Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Vífilsstaðavatn
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
21 (22-26). fundur
Umhverfisstofnun hefur hafið vinnu við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Vífilsstaðavatn. Áætlunin mun verða stefnumótandi skjal þar sem sett verða fram markmið til að marka stjórnun og viðhalda verndargildi svæðisins. Verkefnastjórn og ritstýring stjórnunar- og verndaráætlunarinnar verður í höndum fulltrúa Umhverfisstofnunar en í samstarfshópi um gerð hennar eiga einnig sæti fulltrúar frá Garðabæ og Skógræktarfélagi Reykjavíkur einnig verður Náttúrufræðistofnun Íslands til ráðgjafar við nefndina. Í vinnuferlinu er samráð afar mikilvægt og er óskað eftir athugasemdum og ábendingum sem gagnast geta við gerð áætlunarinnar. Gert er ráð fyrir að formlegt kynningarferli hefjist á vormisseri 2025 og að lokaútgáfa stjórnunar- og verndaráætlunar verði tilbúin haustið 2025.
Bæjarráð Garðabæjar
02
36. (2137). fundur
Erindi umhverfisstofnunar vegna stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðlandið Vífilsstaðavatn, dags. 23. september 2024 lagt fram.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfisnefndar og umhverfissviðs.
Bæjarráð Garðabæjar
03
24. (2125). fundur
Bréf Umhverfisstofnunar dags. 18. júní 2024 varðandi Samstarfshóp vegna vinnu við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Vífilsstaðavatn.
Bæjarráð tilnefnir Lindu Björk Jóhannsdóttur sem fulltrúa Garðabæjar í samstarfshóp um gerð áætlunarinnar.