Beint í efni

7. fundur

30.04.2025
Skipulagsnefnd Garðabæjar

7. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

30.04.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Kjartan Vilhjálmsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Formaður skipulagsnefndar lagði til að einu máli sem var ekki í fundarboði yrði bætt við á dagskrá fundarins. Það er fundarliður nr. 14. Samþykkt.

Dagskrá

Málsnúmer 2406836

01

Miðbær, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.

Freyr Frostason og Klara Sól Ágústsdóttir arkitektar hjá THG, ásamt Bjarka Páli Eysteinssyni gerðu grein fyrir tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar Garðabæjar fyrir hönd fasteignafélagsins Heima.

Tillögu vísað til úrvinnslu hjá THG, Heimum og Umhverfissviði.

Málsnúmer 2411158

02

Hrauntunga,breyting á deiliskipulagi Garðahrauns.

Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi kynnti fyrir hönd lóðarhafa tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem gerir ráð fyrir einbýlishúsabyggð á landi Hrauntungu við Garðahraunsveg (Gamla Álftanesveg).

Vísað til úrvinnslu hjá lóðarhafa, ráðgjafa og Umhverfissviði.

Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 2504060

03

Smalaholt, óveruleg breyting Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar, rammahluta Vífilsstaðalands sem gerir ráð fyrir breytingu á afmörkun landnotkunarreitsins 4.10 Íþ til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts sem nú er í auglýsingu.

Skipulagsnefnd leggur til að tillagan hljóti meðferð sem óveruleg aðalskipulagsbreyting í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal senda hana Skipulagsstofnun til afgreiðslu en þess sé gætt að hún sé ekki staðfest fyrr en að lokinni samþykkt deiliskipulags Vetrarmýrar og Smalaholts.

Málsnúmer 2503226

04

Hnoðraholt Norður, dsk breyting, austurhluti Vorbrautar.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norðurs sem gerir ráð fyrir því að afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist þannig að austasti hluti Vorbrautar verður felldur út eða það svæði sem deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts nær til og er nú í auglýsingu.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning er felld niður þar sem að tillagan er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts norður. Tillagan skal hljóta staðfestingu um leið og tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.

Málsnúmer 2504130

05

Vetrarmýri, dsk breyting, golfskálasvæði.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir því að afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist þannig að sá hluti svæðisins sem er inni á golfvallarsvæði er felldur út eða það svæði sem deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts nær til og er nú í auglýsingu.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning er felld niður þar sem að tillagan er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts. Tillagan skal hljóta staðfestingu um leið og tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.

Málsnúmer 2412118

06

Garðprýði 4 - hækkun á vegg - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu byggingar sem gerir ráð fyrir hámarkshæð húss með flötu þaki sé 7,2 m.

Skipulagsnefnd fellst ekki á að breyta ákvæðum deiliskipulags með þeim hætti að vegghæð húss sé 7,2 metrar á allar hliðar í stað 6,5 m, jafnvel þó að ein hlið geti verið allt að 8,5 m. Nefndin telur það vera frekar í anda deiliskipulagsins ef þakflötur sé annað hvort hallandi eða uppbrotinn.

Málsnúmer 2502084

07

Gilsbúð 9 (Sómi) stækkun byggingareits - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu iðnaðarbyggingar sem kallar á stækkun byggingarreits á baklóð sem nær yfir kvöð um holræsi með fram lóðarmörkum.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi tillögu þess efnis til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu og felli um leið niður kvöð um holræsi ef tillagan nær fram að ganga, enda hefur holræsi verið lagt í götu við Gilsbúð en ekki þar sem kvöðin nær til.

Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 2411159

08

Hleinar að Langeyrarmölum - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hleina að Langeyrarmölum sem nær til lóðar dvalarheimilisins Hrafnistu Hraunvangur 7 að lokinni auglýsingu.

Breytingin nær aðallega til svæðis innan lögsögu Hafnarfjarðar.

Lagðar fram umsagnir sem borist hafa ásamt tillögu Hafnarfjarðar að svörum við þeim. Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir framlögð svör við umsögnum fyrir sitt leyti.

Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2504222

09

Reykjavík - Ask. br. á opnum svæðum í Hólmsheiði og austanverðum Úlfarsárdal (OP15, OP28)

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Reykjavíkur sem gerir ráð fyrir ákvæðum um stakstæð hús á opnum svæðum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Málsnúmer 2504411

10

Deiliskipulag fyrir Hamarshöfn, nr. 0530/2025 - ósk um umsögn

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Málsnúmer 2504075

11

Breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 - 2025 vegna breyttrar landnotkunar Hrauns vestur, nr. 0723/2024

Tillögu vísað til umsagnar hjá Umhverfissviði.

Málsnúmer 2409092

12

Ask.Rvk 2040 - Íbúðaruppbygging í grónum hverfum - Frekari uppbyggingarmöguleikar í Grafarvogi og öðrum borgarhlutum

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Málsnúmer 2503045F

13

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 4

Fundargerð lögð fram.

13.1 - 2411076 - Brekkuskógar 3 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

Lögð fram tilkynning um framkvæmd sem er undanþegin byggingarleyfi sbr.gr 2.3.5 í byggingarreglugerð nr 112/2012.
Gert er ráð fyrir smáhýsi 14 m2 að flatarmáli sem verður 1,1 m frá lóðarmörkum að opnu svæði norðan við íbúðarhús. Runnagróður er milli smáhýsis og lóðarmarka.
Fyrir hönd Garðabæjar samþykkir skipulagsstjóri staðsetningu smáhýsis sem er 1,1 m frá lóðarmörkum að landi Garðabæjar.

13.10 - 2502536 - Steinprýði 6 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

13.11 - 2503139 - Hegranes 29 - breyting á svölum - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Arnarness. Breytingin gerir ráð fyrir því að byggingarreitur lóðarinnar Hregraness 29 stækkar til suðvesturs.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness í samræmi við 2. mgr. 43. gr skipulagslaga og vísar henni í grenndarkynningu í samræmi við 44. gr sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Hegraness 24, 26, 28, 27, 31 og 33.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

13.12 - 2502376 - Stekkholt 2 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við uppdrætti enda eru þeir í samræmi við deiliskipulag.

13.13 - 2503260 - Útholt 10 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skyggni yfir inngangi (svalir) ná út fyrir þau mörk sem deiliskipuag setur.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað útfærslu á ofangreindu skyggni varðar enda er hér um ágæt stílbrögð arkitekts að ræða.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

13.14 - 2502149 - Vorbraut 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

13.15 - 2502253 - Vorbraut 8 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Vorbraut 8-10, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti hvað byggingu varðar.

13.16 - 2501473 - Vorbraut 14 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Útfærsla víkur lítillega frá ákvæðum deiliskipulags hvað uppbrot varðar en útfærslan er góð og nær markmiði deiliskipulagsins hvað yfirbragð varðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærslu útveggja og að við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað kröfur um uppbrot úthliða varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

13.17 - 2502558 - Vorbraut 21 - Umsókn um byggingarleyfi -

Lagðir fram aðaluppdrættir raðhúslengunar Vorbraut 21-27 sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Gólfkótar víkja lítillega frá kótum á hæðablaði en heildarhæð húss er vel innan marka ákvæða deiliskipulags sem er 8 m frá gólfkóta neðri hæðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við uppdrættina hvað deiliskipulag varðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærslu gólfhæðar og að við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað gólfkóta sem gefnir eru upp á hæðablaði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

13.18 - 2502466 - Hraungata 19 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem snýr að svalalokunum við fjölbýlishúsið Hraungötu 19. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við umókn á grundvelli skipuagsskilmála.

13.19 - 2504030 - Þernunes 13 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á stækkun jarðhæðar.
Skipulagsstjóri telur að útfærslan komi til greina en hún kallar á deiliskipulagsbreytingu þar sem stækkun fer út fyrir byggingarreit.

13.2 - 2503182 - Sviðholtsvör 9 - Deiliskipulags breyting

Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Vara á Álftanesi. Breytingin gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækkar um 30 m² í suðausturhorni lóðar, sem nær að lóðarmörkum.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á á deiliskipulagi Vara á Álftanesi í samræmi við 2. mgr. 43. gr skipulagslaga og vísar henni í grenndarkynningu í samræmi við 44. gr sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Sviðholtsvarar 3, 5 og 7 sem og Efstakot 2 og 4.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

13.3 - 2412083 - Víðiholt 22 - girðing - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um girðingu á lóðarmörkum að opnu svæði og smáhýsi sem einnig er staðsett við lóðarmörk í norðurhorni lóðar.
Hæð girðingar er ekki að fullu í samræmi við deiliskipulag en í samræmi við almenna samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við hæð skjólveggjar á milli lóða parhússins enda liggur fyrir samþykki eiganda meðeigenda parhússins.
Skipulagsstjóri lítur svo á að ákvæði um hæð girðinga sem nær til raðhúslóðanna Víðiholt 5-13 eigi við um umrædda lóð vegna nálægðar við djúpgáma og aðkomugötu, þ.e. geti verið 1,5 á hæð.
Smáhýsi er 13,9 m2 að flatarmáli og hæð þess 2,4 m og er það innan þeirra marka sem byggingarreglugerð kveður á í grein 2.3.5. um stærð og hæð smáhýsa.
Skipulagsstjóri samþykkir fyrir hönd Garðabæjar staðsetningu smáhýsis við lóðarmörk enda er djúpgámasvæði staðsett nálægt lóðarmörkum á þessum stað.
Með vísan í deiliskipulag skulu aðaluppdrættir uppfærðir með tilliti til ofangreindrar útfærslu (lóðaruppdráttur).

13.4 - 2502244 - Gásamýri 17 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

13.5 - 2503021 - Kumlamýri 17-27 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Fyrirspurn vísað til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.

13.6 - 2502528 - Kumlamýri 25 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn skipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti hvað byggingu varðar. Athuga þarf betur fyrirspurn um frágang lóðar. Ennþá liggja ekki fyrir breytt lóðablöð í kjölfar deiliskipulagsbreytingar.

13.7 - 2502533 - Kumlamýri 27 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn skipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti hvað byggingu varðar. Athuga þarf betur fyrirspurn um frágang lóðar. Ennþá liggja ekki fyrir breytt lóðablöð í kjölfar deiliskipulagsbreytingar.

13.8 - 2503200 - Garðprýði 2 - Umsókn um byggingarleyfi

Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við uppdrætti sem fylgja byggingarleyfi hvað byggingu varðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að steypt girðing á lóðarmörkum verði allt að 1,8 m á hæð vegna álags frá umferð á þessum stað. Æskilegra er að veggflötur girðingar sé inndreginn með hæfilegu millibili með gróðri í innskotum til að bæta ásýnd.

13.9 - 2502527 - Steinprýði 2 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Steinprýði 2, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti á grundvelli skipulagsskilmála.

Málsnúmer 2202488

14

Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.

Umsagnafrestur framlengdur

Vegna tæknilegra örðugleika í skipulagsgátt bárust beiðnir til umsagnaraðila ekki með réttum hætti. Samkvæmt ráðleggingu Skipulagsstofnunar fellst skipulagsnefnd Garðabæjar á að framlengja frest til að gera athugasemdir og veita umsagnir um 3 vikur, eða til og með 9. júní næstkomandi.