Beint í efni

Loftslagsstefna - innleiðing - Sóknaráætlun 2023

Málsnúmer 2406780

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

20 (22-26). fundur

Innleiðing á loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins og útreikningur á losun - skýrslur til kynninga sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt fram.

Bæjarráð Garðabæjar

02

24. (2125). fundur

Skýrsla samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins og VSÓ ráðgjafar um innleiðingu loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins - ráðgjöf og tillögur að aðgerðum sveitarfélaga til að draga úr losun til ársins 2035.
Í skýrslunni eru settar fram nánari tillögur að aðgerðum á grunni fyrirliggjandi loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins og verkfærakistu. Áhersla er lögð á að sveitarfélögin einbeiti sér að þeim losunarflokkum sem þau geta haft mest áhrif á og velji aðgerðir þar sem mestur loftslagsávinningur fæst fyrir hverja krónu.
Í lok skýrslunnar er sett fram greining á mögulegri stöðu höfuðborgarsvæðisins árið 2035 m.t.t. framgöngu fyrirliggjandi aðgerða. Samhliða hefur verið gefið út loftslagsbókhald fyrir höfuðborgarsvæðið, þar sem áætlað er hver losun svæðisins hafi verið árið 2022. Áður hafði losunin verið metin fyrir árið 2019.
Skýrslunni er vísað til umhverfissviðs og umhverfisnefndar.