21 (22-26). fundur
21 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
16.10.2024
Kl. 8:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
- Greta Ósk Óskarsdóttir - aðalmaður
- Einar Örn Ævarsson - varamaður
Starfsmenn
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
- Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Linda Björk Jóhannsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2203422
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi
Þráinn stefnir á að koma inn í nefndina með kynningu vegna þess.
Einnig verður kynnt hjólreiðastefna Garðabæjar.
Þráinn Hauksson, skipulagsráðgjafi kynnti drög að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Drög að hjólreiðastefnu Garðabæjar kynnt. Umhverfisnefnd lýsir yfir ánægju sinni með drögin.
Málsnúmer 2304320
02
Hlið - Deiliskipulagsbreyting - Veitingahús
Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri Garðabæjar kynnti stöðu málsins. Afgreiðslu frestað.
Málsnúmer 2406792
03
Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Vífilsstaðavatn
Umhverfisstofnun hefur hafið vinnu við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Vífilsstaðavatn. Áætlunin mun verða stefnumótandi skjal þar sem sett verða fram markmið til að marka stjórnun og viðhalda verndargildi svæðisins. Verkefnastjórn og ritstýring stjórnunar- og verndaráætlunarinnar verður í höndum fulltrúa Umhverfisstofnunar en í samstarfshópi um gerð hennar eiga einnig sæti fulltrúar frá Garðabæ og Skógræktarfélagi Reykjavíkur einnig verður Náttúrufræðistofnun Íslands til ráðgjafar við nefndina. Í vinnuferlinu er samráð afar mikilvægt og er óskað eftir athugasemdum og ábendingum sem gagnast geta við gerð áætlunarinnar. Gert er ráð fyrir að formlegt kynningarferli hefjist á vormisseri 2025 og að lokaútgáfa stjórnunar- og verndaráætlunar verði tilbúin haustið 2025.
Málsnúmer 2409279
04
Veiðikortið 2025
Umhverfisnefnd samþykkir að endurnýja samstarf við Veiðikortið.
Málsnúmer 2408372
05
Tilnefning til Grænu skóflunnar
Leikskólinn Urriðaból hlaut Grænu skófluna, viðurkenningu fyrir mannvirki sem byggt hefur verið með framúrskarandi vistvænum og sjálfbærum áherslum. Umhverfisnefnd fagnar því að leikskólinn hafi hlotið verðlaunin.
Málsnúmer 2410185
06
Svansvottun Urriðaból við Holtsveg
Garðabær hlaut fyrsta Svansleyfið sem veitt hefur verið til sveitarfélags fyrir Svansvottaða byggingu Urriðaból við Holtsveg. Verkefnið er jafnframt fyrsta leikskólaverkefnið sem hlýtur Svansvottun samkvæmt nýbyggingarviðmiðum Svansins.
Málsnúmer 2206112
07
Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026)
Umhverfisnefnd leggur fram tillögur til fjárhagsáætlunar 2025.