Beint í efni

Hlið - Deiliskipulagsbreyting - Veitingahús

Málsnúmer 2304320

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

17. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

15. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hliðs sem gerir ráð fyrir byggingarreit vestan við veitingasal ferðaþjónustunnar. Skipulagsstjóri samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hliðs í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Með vísan í bókun skipulagsnefndar frá fundi 28. nóvember sl. og í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að umsögn þeirra sem grenndarkynning nær til liggur fyrir. Skipulagsstjóri tekur undir þau atriði sem koma fram í umsögn Umhverfisstofnunar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

18. (951). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

18. (951). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 28. nóvember 2024 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hliðs. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna fyrir sitt leyti enda hefur viðbyggingin hverfandi áhrif á fólkvanginn og umferð um hann. Þar sem að meira en ár er liðið síðan að athugasemdafresti grenndarkynningar lauk þarf að taka breytinguna fyrir að nýju. Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri afgreiði tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við heimildir embættisins.

Bæjarráð Garðabæjar

05

45. (2146). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 28. nóvember 2024 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hliðs.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna fyrir sitt leyti enda hefur viðbyggingin hverfandi áhrif á fólkvanginn og umferð um hann.
Þar sem að meira en ár er liðið síðan að athugasemdafresti grenndarkynningar lauk þarf að taka breytinguna fyrir að nýju.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri afgreiði tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við heimildir embættisins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

16. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hliðs ásamt umsögn Umhverfisstofnunar og umhverfisnefndar. Skipulagsnefnd tekur undir bókun umhverfisnefndar. Umsögn Umhverfisstofnunar vísað til umhverfissviðs.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna fyrir sitt leyti enda hefur viðbyggingin hverfandi áhrif á fólkvanginn og umferð um hann.
Þar sem að meira en ár er liðið síðan að athugasemdafresti grenndarkynningar lauk þarf að taka breytinguna fyrir að nýju.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri afgreiði tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við heimildir embættisins.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

07

22 (22-26). fundur

DRÖG að bókun:

Hlið á Álftanesi var friðlýst sem fólkvangur árið 2002 en árið 2020 var fólkvangurinn stækkaður og friðýsingaskilmálar endurskoðaðir.

Umhverfisnefnd leggur áherslu á að skilmálar friðlýsingar fólkvangs séu virtir og tekur undir ábendingar Umhverfisstofnunar á að allar framkvæmdir þ.m.t mannvirkjagerð og aðrar breytingar á landi innan fólkvangsins séu háðar leyfi Umhverfisstofnunar, sbr. 2. mgr. 40. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.

Nefndin tekur einnig undir sjónarmið Umhverfisstofnunar sem telur að frekari uppbygging á skipulagssvæðinu kunni að hafa neikvæð áhrif á hlutverk og markmið fólkvangsins.

Hlið á Álftanesi var friðlýst sem fólkvangur árið 2002 en árið 2020 var fólkvangurinn stækkaður og friðýsingarskilmálar endurskoðaðir.

Umhverfisnefnd leggur áherslu á að skilmálar friðlýsingar fólkvangs séu virtir og tekur undir ábendingar Umhverfisstofnunar á að allar framkvæmdir þ.m.t mannvirkjagerð og aðrar breytingar á landi innan fólkvangsins séu háðar leyfi Umhverfisstofnunar, sbr. 2. mgr. 40. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.

Nefndin tekur einnig undir sjónarmið Umhverfisstofnunar sem telur að frekari uppbygging á skipulagssvæðinu kunni að hafa neikvæð áhrif á hlutverk og markmið fólkvangsins.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

08

21 (22-26). fundur

Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri Garðabæjar kynnti stöðu málsins. Afgreiðslu frestað.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

09

12 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd felur umhverfissviði að taka málið til skoðunar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

11. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hliðs ásamt umsögn Umhverfisstofnunar. Vísað til umfjöllunar í umhverfisnefnd og til skoðunar hjá Umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

7. (922). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits til vesturs að lóðarmörkum. Grenndarkynna skal tillöguna Umhverfisstofnun en Hlið á Álftanesi er friðlýst svæði sem fólkvangur.“ (Mál nr. 2304320)

Bæjarráð Garðabæjar

12

17. (2070). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits til vesturs að lóðarmörkum. Grenndarkynna skal tillöguna Umhverfisstofnun en Hlið á Álftanesi er friðlýst svæði sem fólkvangur.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hliðs á Álftanesi sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits veitingahúss til vesturs að lóðarmörkum.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hliðs í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna Umhverfisstofnun.