Beint í efni

Víðiholt 22 - girðing - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2412083

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

7. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

4. fundur

Lögð fram fyrirspurn um girðingu á lóðarmörkum að opnu svæði og smáhýsi sem einnig er staðsett við lóðarmörk í norðurhorni lóðar.
Hæð girðingar er ekki að fullu í samræmi við deiliskipulag en í samræmi við almenna samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við hæð skjólveggjar á milli lóða parhússins enda liggur fyrir samþykki eiganda meðeigenda parhússins.
Skipulagsstjóri lítur svo á að ákvæði um hæð girðinga sem nær til raðhúslóðanna Víðiholt 5-13 eigi við um umrædda lóð vegna nálægðar við djúpgáma og aðkomugötu, þ.e. geti verið 1,5 á hæð.
Smáhýsi er 13,9 m2 að flatarmáli og hæð þess 2,4 m og er það innan þeirra marka sem byggingarreglugerð kveður á í grein 2.3.5. um stærð og hæð smáhýsa.
Skipulagsstjóri samþykkir fyrir hönd Garðabæjar staðsetningu smáhýsis við lóðarmörk enda er djúpgámasvæði staðsett nálægt lóðarmörkum á þessum stað.
Með vísan í deiliskipulag skulu aðaluppdrættir uppfærðir með tilliti til ofangreindrar útfærslu (lóðaruppdráttur).

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

17. fundur

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu girðingar á lóðarmörkum og staðsetningu smáhýsis á parhúslóð.
Vísað til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.