Beint í efni

17. fundur

12.12.2024
Skipulagsnefnd Garðabæjar

17. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

12.12.2024

Kl. 15:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Einar Þór Einarsson - varamaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2403271

01

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, breyting á rammahluta Vífilsstaðalands. Tilfærslur á íbúðafjölda.

Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til rammahluta Vífilsstaðalands að lokinni auglýsingu ásamt athugasemd og umsögnum sem borist hafa.

Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2406282

02

Hnoðraholt norður-deiliskipulagsbreyting - raðhús - fjölbýlishús íbúðareiningar

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður að lokinni auglýsingu ásamt athugasemd og umsögnum sem borist hafa.

Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2302193

03

Ásahverfi, farsímasamband.

Lögð fram að lokinni auglýsingu tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir staðsetningu farsímasendis við enda göngubrúar yfir Hafnarfjarðarveg til móts við Breiðás. Umsagnir sem borist hafa lagðar fram.

Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2412006

04

Hátún 3, fyrirspurn um stöðuleyfi fyrir gám.

Lögð fram fyrirspurn um stöðuleyfi fyrir flutningagám við lóðarmörk að hliðargötu.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að stöðuleyfi verði veitt til lok maímánuðar á næsta ári en leggur áherslu á að gámur verði þá fjarlægður.

Málsnúmer 2412083

05

Víðiholt 22 - girðing - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu girðingar á lóðarmörkum og staðsetningu smáhýsis á parhúslóð.

Vísað til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.

Málsnúmer 2408081

06

Birkiás 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að staðsetningu 10 m² smáhýsis við lóðarmörk að Ásabraut ásamt athugasemd sem borist hefur.

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi á vettvangi með lóðarhafa.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2410298

07

Lækjarfit, Langafit - breyting lóða

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra, sem nær til lóðanna Lækjarfit 6 og Langafit 5.

Tillagan gerir ráð fyrir að lóð Löngufitjar 5 stækki um 75 m² þ.e. 35 m² af opnu svæði og 40m² af lóð Lækjarfitjar 6. Lóðin Lækjafit 6 minnkar því um 40 m².

Ástæða tillögunnar er sú að ósamræmi reynist vera milli þinglýstra gagna og deiliskipulags og er markmiðið því að leiðrétta það.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu Deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal íbúum og eigendum Læjarfitjar 2, 4, 8 og 10 sem og Löngufitjar 7 og 9.

Málsnúmer 2411510

08

Unnargrund 23 - Smáhýsi á lóð

Lögð fram tillaga að staðsetningu 6 m² smáhýsis (gróðurhúss) og nágrannar hafa gert athugasemdir við.

Málinu vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2411312

09

Hrísholt 1 - Deiliskipulag

Lögð fram umsókn lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir einnar hæðar viðbyggingu sunnan við hús.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.

Grenndarkynna skal eigendum Hrísholts 2 og 3 og Eskiholts 2, 4, 6, 8 og 10.

Málsnúmer 2412118

10

Garðprýði 4 - hækkun á vegg - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu á byggingu.

Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

Málsnúmer 2202488

11

Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.

Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi gerði grein fyrir tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Boða skal til almenns íbúafundar þar sem tillagan verður kynnt á meðan á forkynningu stendur.

Málsnúmer 2411158

12

Hrauntunga,breyting á deiliskipulagi Garðahrauns.

Þráinn Hauksson hjá Landslagi kynnti hugmyndir um breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem gerir ráð fyrir einbýlishúsabyggð á lóðinni Hrauntungu við gamla Álftanesveg (Garðahraunsveg). Tillagan er unnin á vegum lóðarhafa.

Vísað til skoðunar og úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjafa.

Baldur Ó. Svavarsson vék sem fundarmaður.

Málsnúmer 2412009F

13

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 15

13.1 - 2304320 - Hlið - Deiliskipulagsbreyting - Veitingahús

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hliðs sem gerir ráð fyrir byggingarreit vestan við veitingasal ferðaþjónustunnar. Skipulagsstjóri samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hliðs í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Með vísan í bókun skipulagsnefndar frá fundi 28. nóvember sl. og í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að umsögn þeirra sem grenndarkynning nær til liggur fyrir. Skipulagsstjóri tekur undir þau atriði sem koma fram í umsögn Umhverfisstofnunar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

13.2 - 2007660 - Litlabæjarvör 22 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi vegna girðinga/stoðveggja á lóðarmörkum. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.

13.3 - 2405524 - Gásamýri 2-12 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingarreitum raðhúslóðanna Gásamýri 2-6 og 8-12. Breidd byggingarreita 8-12 stækka úr 10 m í 12 m en á Gásamýri 2-6 úr 10 m í 12. Sipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Króks í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal öðrum lóðarhöfum við Gásamýri og Svanamýri 21-29.

13.4 - 2405525 - Gásamýri 14-28 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingarreitum raðhúslóðanna Gásamýri 14-20 og 22-28. Breidd byggingarreita stækka úr 10 m í 12 m. Sipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Króks í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal öðrum lóðarhöfum við Gásamýri og Svanamýri 21-29.

13.5 - 2411518 - Ránargrund 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn vegna einbýlishússins að Ránargrund 3 sem byggt var 1949. Uppdrættir gera ráð fyrir þeim breytingum á einbýlishúsinu að þar verði þrjár íbúðir í stað einnar. Deiliskipulag kveður ekki sérstaklega á um fjölda íbúða í eldri húsum.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi var framlagða uppdrætti.
Minnt er á að húsið er víkjandi í deiliskipulagi og verður fjarlægt þegar Sjálandsskóli verður stækkaður.

13.6 - 2410225 - Vetrarbraut 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Í umsögn kemur fram að GK sé hærri en GK á hæðablaði. Hæð byggingar fer þó ekki yfir hámarkshæð.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis og leggur til að hæðablöð verða uppfærð í samræmi við aðaluppdrætti.

13.7 - 2411320 - Tinnuvellir 8a og 8b - Sameining - Dsk.br. óveruleg

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem snýr að sameiningu lóðanna Tinnuvalla 8a og 8b.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að deiliskipulagsbreytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

13.8 - 2403061 - Hönnun - Útboð - Reiðstígur í Vífilsstaðahlíð

Lögð fram umsókn umhverfissviðs um losun efnis í tengslum við gerð reiðstígar frá Grunnuvatnaskarði að rótum Vífilsstaðahlíðar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að efni verði losað í fyrirhugað stígstæði þar til að deiliskipulagsbreyting hefur öðlast gildi og framkvæmdarleyfi hefur verið veitt. Ekki skal efni losað innan friðlands Vífilsstaðavatns fyrr en framkvæmdarleyfi hefur verið veitt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar - 17 - Garðabær