.t. framgöngu fyrirliggjandi aðgerða. Samhliða hefur verið gefið út loftslagsbókhald fyrir höfuðborgarsvæðið, þar sem áætlað er hver losun svæðisins hafi verið árið 2022. Áður hafði losunin verið metin fyrir árið 2019.
Skýrslunni er vísað til umhverfissviðs og umhverfisnefndar.
Málsnúmer 2406792
07
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi tilnefningu í samstarfshóp vegna vinnu í stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Vífilsstaðavatn, dags. 18.06.24.
Bréf Umhverfisstofnunar dags. 18. júní 2024 varðandi Samstarfshóp vegna vinnu við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Vífilsstaðavatn.
Bæjarráð tilnefnir Lindu Björk Jóhannsdóttur sem fulltrúa Garðabæjar í samstarfshóp um gerð áætlunarinnar.
Málsnúmer 2406794
08
Bréf Jafnréttisstofu um ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga vegna bils milli fæðingarorlofs og inntöku barna í leikskóla, dags. 19.06.24.
Lagt fram bréf Jafnréttisstofu dags. 19. júní 2024 um ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga vegna bils milli fæðingarorlofs og inntöku barna í leikskóa.
Í bréfinu vekur Jafnréttisstofa athygli á ábyrgð og hlutverki sveitarfélaga til að brúa bilið sem myndast þegar foreldrar hafa fullnýtt fæðingarorlofsrétt sinn og þangað til barn fær dvöl á leikskóla.
Bæjarráð vekur athygli á athygli í leikskólamálum Garðabæjar, þar sem komið er til móts við framangreind sjónarmið.
Málsnúmer 2406807
09
Erindi Grindavíkurbæjar um uppgjör við sveitarfélög vegna grindvískra grunnskólanemenda, dags. 19.06.24.
Erindi Grindavíkurkaupstaðar dags. 18. júní 2024, varðandi uppgjör við sveitarfélög vegna grindvískra grunnskólanemenda
Erindinu fylgdi skýrsla frá HLH ráðgjöf sem nefnist Aukinn kostnaður grunnskóla í kjölfar
náttúruhamfara í Grindavík.
Í skýrslunni er samantekt um fjölda nemenda með lögheimili í Grindavík sem sækja grunnskóla sem reknir eru eða fjármagnaðir af öðrum sveitarfélögum. Við gerð skýrslunnar var kallað eftir upplýsingum frá fjórum sveitarfélögum um beinan og óbeinan kostnað vegna fjölgunar grunnskólanemenda og voru tekin viðtöl við forsvarsmenn þessara sveitarfélaga. Einnig komu fram í skýrslunni upplýsingar um heildarfjölda nemenda og hvar þeir voru skráðir í grunnskóla þegar skýrslan var unnin.
Af 290 grunnskólabörnum úr Grindavík sóttu 14 nám í grunnskólum Garðabæjar. Samtals gjöld vegna þeirra barna, skv. viðmiðunargjaldskrá eru kr. 16.427.156.
Bæjarráð samþykkir þá uppgjörsaðferð sem lýst er í erindinu. Þar er gert ráð fyrir að greidd verði 30% af viðmiðunargjaldskrá til Garðabæjar. Ef um er að umfram kostnað vegna sérþarfa einstakra nemanda verður gerður reikningur sem nemur þeim kostnaði.
Málsnúmer 2406806
10
Styrkbeiðni Hestamannafélagsins Spretts vegna Landsmóts hestamanna 2024, dags. 19.06.24.
Í bréfinu er þess farið á leit að Garðabær styrki mótshald Landsmóts hestamanna sem haldið verður 1.-7. júlí 2024. Mótið verður haldið á félagssvæði Fáks, en verkefnið er samvinnuverkefni milli hestamannafélaga sem eru í Garðabæ, Kópavogi og Reykjavík.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til bæjarstjóra til afgreiðslu.
Málsnúmer 2401140
11
Fundargerð Stefnuráðs byggðasamlaganna frá 07.06.24.
Lögð fram.