Hleinar að Langeyrarmölum - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (959). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hleina að Langeyrarmölum sem nær til lóðar dvalarheimilisins Hrafnistu Hraunvangur 7 að lokinni auglýsingu. Breytingin nær aðallega til svæðis innan lögsögu Hafnarfjarðar. Lagðar fram umsagnir sem borist hafa ásamt tillögu Hafnarfjarðar að svörum við þeim. Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti framlögð svör við umsögnum fyrir sitt leyti. Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
02
17. (2165). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hleina að Langeyrarmölum sem nær til lóðar dvalarheimilisins Hrafnistu Hraunvangur 7 að lokinni auglýsingu.
Breytingin nær aðallega til svæðis innan lögsögu Hafnarfjarðar.
Lagðar fram umsagnir sem borist hafa ásamt tillögu Hafnarfjarðar að svörum við þeim. Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti framlögð svör við umsögnum fyrir sitt leyti.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hleina að Langeyrarmölum sem nær til lóðar dvalarheimilisins Hrafnistu Hraunvangur 7 að lokinni auglýsingu.
Breytingin nær aðallega til svæðis innan lögsögu Hafnarfjarðar.
Lagðar fram umsagnir sem borist hafa ásamt tillögu Hafnarfjarðar að svörum við þeim. Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir framlögð svör við umsögnum fyrir sitt leyti.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
5. (957). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi beiðni Hafnarfjarðarbæjar um umsögn um tillögu að deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum sem nær til svæðis umhverfis Hrafnistu. Skipulagsnefnd Garðabæjar gerði ekki athugasemd við tillöguna.
Bæjarráð Garðabæjar
05
11. (2159). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi beiðni Hafnarfjarðarbæjar um umsögn um tillögu að deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum sem nær til svæðis umhverfis Hrafnistu. Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
5. fundur
Lögð fram beiðni Hafnarfjarðarbæjar um umsögn um tillögu að deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum sem nær til svæðis umhverfis Hrafnistu. Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
18. (951). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 28. nóvember 2024 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hleina að Langeyrarmölum. Helstu breytingar eru eftirfarandi: -Breytingin felst í stækkun lóðar úr 25.980 m² í 33.408 m² vegna áður samþykktra breytinga á bæjarfélagsmörkum. -Breyting byggingarmagns; ný álma hjúkrunarheimilis með 118-125 hjúkrunarrýmum (byggingarreitur A) og þrjú fjölbýlishús ásamt einni tengibyggingu/þjónustubyggingu (byggingarreitir B, C og D) á lóðinni sem falla vel að umhverfinu og efla starfsemi Hrafnistu. Heimilt byggingarmagn fer úr 22.586 m² í 52.086 m² (þar af er byggingarmagn nýbygginga 29.500 m2/). -Leyfilegur fjöldi nýrra íbúða verður 118 leiguíbúðir fyrir aldraða í mismunandi stærðum ásamt stækkun á núverandi bílakjallara og öðrum nýjum í tengslum við íbúðir á reit C og D -Nýtingarhlutfall fer úr 0,9 í 1,5. -Tilfærsla á spennistöð. Eina breytingin sem verður innan Garðabæjar er tilfærsla á vegtengingu frá Hrafnistu að Boðahlein og Naustahlein til vesturs. Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs að skoða hvort ekki sé ástæða til að útfæra gatnamót Boðahleinar við aðkomuveg þannig að húsagatan verði botnlangi út frá safngötu. Skipulagsnefnd samþykkti að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
09
45. (2146). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 28. nóvember 2024 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hleina að Langeyrarmölum.
Helstu breytingar eru eftirfarandi: -Breytingin felst í stækkun lóðar úr 25.980 m² í 33.408 m² vegna áður samþykktra breytinga á bæjarfélagsmörkum. -Breyting byggingarmagns; ný álma hjúkrunarheimilis með 118-125 hjúkrunarrýmum (byggingarreitur A) og þrjú fjölbýlishús ásamt einni tengibyggingu/þjónustubyggingu (byggingarreitir B, C og D) á lóðinni sem falla vel að umhverfinu og efla starfsemi Hrafnistu. Heimilt byggingarmagn fer úr 22.586 m² í 52.086 m² (þar af er byggingarmagn nýbygginga 29.500 m2/). -Leyfilegur fjöldi nýrra íbúða verður 118 leiguíbúðir fyrir aldraða í mismunandi stærðum ásamt stækkun á núverandi bílakjallara og öðrum nýjum í tengslum við íbúðir á reit C og D -Nýtingarhlutfall fer úr 0,9 í 1,5. -Tilfærsla á spennistöð.
Eina breytingin sem verður innan Garðabæjar er tilfærsla á vegtengingu frá Hrafnistu að Boðahlein og Naustahlein til vesturs. Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs að skoða hvort ekki sé ástæða til að útfæra gatnamót Boðahleinar við aðkomuveg þannig að húsagatan verði botnlangi út frá safngötu.
Skipulagsnefnd samþykkti að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
16. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hleina að Langeyrarmölum.
Helstu breytingar eru eftirfarandi: -Breytingin felst í stækkun lóðar úr 25.980 m² í 33.408 m² vegna áður samþykktra breytinga á bæjarfélagsmörkum. -Breyting byggingarmagns; ný álma hjúkrunarheimilis með 118-125 hjúkrunarrýmum (byggingarreitur A) og þrjú fjölbýlishús ásamt einni tengibyggingu/þjónustubyggingu (byggingarreitir B, C og D) á lóðinni sem falla vel að umhverfinu og efla starfsemi Hrafnistu. Heimilt byggingarmagn fer úr 22.586 m² í 52.086 m² (þar af er byggingarmagn nýbygginga 29.500 m2/). -Leyfilegur fjöldi nýrra íbúða verður 118 leiguíbúðir fyrir aldraða í mismunandi stærðum ásamt stækkun á núverandi bílakjallara og öðrum nýjum í tengslum við íbúðir á reit C og D -Nýtingarhlutfallfer úr 0,9 í 1,5. -Tilfærsla á spennistöð.
Eina breytingin sem verður innan Garðabæjar er tilfærsla á vegtengingu frá Hrafnistu að Boðahlein og Naustahlein til vesturs. Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs að skoða hvort ekki sé ástæða til að útfæra gatnamót Boðahleinar við aðkomuveg þannig að húsagatan verði botnlangi út frá safngötu.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísað tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
15. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hleina að Langeyrarmölum sem tengist uppbyggingaráformum við Hrafnistu.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.